Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1982, Blaðsíða 19
DAGBLAÐIÐ& VÍSIR. MIÐVIKUDAGUR 27. JANÚAR 1982. DAGBLAÐIÐ&VÍSIR. MIÐVIKUDAGUR27. JANÚAR 1982.
áreiðanlegum heimildum að allir þeir
menn í knattspyrnuráðinu, sem
störfuðu sl. keppnistimabil, hafi gefið
áfram kost á sér á 37. ársþingi ÍA í
nóvember, nema Hörður Helgason,
sem er á förum til Húsavíkur. Það átti
þvi aðeins eftir að fá mann í hans stað i
knattspyrnuráðið, en hann var ritari
KRA.
Sá orðrómur er uppi á Akranesi, að
breytingarnar hafi verið gerðar vegna
komu Kirby — hann hafi viljað að í
ráðinu væru menn sem hann þekkti vel
frá þeim árum sem hann var á
Akranesi. -SOS
Meistararnir
miklu og stúlk-
urnar þeirra
— Heimsmeistarakeppnin íalpagreinum
hefstámorgun
yfir heimsmeistarakeppnina í alpa-
greinum sem hefst í Schaldming í
Austurriki í dag, 27. janúar.
líeppnin stendur til 7. febrúar. Ingemar
Stenmark hefur þar mikið að verja
varð bæði heimsmeistari í svigi og
stórsvigi í siðustu heimsmeistara-
keppni. Svíar hafa valið lið sitt í keppn-
ina. Stenmark og Thorsten Jakobsson
keppa í stórsvigi, aðeins tveir frá
Svíþjóð, en hins vegar eru fjórir
keppendur frá Svíþjóð í sviginu. Auk
Stenmark þeir Bengt Fjállberg, Stig
Strand og Lars Göran Halvarsson. í
kvennagreinum er einn sænskur kepp-
andi, Ann Melander
hsim
Sænsku blaðamennirnir voru heldur
leiðinlegir við Ingemar Stenmark,
skíðakónginn mikla, framan af
keppnistímabilinu. Stenmark gekk
ekki nógu vel að áliti þeirra vegna þess
að hann hafði með sér unnustu sína,
Ann Uvhagen, á keppnisferðum sínum
í heimsbikarnum. En þcgar Stenmark
komst á sigurbraut á ný breyttist
tónninn í blöðunum. En fleiri en Sten-
mark hafa unnustur sinar með sér, til
dæmis helzti keppinautur Svíans, Phil
Mahre, sem trúlofaður er Holly
Kaiser. Á myndinni sjáum við pörin,
Phil og Holly til vinstri, Ingemar og
Ann til hægri.
Kapparnir undirbúa sig nú af kappi
Enski landsliðsmaðurinn Ray Kennedy var i gær seldur frá Liverpool til Swansea
fyrir 160 þúsund sterlingspund. Rúmlega þrítugur og hefur leikið á fjórða hundrað
leiki fyrir Liverpool sfðan hann var keyptur frá Arsenal fyrir um átta árum. Bætist f
hóp fjölmargra leikmanna frá Liverpool sem leika með Swansea. -hsim.
Þrjátíu þjóðir í UEFA-
keppni pilta-landsliða
ísland er I riðli með Spáni og
Hollandi í Evrópukeppni landsliða i
knattspyrnu, leikmenn 21 árs og yngri.
UEFA-keppni og fyrirhugað er að
ísland leiki tvo leiki i sumar í þessum
sjöunda riðli keppninnar.
Keppt er í átta riðlum í þessari
keppni. Dregið var í riðlana í Paris á
fundi Evrópusambandsins, UEFA. Þá
skýrðum við frá þvi hér í blaðinu i
hvaða riðli ísland var. Riðlaskipanin i
heild er annars þessi.
1. riðill Belgia
Austur-Þýzkaland
Skotland
Sviss
2. riðill
Pólland
Sovétríkin
Portúgal
Finnland
3. riðill
England
Ungverjaland
Grikkland
Danmörk
4. riðill
Júgóslavia
Wales
Noregur
Búlgaría
5. riðill
ítalia
Tékkóslóvakía
Rúmenia
Kýpur
6. riðill
Vestur-Þýzkaland
Austurriki
Tyrkland
Albanía
7. riðill
Spánn
Holland
ísland
8. riðill
Frakkland
Fjögur deildarmörk hjá Liver-
pool og sex hjá Watford!
4. deild
Evrópumeistarar Liverpool skutust
upp í fimmta sæti 1. deildarínnar ensku
í gærkvöld þegar þeir unnu stórsigur í
Nottingham á Notts County, 0—4, Ian
Rush, miðherji Wales, var aðalmaður-
inn í liði meistaranna. Skoraði þrjú af
mörkunum, öll í síðari hálfleik. Ronnie
Whelan skoraði fyrsta markiö á 39.
min. Liverpool er nú fimm stigum á
eftir efsta liðinu, Ipswich. Hefur hlotið
33 stig en leikiö tveimur ieikjum meira.
Miðherji QPR, Clive Ailen, var
heldur betur á skotskónum þegar lið
hans lék við Blackpool úr 4. deild i 4.
umferð ensku bikarkeppninnar.
Skoraði fjögur mörk f 5—1 sigri QPR á
gervigrasinu f vesturbæ Lundúna.
Liðin gerðu jafntefli i Blackpool á
laugardag. Simon Steinrod skoraði
fimmta mark QPR. Sautjánda mark
hans á leiktimabilinu.
í 5. umferð leikur QPR á heimavelli
Nokkrir leikir i deildunum voru
háðir í gær. Úrslit urðu þessi.
l.deild
Arsenal—Brighton 0—0
Birmingham—Coventry 3—3
Notts Co—Liverpool 0—4
2. dcild
Cambridge—C. Palace 0—0
Watford—Derby 6—1
við Grimsby, sem einnig leikur í 2.
deild. Allen er fyrsti leikmaðurinn hjá
QPR, sem skorar fjögur mörk í leik frá
því Rodney Marsh, enski landsliðs-
maðurinn, lék þar fyrir góöum áratug.
Tveir aðrir leikir voru í bikarkeppn-
inni i gærkvöld. Huddersfield og
Orient gerðu jafntefii 1—1 í
Huddersfield. Ian Moores skoraði fyrir
Lundúnaliðið en Terry Austin jafnaði
fyrir Huddersfield. Hann lék eitt sinn
Crewe—Wigan 0- -1
Peterbro—Halifax 0- -0
Sheff. Utd.—Darlington 0- -0
Arsenal tókst ekki að sigra Brighton
á heimavelli sínum og þar fóru dýrmæt
stig. Fjörleikur var í Birmingham þar
sem Alan Evans skoraði tvö af
mörkum heimaliðsins.
í 2. deild var Watford heldur betur í
með Ipswich.
Þá varð einnig jafntefii hjá
Wrexham og Chelsea í Wales. Marka-
kóngurinn Dixie McNeil skoraði mark
Wrexham en Peter Rhoades-Brown
fyrir Chelsea. Hann hafði komið inn
sem varamaður. Liðin verða þvi að
leika i þriðja sinn því ekki var skorað í
framlengingunni. Þriöji leikurinn
verður í Wrexham.
-hsfm.
ham gegn Derby sem nú er án stjóra.
Colin Addison rekinn í fyrrakvöld.
Stjórn Derby hefur nú auglýst eftir
nýjum stjóra en vonast til að Brian
Clough yfirgefi Nottingham Forest og
bjargi Derby. Fyrir nokkrum árum
gerði Clough Derby að stórveldi í ensku
knattspyrnunni. Gerry Armstrong
skoraði tvö fyrstu mörk Watford í gær-
kvöld og greinilegt að lið Elton John
hefur nú sett stefnuna beint á 1. deild.
Liðið hefur nú 38 stig eftir 21 leik.
Borgarafundur var haldinn í Bristol í
gær til að reyna að bjarga Bristol City
frá algjöru hruni. Átta af þekktustu
leikmönnum liðsins voru settir á sölu-
lista í fyrradag. En þeir voru teknir af
listanum í gær, félaginu, semskuldar
850 þúsund sterlingspund, bjargað að
minnsta kosti í bráð. Tveir kaupsýslu-
menn í Bristol ákváðu að leggja fram
eina milljón sterlingspunda í félagið.
Nýtt hlutafélag var stofnað úr rústum
þess eldra. Bristol City á langa sögu i
ensku knattspyrnunni. Stofnað 1894.
Hefur leikið i 1. deild m.a. leiktíma-
bilið 1976—1980. Féll þá niður í 2.
deild og strax næsta vor niður í þá
þriðju. Er þar meðal neðstu liða. Stjór-
inn, Bob Houghton, sem komið hafði
Malmö FF i úrslit Evrópubikarsins
gegn Nottingham Forest vorið 1979,
yfirgaf Bristol City fyrir um hálfum
mánuði. -hsim.
Clive Allen skoraði
fjögur af mörkum QPR
Luxemborg
Sviþjóð
Lið frá 30 löndum taka því þátt í
keppninni eða fieiri en nokkru sinni
áður. Þá er fyrirhugaður í sumar lands-
leikur íslands og Danmerkur í þessum
aldursfiokki. -hsím.
Einar Bollason.
Aldrei lognmolla
í kringum Kirby
Uppstokkað knattspymulið tók á móti honum—þegar hann
kom til Akraness um sl. helgi
— Guðjón Þórðarson ekki til Neskaupstaðar
Það er óhætt að segja að það sé
aldrei lognmolla í kringum George
Kirby — enska knattspyrnuþjálfarann
sem verður með Skagamenn í sumar.
Kirby kom til landsins fyrir helgina og
var hann ekki búinn að vera lengi hér á
landi, þegar staðan fór að breytast á
Akranesi. Þau tíðindi urðu, að miklar
Hapoel vann
C.Palace
Hapoel Ramat Gan, tsrael, sigraði
enska liðið Crystal Palace 95—78 í
Evrópukeppni bikarhafa í körfuknattleik
í Tel Aviv í gær.
uppstokkanir áttu sér stað i knatt-
spyrnuráði Akraness, sem hafði aðeins
setið í tvo mánuði, eða frá Sambands-
þingi ÍA í nóvember.
Það átti sér stað á föstudaginn, að
leit var hafin að nýjum manni til að
taka við stjórn knattspyrnuráðsins —
og á laugardaginn gaf Haraldur
Sturlaugsson kost á sér sem formaður
knattspyrnuráðsins og þá komu tvéir
nýir menn inn í ráðið — Gunnar
Sigurðsson og Kristján Sveinsson, tveir
fyrrverandi formenn ráðsins, sem sátu
við stjórnvöl þegar Kirby var hér sem
þjálfari Skagamanna 1974—1977.
Margir Skagamenn, sem DV ræddi
við í gær, voru ekki beint sáttir við
„hreinsanirnar”, sem áttu sér stað, en
aðrir voru ánægðir með gang mála —
70 ára saga Vals
Að lesa sögu Knattspyrnufélagsins
Vals í þau 70 ár, sem liðin eru frá
stofnun félagsins, er fyrir Valsmenn í
dag ákaflega hrífandi,” segir Ólafur
Gústafsson, varaformaður Vals, i
formála „Valur vængjum þöndum”,
stórri bók sem Valur hefur gefið út í til-
efni 70 ára afmælisins. Ólafur er rit-
stjóri bókarinnar en hún er skráð af
blaðamönnunum Steinari J. Lúð-
víkssyni og Jóni Birgi Péturssyni.
Bókin er nýkomin út. 250 bls. í stóri
broti og prýdd 240 myndum, þar af
átta blaðsiður litmyndir. Þetta er í
fyrsta sinn, sem iþróttafélag á íslandi
gefur út bók um sögu þess.
í bókinni er rakin saga VALS í 70 ár
ýmist i beinni frásögn eða með
viðtölum við Valsmenn, sem gert hafa
garðinn frægan hjá VAL í gegnum
tíðina. Er þar m.a. greint frá stofnun
félagsins og bernskuárunum, Hlíðar-
endakaupunum, vallar- og mannvirkja-
framkvæmdum, deildaskiptingunni,
gengi félagsins á íþróttasviðinu og hinu
mikla félagslega starfi.
í bókinni er sérstakur kafii um þátt-
töku VALS í Evrópukeppnum í knatt-
spyrnu, handknattleik og körfuknatt-
leik. Ber þar hæst Benfica-leikinn 1968
og úrslitaleikinn i Evrópukeppninni í
handknattleik í Miinchen 1980.
Ennfremur er sérstakur kafli um þá
Valsmenn, sem farið hafa út í atvinnu-
mennsku í þessum íþróttagreinum, þá
Albert Guðmundsson, Hermann
Gunnarsson, Jóhannes Eðvaldsson,
Atla Eðvaldsson, Hörð Hilmarsson,
Ólaf H. Jónsson, Ólaf Benediktsson,
Pétur Guðmundsson, Albert
Guðmundsson (yngri), Magnús Bergs
o.fl. Þá er fjallað um þá Valsmenn,
sem starfað hafa utan keppnisvallarins,
svo sem fulltrúaráðsmenn, stuðnings-
menn, Valskonur, þjálfara, dómara og
stjórnarmenn.
töldu að Kirby kæmi með nýtt líf i
herbúðir Skagamanna. Einn við-
mælandi okkar benti á að nú væri uppi
sama staða og 1974, þegar Kirby kom
fyrst til Skagamanna — þá stóð hann í
málaferlum við Watford, þegar hann
kom til landsins, en nú stæði hann í
málaferlum við Halifax.
Fundað með leikmönnum
Nýja knattspyrnuráðið og George
Kirby funduðu með leikmönnum um
helgina og þá var rætt einslega við þá
leikmenn, sem höfðu jafnvel hug á að
fara frá Akranesi.
Guðjón Þórðarsson, bakvörðurinn
snjalli, hefur tekið þá ákvörðun að
hætta við að gerast leikmaður og
þjálfari Þróttar frá Neskaupstað. Þá
hefur Sveinbjörn Hákonarson, sem
hefur leikið með Grimsas i Svíþjóð,
ákveðið að koma aftur til landsins og
leika með Skagamönnum.
Ekki er enn vitað hvað Árni
Sveinsson gerir, en allt bendir þó til að
hann fari til Kalmar FF. Nýja knatt-
spyrnuráðið sendi Kalmar FF skeyti á
mánudagsmorguninn, þar sem tilkynnt
var að Skagamenn væru ekki rnægðir
með það tilboð sem hefur komið frá
félaginu — í sambandi við Árna
Sveinsson. Óskuðu eftir nýju og betra
tilboði.
Þetta stóð til
Það er ýmislegt á döfinni hjá Skaga-
mönnum, sem ætla sér stóra hluti í
sumar. DV hafði samband við einn
stjórnarmann knattspyrnuráðs
Akranes í gærkvöldi og spurði hann
um breytingarnar á ráðinu.
— Það er algjör tilviljun að þessi
breyting átti sér stað þegar Kirby var
hér. Þetta hefur lengi staðið til, sagði
stjórnarmaðurinn.
DV hefur aftur á móti frétt eftir
Paul Stewart í
landsliði Skota
Paul Stewart, fyrrum leikmaður og
þjálfari ÍR-liðsins í körfuknattleik,
mun leika með Skotum gegn íslend-
ingum i Evrópukeppni landsliða í Edin-
borg 28. apríl. Stewart, sem á ætt sína
að rekja til Skotlands, er einn af fjöl-
mörgum Bandaríkjamönnum, sem
leika með landsliði Skotlands en mikið
er nú um það að landsliðin á Bretlands-
eyjum, hafi Bandaríkjamenn í her-
búðum sínum.
ísland leikur í riðli með írlandi,
Austurríki, Egyptalandi, Skotlandi og
Ungverjalandi ÍEdinborg. -SOS
Evrópukeppni lands-
liða Ckörfuknatt-
leik á Islandi 1984?
KKÍ hefur óskað eftir því að C-keppni EM f ari f ram hér á landi
Körfuknattleikssamband Islands
hefur óskað eftir þvi að Evrópukeppni
landsliða í körfuknattleik fari fram á
íslandi 1984. Þetta gerðist á aukaþingi
Evrópusambands körfuknattleiks-
manna í Róm á Ítalíu um sl. helgi.
Þingið sátu þeir Kristbjörn Albertsson
formaður K.K.Í. og Einar Bollason
landsliðseinvaldur.
— Já, við óskuðum eftir þvi að C-
keppnin færi hér fram 1984, eða B-
keppnin, ef við náum að vinna okkur
sæti í henni í Edinborg, sagði Einar
Bollason i stuttu spjalli við DV i gær-
kvöldi.
Einar sagði að það hefði verið tekið
vel í boð íslendinga og þegar hefðu 10
þjóðir tílkynnt að þær styddu það að
keppt yrði á íslandi. Við þlirfum að fá
sex aðrar þjóðir til að samþykkja það
einnig áður en ákveðið verður í Sviss í
júnf hvar keppnin verður. Við vorum
þeir fyrstu sem buðust til að halda
keppnina — ég hef trú á að Norðmenn
hafi einnig hug á að fá keppnina til sín,
sagði Einar Bollason.
Stórsigur Norðmanna
Norðmenn eru mjög ánægðir með
stórsigur á Portúgal í handknattleiks-
keppninni sem nú stendur yfir i
Búlgariu og ísland átti upphaflega að
vera þátttakandi í. Norðmenn sigruðu
Portúgala með ellefu marka mun eða
28—17. Staðan var jöfn upp i 6—6 en
siðan komust Norðmenn í 15—7 _og
úrslit voru ráðin.
Þetta sýnir talsverða framför hjá
Norðmönnum, eða þá afturför hjá
Portúgal þvi þegar löndin mættust í C-
keppninni fyrir nokkrum árum vann
Portúgal með fimm marka mun. Flest
mörk Noregs gegn Portúgal nú,
skoraði Tore Johannessen 5, Terje
Andersen, Vidar Bauer og Frank
Egeland fjögur mörk hver.
Eftir að ísíand hætti við þátttöku í
keppninni var drengjalið Búlgariu
einnig látið hætta þáttöku. Sex lið þvi
þar sem allir leika við alla.
Englendingar koma
— Við náðum samningum við
Englendinga um að þeir komi hingað
með sitt sterkasta landslið í byrjun
apríl og leiki hér þrjá landsleiki. Það er
skipað nær eingöngu leikmönnum frá
Bandaríkjunum, sagði Einar.
Einar sagði að einnig væri í athugun
hvort hægt væri að taka á móti Finnum
hér um páskana, en þeir vildu ólmir
koma hingað. Ef Danir, sem við erum
búnir að bjóða hingað um páskana,
komast ekki þá koma Finnarnir.
Æfingabúðir í Austurríki
Einar sagði að þá hefðu Hollending-
ar staðfest boð sitt um að islenzka
landsliðið kæmi í æfingabúðir í viku-
tíma til Hollands fyrir Evrópukeppnina
i Skotlandi 28. apríl. Eins og DV hefur
sagt frá buðu Hollendingar íslending-
um í æfingabúðir með þeim K.K.I. að
kostnaðarlausu.
— Þá náðust samningar við íra um
að þeir komi hingað í byrjun janúar
1983 og leiki hér þrjá leiki og Svíar,
Grikkir og Belgíumenn sýndu mikinn
áhuga á samskiptum við ísland næsta
vetur, sagði Einar. -SOS
George Kirby á fullri ferð á Akranesi
Sigurlás skor-
aði 16 mörk
—þegar Týr sló Gróttu út
úrbikarkeppninni
Knattspyrnukappinn Sigurlás Þorleifsson skoraði 16 mörk
fyrir Tý þegar Týrsarar unnu sigur 28:26 yfir Gróttu í 16-liða
úrslitum bikarkeppninnar i handknattleik i gærkvöldi í Vest-
mannaeyjum.
Grótta var yfir 14:13 í leikhléi, en Týrsarar voru sterkari á
endasprettinum. Stefán Halldórsson skoraði 7 mörk fyrir Tý.
Af þeim mörkum sem Sigurlás skoraði, voru 7 úr vítaköstum.
Sverrir Sverrisson skoraði flest mörk Gróttu — 10/3 og
Sigurður Þ. Sigurðsson 5.
-FÓV/-SOS
Sigurlás — sextán mörk i einum leik.
Þorra-pútt á
Jafnframt Þorrablóti Golfklúbbs Reykjavfkur, sem haldið
verður nk. laugardag 30. janúar, verður haldin þorra-pútts-
keppni um kvöldið eða cftir matinv, Húsið verður opnað kl.
19.00 og hægt er að panta aðgöngumiða í Ljósi og orku, sími
84488.