Áramót - 01.03.1906, Síða 71

Áramót - 01.03.1906, Síða 71
75 Þá var tekiö fyrir aö ræða um niðurjöfnun kirkju- félag'sgjaldsins, og gjörði séra R. Marteinsson þá til- lögu, að því gjaldi sé framvegis jafnað niður eftir tölu fermdra meðlima safnaðanna,— og var sú tillaga samj), Þá var tekið fyrir að gjöra áætlan um útgjöld kirkjufélagsins fyrir komandi ár, og gjörði Jón J.Vopni þá tillögu, að þau séu áætluð 300 dollars, og var það salnþykt. Þá var samþykt að ákveða um næsta þingstað. Séra Fr. J. Bergmann bar fram boð frá Tjaldbúðarsöfn- uði. Árni Eggertsson frá Fyrsta lút. söfn. í Winnipeg. Einar Scheving sömuleiðis frá Vídallns-söfnuði. — Séra Björn B. Jónsson lagði til, að iþakkað væri fyrir öll tilboðin, og boð Tjaldbúðar-safnaðar þegið; samþ. Var svo sungið versið nr. 5 og fundi slitið, eftir að næsti fundur hafði verið ákveðinn kl. 9 næsta dag. ELLEFTI FUNDUR—kl. 9 f.h. 20. Júní 1906. Allir á fundi nema J. Benediktsson, sem var farinn af þingi með leyfi forseta. Sunginn sálmurinn nr. 230. Séra Pétur Hjálmsson las 1. Kor. 3, og flutti bæn. Þá lagði séra N. S. Thorlaksson fram svohljóð- andi skýrslu um starf sitt í þarfir sunnudagsskólamáls- ins á síðastliðnu ári: Eg, sem hefi átt að hafa með höndum sd. skóla mál kirkjufélagsins á árinu, hefi að kalla ekki gjört neitt í því. Og hefði eg verið búinn að leggja skýslu mína fram fyrir þingið fyr, ef eg hefði ekki verið að bíða eftir bréfi frá ráðsmanni útgáfunefndar „General Council". Það bréf kom til mín nú á þinginu. Líka vantaði mig skýrslu sd.-

x

Áramót

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Áramót
https://timarit.is/publication/247

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.