Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1982, Blaðsíða 5
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MÁNUDAGUR 22. MARZ 1982.
Kallaði til
þeirra á sama
augnabliki
—segir f lugumf erðarst jórinn á ísafirdi
„Ég var að fylgjast með vélinni í
flugtaki og sá þá að kviknað var í og
kallaði það til þeirra á sama augna-
bliki,” sagði Grimur Jónsson flug-
umferðarstjóri á ísafirði, í samtali við
DV.
„Flugstjórinn virðist hafa skotið á
slökkvitækjunum um leið því eldurinn
slokknaði mjög fljótt. Síðan flaug
hann einn hring hér í firðinum með
annað hjólið niðri og kom greinilega
ekki hinu hjólinu niður. Hann fór
síðan hér út fyrir fjörðinn og athugaði
áframhaldandi aðgerðir. Hann ákvað
skömmu síðar að halda áfram til Kefla-
víkur á öðrum mótornum.
Við létum Flugöryggisþjónustuna
vita um leið og þetta gerðist. Við
kölluðum einnig út slökkvilið, sjúkra-
bíl og lækna og allt það lið var komið
hingað innan 15 mínútna sem verður að
teljast mjög gott. Það þurfti að vísu
ekki á því að halda en það var auðvitað
ekki vitað fyrirfram,” sagði Grímur
Jónsson.
-ÓEF.
Laugardagurinn var óhappadagur
íflugheiminum:
27 fórust
í lllinois, 26
í Indónesíu
en 25 björg-
uðust á íslandi
Þrjú stór flugóhöpp voru i
heiminum á laugardag, í Illinois i
Bandaríkjunum, á Indónesíu og á
íslandi. í aðeins einu þessara slysa
sluppu allir lífs af. Það var á íslandi.
I hinum tveimur fórust allir nema tveir.
27 manns fórust þegar Beoing 707
þota frá bandaríska hernum hrapaði
nálægt Woodstock í Illinois. Enginn
komst lífs af úr þvi slysi.
26 manns fórust þegar þota af
gerðinni Fokker Fellowship, F—28,
brotlenti nálægt Branti-flugvelli í
Jakarta í Indónesiu. Tveir komust lífs
af.
25 manns björguðust hins vegar
þegar Fokker-véí Flugleiða nauðlenti á
Keflavíkurflugvelli.
Það er einkennileg tilviljun að öll
gerast þessi flugslys í ríkjum með
upphafsbókstafnum I, tölurnar eru
nær því þær sömu. 27 fórust í Illinois,
26 i Indónesiu en 25 björguðust á
íslandi, og síðast en ekki sízt gerast
slysin öll á sama degi.
þrekhjól
fyrir þá sem
er annt um heilsuna
Kjörið til líkamsræktar heimavið. Stöðugt og sterkt - mjúkt og breitt sæti,
öryggishlífar á keðju og hjóli - stillanlegt stýri og sæti -
stillanlegur fótstigsþungi - hraðamælir og snúnings-
teljari - tekur lítið pláss. Varahlutaþjónusta.
Verðkr. 1.794.-
Sérverslun i meira
en hálfa öld
20 mínutur á dag...
KALKHOFF þrekhjól er ódýr
og góð lausn fyrir þá sem
annt er um heilsuna.
K)óaooJ^w
PEYSUSETT
Verðkr. 590.-
Litir; rósa-hvítt.
Verðkr.530,-
Litir: gult-rautt-blátt.
KJÓLL
OGKÁPA
KJÓLLOG JAKKI
Verðkr. 960,-
Verð kr. 1.190.- Litir; drapp-rautt-blátt
uur:
KJÓLL
OG VESTI
Verðkr. 990.-
Litir: drapp-hvftt.
hvftt-rautt-blátt.