Áramót - 01.03.1906, Qupperneq 73
77
Reynt hefi eg á árinu að komast eftir hjá útgefendum
„General C.“, með hvaða kjörum hægt væri aö fá nýja
„Ljósgeisla" með litmyndum. Hefir þaö gengiö erfiölega.
Loksins kom þó bréfið, sem eg gat um, en svarið fullnægir
ekki. Verðið á spjöldunum er of hátt. Þau margfalt dýr-
ari en hin.
Sunnudagsskólaþingið, sem haldið var, bjó eg undir
það litla, sem það var undirbúið. Augljóst var, að tíminn
var of stuttur, sem því var ætlaður. Og þarf sd.skólaþingið
að fá lengri tíma, ef það á að geta náð tilgangi sínum.
Tillögur mínar eru þessar:
1. —Að söfnuðirnir séu ámintir um, að leggja sem
mesta rækt við sunnudagsskóla sína.
2. —Að af þeim, sem í trúboðserindum ferðast út um
prestslausu bygðarlögin, sé heimtað, að þeir vanræki ekki
að gjöra alt sem unt er sunnudagsskólamálinu til eflingar
í bygðarlögunum.
3. —Að guðfræðisnemendur vorir séu hvattir til að
kappkosta að kynna sér sem bezt sunnudagsskólastarfið á
námsárum sínum og venja sig við það.
4. —Að nýir „Ljósgeislar" með litmyndum séu gefnir út
sem allra fyrst ef kostur er á, en megi ekki vera dýrari en
15—20 cent eintakið—52 spjöld.
5. —Að prestarnir séu beönir að hafa við og við barna-
guðsþjónustur í söfnuðum sínum.
6. —Að sunnudagsskólaþing fái á hverju kirkjuþingi
ekki minna en 4 klukkutíma til síns þinghalds.
7. —Að tveggja manna nefnd sé kosin, til þess að ann-
ast um sunnudagsskólamálið til næsta þings.
Á kirkjuþingi, þ. 25. Júni 1906.
N. Stgr. Thorlaksson.
Samþykt að veita skýrslunni móttöku og taka til-
lögurnar fyrir lið ívrir iið.