Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1982, Blaðsíða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1982, Blaðsíða 35
DAGBLAÐIÐ & VtSIR. MIÐVIKUDAGUR 27. JANUAR 1982. Sjónvarp Veðrið Gengið Nýir áskrif endur geta enn verið með Eldri áskrifendur sendið inn seðil GETRAUNIN ISUZU GEMINI bfllinn verður dreginn út ÍDAG Hringið í síma 27022 0piðtilkl.22íkvöld 1 Gongiaskráning Nr. 10 — - — Feröa 1 1127. lanúar 1982 kl. 09.16 manna | Einingkl. 12.00 * Kaup . Sala gjaldeyHrl |1 BartdaHkjadollar 9,437 9,463 10,409 1 Sterlingspund 17,619 17,667 19,433 !1 Kanadadoilar ( 7,892 7,914 8,705 . 1 Dönsk króna 1,2431 1,2485 1,3711 1 Norsk króna 1,5914 1,5958 1,7553 1 Ssansk króna 1,6638 1,6684 1,8352 1 Rnnsktmark 2,1164 2,1222 2,3344 1 Franskur franki | 1,5987 1,6031 1,7634 1 Belg. franki [ 0,2396 0,2402 0,2642 1 Svissn. franki 5,0819 5,0959 5,6054 1 Hollenik florina 3,7161 3,7263 4,0989 1 V.-þýzkt mark 4,0721 4,0833 4,4916 1 Itötek Ifra I 0,00760 0,00763 0,00839 1 Austurr. Sch. 0,5813 0,5829 0,6411 1 Portug. Escudo 0,1416 0,1420 0,1562 1 Spánskur peseti 0,0954 0,0957 0,1052 1 Japanskt yen 0,04130 0,04141 0,04555 1 irskt ound 114,316 14,356 15,790 SDR (eérstök i 110,8004 10,8300 drátterréttlndl) ■ 01/09 —.-,--1 SfmsvaH vegna gvogisskrántngar 22190. Ingemann sá konunga og drottningar Danmerkur í mjög rómantísku ljósi og kannski ekki að ástæðulausu — þessi höll í Fredensborg ýtir undir ímyndunaraflið en hún var einn af sumarbústöðum dönsku konungsfjölskyldunnar. HULDUHEIMAR eftir B.S. Ingemann —útvarpssagan kl. 15,10: Ur myndinni „Stalker” eftir Andrei Tarkovsky. Hún er sovfek, en hefur vakið mikla aðdáun vestantjalds. Dönsk skáldsaga um víkinga og huldufólk Rómantísk dönsk skáldsaga um víkinga og huldufólk á dögum Valdimars sigursæla — það er nýja framhaldssagan Hulduheimar. Hún er eftir danska skáldið B.S. Ingemann, sem bjó í Sorö á Suður-Sjálandi og lézt árið 1862 Sagan gerist á Borgundarhólmi. Aðalsöguhetjur eru tveir ungir og glæsilegir menn. Annar heitir Sigurður og er hann alinn upp af huldufólki. Hinn heitir Rudolf og er hann kristinn og á marga bræður í her Valdimars sigursæla. En Valdimar fór margar ferðir að berja á heiðingjum austur með Eystrasalti sem frægt er. Átökin milli kristni og heiðni eru einmitt kjarni sögunnar. Rudolf er ást- fanginn af Mörnu, dóttur höfðingjans Úlfs. Úlfur er hundheiðinn og vill ekki kristinn tengdason. Álfar eru einnig mikill þáttur i sögunni og tilvera þeirra ekki dregin í efa af þeim heiðnu. B.S. Ingemann ritaði margar skáld- sögur um danska fornkonunga. Hann þótti mikill andans maður ásinum tíma og bréfaskriftir hans við Grundtvig eru frægar. íslendingar voru einnig í hópi vina hans. Þegar Jónas Hallgrímsson bjó í Sórey kom hann oft á heimili lngemanns og virðist sem þeir hafi haft mikla ánægju af að ræða saman. Og ýmsir hafa orðið til að þýða kvæði Ingemanns á íslenzku, þ.á m. Matthías Jochumsson, sem til dæmis þýddi sálminn fræga , Fögur er foldin. Er hann nr. 96 i nýju sálmabókinni. Þýðandi sögunnar Hulduheimar er Ingólfur Jónsson frá Prestsbakka. Hann er kennari við Réttarholtsskóla í Reykjavík. Auk þess hefur hann þýtt margar bækur og frumsamið 4 barna- bækur, 3 ljóðabækur og skáldsöguna Láttu loga, drengur. Þá hefur hann skrásett þjóðsögur og ævintýri. —ihh. VAKA — sjónvarp í kvöld kl. 20,35: Hvaða myndir ætti ég að sjá á kvikmyndahátíðinni? Á laugardaginn kemur hefst í Reykjavík kvikmyndahátíð og stendur i niu daga. Þetta er nú gert í fjórða skipti og hefur aðsókn verið mjög mikil. íþættinum Vöku í kvöld mun Guðlaugur Bergmundsson blaðamaður á Helgarpóstinum og áhugamaður um kvikmyndir segja nokkuð frá því, sem á boðstólum verður. „Þetta verða yfirleitt mjög góðar myndir, sennilega sterkari en í fyrra,” sagði Guðlaugur. Það verða sýnishorn úr ýmsum þeirra, til dæmis Járnmanninum, eftir pólska leikstjórann Wajda. Mynd þessi er alveg ný, greinir frá at- burðum sem gerðust í Gdansk og mjög tengjast stofnun Samstöðu. í þessari mynd má sjá Lech Walesa í eigin persónu. Hún verður með islenzkum skýr- ingartexta. Slikur texti verður einnig á tveimur spönskum myndum, einni svissneskri og loks á Marionettunum eftir Ingmar Bergman. Þá verður ein barnamynd með íslenzkum texta, Fatty Finn, frá Ástralíu. Þarna verða myndir eftir leikstjóra eins og Bunuel, Juliette Berto, Eric Rohmer, Margareta von Trotta, Wim Wenders og marga fleiri. Frá Bandaríkjunum kemur myndin, Eraser-head eftir David Lynch, þann sama sem gerði Fila- manninn, og frá Rússlandi kemur myndin Stalker. Hún er eftir Tarkovsky og hefur undanfarið vakið mikla athygli vestantjalds. Væntanlega verða áhorfendur eftir þáttinn nokkru nær um hvaða myndir hver og einn vill sjá. ihh Veðurspá dagsins Veðrið ogþar ' Kl. 18 í -gær. Aþena rigning, Berlin rigning +3, Chicagó létt- skýjað —15, Feneyjar þoka —3, Frankfurt alskýjað +3, Nuuk Islydduél —1, London súld +7, Luxemborg léttskýjað —20, Paris léttskýjað +5, Róm heiðríkt +5, Malaga heiðríkt +15, Vín skýjað '—4, Winnipeg alskýjað — 18. ! Sunnan og síðan suðvestanátt, dálítil snjókoma síðar slydduéi á vestanverðu landinu, þurrt austan- til fram eftir degi en sums staðar llitilsháttar snjókoína eða slydda í nótt. Dálitið frost i byrjun en frost- laust viðast hvar i kvöld og nótt. Kl. 6 í morgun: Akureyri alskýj-' að —3, Bergen skýjað —9, Helsinki isnjókoma —13, Kaupmannahöfn iþokumóða —2, Osló heiðskírt — 14, Reykjavík alskýjað —4, Stokk- hólmur heiðskírt —10, Þórshöfn skýjað —1.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.