Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1982, Blaðsíða 7
7
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MÁNUDAGUR 22. MARZ 1982.
Neytendur Neytendur
Eggin eru á anzi misjofnu verfli enda á þeim frjáls álagning.
Töluverður verð-
munur á eggjum
Hingað hringdi maður til að vekja
athygli okkar á misjöfnu verði á
eggjum. Fannst hcnum verðmunurinn
nánast að segja furðuiegur. Dýrust
hafði hann rekizt á egg í Breiðholts-
kjöri á 58 krónur. Á sama tíma kostar
kílóið í Kjötmiðstöðinni 46,50. Maður-
inn sagðist hafa hringt í Verðlagsstofn-
un og sagt frá þessu en þá var honum
sagt að verðlag á eggjum væri frjálst og
því ekkert hægt að gera. Jafnframt var
honum sagt að heildsöluverð á eggjum
væri algengt 44 krónur, þannig að
verðið í Breiðholtskjöri væri ekki óeðli-
legt.
Við höfðum samband við bæði Kjöt-
miðstöðina og Breiðholtskjör og
komumst að því að þetta var rétt verð
hjá manninum. Kjötmiðstöðin gaf það
upp sem skýringu á sínu lága verði að
ntjög hagstæðar pantanir væru gerðar
við Vallá þaðan sem eggin eru. Sagðist
viðmælandi okkar telja að þetta væri
lægsta eggjaverð í bænum.
Eggin í Breiðholtskjöri koma frá
Sætúni sem er eins og Vallá á Kjalar-
nesinu. Afgreiðslumaðurinn sagði þau
alltaf nýorpin.
Því má svo bæta við að eins og
manninum var sagt, er hann hringdi í
Verðlagsstofnun, er verð á eggjum
algjörlega frjálst. Samkeppni ræður
þvi verðinu. Það getur hækkað og
lækkað mjög skyndilega eins og við
höfum orðið vör við. Því er full ástæða
til að hvetja fólk til að kynna sér verð
jafnt á eggjum sem öðrum hlutum.
DS
Blússa lngibjargar hljóp líka:
Kvartaði ekki vegna
slæmrar reynslu
Við sögðum frá reynslu Ásthildar
Magnúsdóttur i blaðinu á þriðju-
daginn. Hún hafði keypt sér blússu í
Buxnaklaufinni. Á blússunni stóð að
Itana mætti þvo úr köldu vatni. Þetta
sagðist Ásthildur hafa gert en eigi að
síður hljóp blússan. Eigandi Buxna-
klaufarinnar sagðist ekki hafa tekið
mark á kvörtun Ásthildar vegna þess
að mikið af svona blússum hefði verið
selt og engar kvartanir borizt.
Ingibjörg Georgsdóttir hafði
samband við okkur á þriðjudaginn og
sagði frá nákvæmlega sömu reynslu.
Hún hafði þvegið eins blússu úr köldu
vatni í tvígang og hafði hún hlaupið í
bæði skiptin. Ingibjörg sagðist hins
vegar ekki hafa lagt í að kvarta vegna
þess að eitt sinn hefði hún orðið fyrir
svipaðri reynslu með flík úr annarri
verzlun. Þá hefði hún kvartað og á
móti sér hefði verið tekið eins og
glæpamanni. Þvi sagðist hún aldrei
myndu leggja í slikt framar. Hún vildi
eigi að síður að koma jtessu hér á
framfæri.
Við sjáum afleiðingarnar glögglega.
Á meðan viðskiptavinir ekki kvarta
halda verzlunareigendur eðlilega að allt
sé í himnalagi. Margir þeirra hafa líka
vanið sig á að taka öllum kvörtunum
með slíkri tortryggni að fólk treystir sér
helzt ekki til að kvarta aftur í bráð. En
auðvitað ætti það að vera verzlunar-
eigandanum i hag að vita af því að
hann er að selja gallaða vöru. Þvi þegar
illa er tekið á móti fólki sern kvartar
gerir það kannski slíkt ekki aftur i
bráð. En óánægja þess með verzlunina
verður langlíf. DS
93 þúsund í annað
Margrét skrifar:
Ég sendi hér inn upplýsingaseðil í fyrsta
sinn og Finnst að þurfi að útskýra hann
aðeins. Liðurinn annað er alveg hrika-
legur (93.185,10 kr.) en eðlilegur samt.
Við vorum að kaupa okkur stærri íbúð
og borguðum 80.000 í henni. Svo koma
fasteignagjöld, afmælisgjöf, víxill, ein
ballferð og svo framvegis.
A seðlinn skrifaði ég fjölda heimils-
fólks — 4. En maðurinn minn er sjó-
maður og því sjaldan heima, svo 3 er
kannski réttara.
Svar:
Við þökkum M argréti fyrir bréfið sem
við styttum reyndar ögn. Við bjóðurn
hana velkomna i hóp þeirra sem halda
bókhald með okkur. Ekki veitir víst af
að halda bókhald og fylgjast með
hverri krónu þegar verið er að kaupa
íbúð. Þetta með sjómennina vefst fyrir
fleirum en þér. En einhvern tima hljóta
þeir blessaðir að vera í landi og mér að
minnsta kosti finnst rétt að telja þá
nteð.
DS
p ósl
.eo'
NÝSENDING
Teg. 10021
Uturgrátt
Nr. 36-41
Verð 329,60
Teg.2110
Litur: vinrautt
Stærðir: 36-41
Verö 248,75
Teg. 11031
Utír svart
oða marinublátt
Nr. 36-41
Verð272,95
Teg. 86010
Utur: hvrtt/gyOt
Nr. 36-41
Verð275,75
Teg. 99019
Utír: blétt, brúnt oöa
fíöskugrænt leöur
Nr. 36-41
Verð297J9
Teg. 21856
UturgyBt
Nr. 36-41
Verð 217,70
Teg. 86002
Lrtur: hvrtt/gylft leöur
Nr. 36-41
Verð275,75
Teg. 86000
L/tur: marinu btótt
/hvitt leöur
Verð275,75
Teg. 715
Lrtur: kakipeari leður
Nr. 36-41
Verð 318,60
Teg. 7513
Litur: brons leður/kopar
Nr. 36-41
Verð278,80
Teg. 2016 Teg. 2006 Teg 2007
L/tur: svart Utunbrúnt L/tur: dökkbtótt
Nr. 36—40 Nr. 36—41 Nr 35—41
Verð248,75 Verð248,75 Verð 248,75
Teg. 10036
Litur: hvrtt
Nr. 36-41
Verð 329,60
Teg. 10023
L'ttír: hvrtt eða svart
Nr. 36-41
Verð 329,60
Teg. 10029
Litur: h vrtt/gyHt
Nr. 36-41
Verð296,60
Teg. 11030
Lrtur.rautt
Nr. 36-41
Verð272,95
Tag. 12023
Litír: svart eða btótt
Nr. 36-41
Verð292,15
Teg. 86001
Utur: rautt/hvrtt
Nr. 36-41
Verð275,75
Teg. 86013
Utur. gu/t/hvrtt leður
Nr. 36-41
Verð275,75
Teg. 330
Litur: fíöskugrænt leður
Nr. 36-41
Verð278,75
Teg. 21935
Lrtur: brúnt/gyUt
Nr. 36-41
Verð 197,70
Teg. 216
Litur: brons leður
Nr. 36-41
Verð217,70
Teg. 21898
Lrtur: h vrtt/gyNt
svart/gyHt
Nr. 36-41
Verð 217,70
<
Skóverzlun Þórðar Péturssonar
Laugavegi 95. — Simi 13570.