Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1982, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MÁNUDAGUR 22. MARZ 1982.
Utlönd
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Þjóðhátiðardagur Afghanistans var í
gær, 21. marz, en hann er um leið
nýjársdagur Afghana. Víða um heim
var hans minnzt með mótmælum vegna
innrásar Sovétmanna í landið í
desember 1979.
Evrópuþingið og Reagan Banda-
ríkjaforseti höfðu lýst gærdaginn dag
Afghanistans þar sem minnzt skyldi
hersetunnar og baráttu ibúa landsins
gegn hinum erlendu kúgurum.
Útvarpið í Kabúl greindi hins vegar
frá því að um 200 þúsund manns hefðu
farið í kröfugöngu í höfuðborginni til
þess að fordæma mótmælin á Vestur-
löndum. Tass-fréttastofan sovézka
sakaði Bandaríkin og Pakistan um að
stuðla að áframhaldandi ólgu í
Afghanistan með stuðningi við hryðju-
verkaöfl. Var því lýst yfir að sovézkt
herlið yrði áfram í landinu þar til
Kabúl-stjórnin væri örugg í sessi.
í útvarpsviðtaii í London sagði
Carrington lávarður, utanríkisráðherra
Breta, að nær allur heimurinn stæði
Sósíaldemókratar
guldu afhroð í
Neðra-Saxlandi
Sósíaldemókratar Helmuts Schmidts
töpuðu miklu fylgi í fylkiskosningum
Neðra-Saxlands um helgina en niður-
stöður þeirra þykja gefa nokkra vís-
bendingu um hvernig Bonnstjórninni
mundi vegna ef til allsherjarkosninga
kæmi í V-Þýzkalandi núna.
Um fjórar milljónir manna gengu að
kjörborðinu í Neðra-Saxlandi og veittu
kristilegum demókrötum brautargengi
til hreins meirihluta.
Talningu er ekki endanlega lokið en
svo langt komið að kristilegum demó-
krötum er spáð 51% atkvæða eða 2%
aukningu frá því 1978. Kristilegir
demókratar hafa farið með stjórn í
Neðra-Saxlandi síðan 1976.
Sósíaldemókrötum er spáð 36% sem
er 6% tap frá því í kosningunum 1978.
Að flestra mati voru það þjóðmálin
fremur en sveitarstjórnarmál sem réðu
mestu um val kjósenda að þessu sinni.
— ,,Það var ekki Karl Ravens (leiðtogi
Hægri flokkar sigruðu
í Frakklandi
Síðari umferð sveitarstjórnarkosn-
inganna í Frakklandi fór fram um helg-
ina og er ljóst að sósíalistar, sem setið
hafa aðeins níu mánuði í ríkisstjórn,
hafa beðið mikinn ósigur um allt land.
Kosið var um alls 2.029 fulltrúa í
hinum ýmsum sveitarstjórnum og
fengu mið- og hægriflokkar 1.154 full-
trúa. Sósíalistar, kommúnistar og aðrir
vinstri flokkar fengu alls 781 fulltrúa.
Óvíst er um 94 fulltrúa, því að talningu
er ekki að fullu lokið.
Einn leiðtoga sósíalista sagði að
hægri flokkarnir hefði skipulagt kosn-
ingabaráttuna betur enda ráðnir i að
hefna sín eftir ósigurinn í þing- og for-
setakosningunum.
Það eru ekki nema níu mánuðir
síðan sósíalistar sigruðu í forsetakosn-
ingunum og hlutu algjöran meirihluta í
þjóðþinginu með yfirburðasigri. —
Þessi úrslit núna munu engin áhrif hafa
á valdahlutföll flokkanna í þjóðþing-
inu.
Jacques Chirac, leiðtogi hægri
manna og Gaullista, sagði um úrslitin:
„Þau sýna vonbrigði kjósenda með
vinstri stjórnina og stjórnin hlýtur að
taka mið af því.” — Flokkur hans jók
fulltrúafjölda sinn úr 180 í 317.
Samband ungra sjáMstcMsmanna hér á Íslandi er meðal þeirra sem minntust dags
Afghanistans með útgáfu veggspjalds með áletruninni: „Afganir hafa engu að tapa
nema hlekkjunum!” — en það sagði raunar Karl Marx um öreigana.
DAGUR
AFGHAN-
ISTANS
saman gegn Sovétríkjunum vegna
Afghanistanmálsins. Það hefði þó
komið til lítils fyrir Afghanistanbúa
enda sjötti hluti þjóðarinnar flúinn úr
landi.
Undir þetta hafa afghanskir útlagar
tekið. Þeir lýsa umheiminum sem
þöglum áhorfendum og kölluðu þá
þögn „banvæna”. „Dagur Afghanist-
ans er aðeins einn dagur ársins, en við
berjumst hvern dag ársins. Þessi eini
dagur kemur því til lítils því að hann
mun ekki breyta stefnu Sovétmanna,”
sagði talsmaður afghanskra uppreisnar-
manna.
Mótmælin vegna innrásarinnar 1979
með fjarvistum bandarískra íþrótta-
manna á ólympíuleikunum i Moskvu
1980 þykja þó hafa haft áhrif á Sovét-
stjórnina. T.d. þykir engum vafa
undirorpið að það hafi einhverju ráðið
um að Sovétmenn gerðu ekki innrás í
Pólland þegar verst lét þar í verkföll-
um og mótmælaaðgerðum.
sósialdemókrata í Neðra-Saxlandi) sem
tapaði. Það var Helmut Schmidt,”
sagði Helmut Kohl, leiðtogi kristilegra
demókrata.
Frjálsir demókratar (litli bróðir í
Bonnstjórninni) hlutu milli 6 og 6,2%
og tryggja sér því auðveldlega fulltrúa á
fylkisþinginu. í kosningunum 1978
náðu þeir ekki hinum tilskyldu 5% sem
þarf til þess að eignast fulltrúa á
þinginu.
En nýi framboðslistinn „Græningj-
arnir” eru sagðir hafa náð ámóta
mörgum atkvæðum og frjálsir demó-
kratar, ef ekki meir.
Willy Brandt, fyrrum kanslari og
leiðtogi sósíaldemókrata vildi kenna
úrslitin því að umræður að undanförnu
um efnahagsmál og kjarnorkuvopn
hefðu spillt fyrir Bonnstjórninni. Eins
vangaveltur um hvort samstarf sósíal-
demókrata og frjálsra demókrata væri
að slitna.
HREINLÆTISTÆKI
Sænsk gæðavara á góðu verði.
10 litir — scndum um land allt.
Grciðsluskilmálar
20% út — cftirst. 6 mán.
RT// JdByggingavörur hf.
Reykjavíkurveg 64. Hafnarfirði, simi53140.
MALLORKA
kyiudngarferð
18.apnl
nin
Til að gefa fólki kost á að komast til Mallorka, munum við bjóða ferð 18. apríl þar sem börn
innan 12 ára aldurs frá frítt með foreldrum sínum.
Þetta er einstakt tækifæri, nánari upplýsingar á skrifstofunni.
Verð frá kr. 7.700.-
mOMK
FERÐASKRIFSTOFA, Iðnaðarhúsinu,
Hallveigarstíg 1, simar: 28388 og 28580.