Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1982, Blaðsíða 2
2
Er sérkenni
legt og sér-
stakt atvik
—segir Gunnar Arthursson flugstjóri
á Fokkernum sem nauðlenti
á Kef lavíkurf lugvelli
„Eg vil nú ekki gera meira úr þessu
en ástæða er til, því nauðlendingin
tókst eins og bezt verður á kosið og ekki
sá skrámu á nokkrum manni,” sagði
Gunnar Arthursson flugstjóri á
Fokker-vélinni sem nauðlent var á
Keflavíkurflugvelli sl. laugardag.
,,Við heyrðum sprengingu rétt eftir
flugtak þegar við vorum komnir í um
4—5 hundruð feta hæð. Við fundum
strax að vélin sveiflaðist til eins og ger-
ist þegar hún missir afl á öðrum hreyfl-
inum og í sömu andrá kallaði flugturn-
inn á ísafirði í okkur og sagði að kvikn-
að væri í vélinni.
Ég sá strax að það var vinstri hreyf-
illinn sem var bilaður og leit út og sá að
þar var eldur. Það eru tveir slökkvikút-
ar í hreyflinum og eftir að við skutum
úr þeim fyrri dró mjög niður í eldinum
og hann slokknaði alveg við þann
seinni.
Við ætluðum að snúa við og lenda
aftur á ísafirði en þá kom í Ijós að við
gátum ekki komið vinstra hjólinu nið-
ur. Við töldum þá að það væri svo
óráðlegt að reyna lendingu á ísafirði að
við ákváðum að fara til Keflavikur.”
Gunnar sagðist enga skýringu hafa á
því hvað hefði valdið því að sprenging
varð í hreyflinum. ,,Ég get ekki einu
sinni látið mér detta neitt í hug, þetta er
það sérkennilegt og sérstakt,” sagði
Gunnar Arthursson að lokum.
ÓEF
»
Gunnar Arthursson flugstjóri skoðar
teikningu af hreyflinum og bendir á
forþjöppuna en grunur leikur á afl
orsakanna sé að leita þar.
(DV-mynd: Bjarnleifur)
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MÁNUDAGUR 22. MARZ 1982
ALLT í HERBERd
SPEKINGSINS
Góðar gjafir gefa skal.
GRÁFELDUR
Þingholtsstræti 2, Reykjavík Símar: 26540 og 26626
Akranes: Verslunin Amor. Akureyri: Verslunin Kompan. Blönduós: Verslunin Kistan. ísafjörður: Húsgagnaverslun Ísaíjarðar. Keflavík: Verslunin Swing.