Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1982, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1982, Blaðsíða 22
MOT&fg&LA Alternatorar Haukur og Ólafur Ármúla 32 — Sími 37700. Styrkir til háskólanáms í Austurríki Austurrískt stjórnvöld bjóða fram í löndum scm aðild eiga að Evrópuráð- inu nokkra styrki til háskólanáms eða rannsóknarstarfa í Austurríki á há- skólaárinu 1982—83. Styrkirnir eru ætlaðir stúdentum sem lokið hafa a.m.k. þriggja ára háskólanámi eða til framhaldsnáms eða rannsóknar- starfa að loknu háskólaprófi. Umsóknir skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, fyrir 2. apríl nk. Sérstök umsóknareyðublöð og nánari upplýs- ingar fást í ráðuneytinu. Mcnntamálaráðuncytið 12. marz 1982. PÓSTSEN DUM Nýrveitingastaður: Svarta pannan á horai Tryggvagötu og Pósthússtrætis Nýtt veitingahús, Svarta pannan, var opnað sl. föstudag á horni Pósthús- strætis og Tryggvagötu. Svarta pannan er hraðréttastaður og geta gestir einnig tekið rétti með sér og heimsendinga- þjónusta stendur til boða. Matreiðslu- meistari er Þórður Sigurðsson sem hef- ur í ellefu ár verið yfirmatreiðslumeist- ari á Aski. Staðurinn sem tekur tæp- lega 70 manns í sæti er hannaður af Teiknistofunni Arko, en Edda Gunnarsdóltir annaðist lokafrágang. Sérstök barnaaðstaða er á Svörtu pönnunni og veitingastaðurinn er einn- ig hannaður með þarfir fatlaðra í huga. Sem fyrr segir er Svarta pannan hraðréttastaður og leggur áherzlu á fáa rétti sem bornir eru fram í körfum. Nautasteik kostar t.d. 55 kr., kjúkling- ur 35 kr., djúpsteiktur fiskur 12 kr. og smáborgari 22 kr. Meðlæti eins og kartöflur, kosta 12 kr., sósa 8 kr. Gos kostar 9 kr. og kaffi 7 kr. Tólf manns starfa á Svörtu pönn- unni sem er opin kl. 11-23.30. -gb Breytingar á kosningaaldri: — segirstjórnSUS „Stjórn SUS telur að flutningur um- ræddrar tillögu sýni svo að ekki verði um villzt ráðleysi og sleifarlag Stjórnar- skrárnefndar. . . og bendir á hversu furðulegur þáttur formanns þingflokks Alþýðuflokksins er í þessu máli, að j fara með þessum hætti á bak við nefnd- ina sem hann á sjálfur sæti i.” Þetta er brot úr ályktun sem stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna gerði á fundi sínum fyrir skömmu um tillögu þá er nú liggur fyrir Alþingi um breytingar á kosningaaldri. Stjórnin ítrekaði stuðning sinn við lækkun kosningaaldurs í 18 ár, en telur jafn- framt að umrædd tillaga sé ófullnægj- andi og sýndarmennskan einber, auk þess sem hún mismuni kjörgengi til Al- þingis annars vegar og sveitarstjórna hins vegar. -JB RYKSUGUR Haukur og Úlafur Atmúta 32-Sími 37700. BENSÍNDÆLUR FYRIR Golf, Passat 1100—1300 Volvo 144, 244 VW 12—13, 1302—15—1600 Vauxhall Viva M. Benz 200—280 Fiat 125—7—8— 31—32 Simca 1100-1307 Ford Cortina, Taunus, Escort, Fiesta Skoda — Citroen G.S. DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MÁNUDAGUR 22. MARZ 1982. Starfsfólkið á hinum nýja veitingastað, Svörtu pönnunni, á horni Tryggvagötu og Pósthússtrætis. Þórður Magnússon yfir- matreiðsiumaður lengst til vinstri. (DV-mynd Einar Ólason). TUGIR u‘?“"d“ n 1 afprjónagarm, hundruð litbrigða. A|Ý sendingaf ■ Jacobsdalsgarni, Angorina Lyx Haprun. NYJUNG Barnagarn frá Htibner Wohle, Þýzkalandi. Aukþess höfum við mikið úrval af borðdúkum í öllum stœrðum og verðflokkum. Lítið inn - eða hringið. Við póstkröfusendum daglega. Sjón or sögu ríkari. Vorið volkomin HOF Ingóifstræti 1 (gcgnt Gamla bíói). Sími 16764. Hlutafé Verzlunarbankans aukið um 50% á þessu ári — stefnt að því að opna fl jótlega í Húsi verzlunarinnar Heildarinnlán Verzlunarbankans jukust á siðastliðnu ári um 14 milljónir eða um 75,5%. Þetta kom fram á aðal- fundi bankans sem haldinn var fyrir skömmu. Aukning innlána er fyrst og fremst rakin til raunhæfari vaxtastefnu og styttingar á binditíma verðtryggðra lána. Útlán jukust á sama tíma um 110 milljónir eða 85,18%. Samsetning út- lána hefur breytzt nokkuð. Þannig hef- ur hlutur víxla og yfirdráttarlána minnkað úr 50,9% i 35%, en skulda- bréfalán og vísitölutryggð lán hækkuðu úr 46,7% í 62,6%. Mest af lánsfé bankans fer enn til atvinnuveg- anna, verzlunar og viðskipta, en lán til einstaklinga hækkuðu verulega og námu í árslok 33% af heildarútlánum. Lánveitingar stofnlánadeildar bank- ans, Verzlunarlánasjóðs, jukust um 99,5% á árinu. Hefur lögum um sjóð- inn nú verið breytt svo heimilt er að lána til allt að 25 ára, í stað 12 áður. Bundið fé í Seðlabanka jókst um 94<7o á árinu 1981 og nam í árslok 68,2 milljónum. Aukin innlánsbinding þrengdi mjög að útlánagetu bankans og rýrði lausafjárstöðu hans til muna. Rekstrartekjur Verzlunarbankans hækkuðu um 74,9% á árinu, en rekstr- argjöld um 78,6%. Eigið fé bankans jókst um 9,2 milljónir frá fyrra ári og er það nú 11,4% af heildarinnlánsfé. Nýkjörið hankaráö Verzlunarbankans, talið frá vinstri: Árni Gestsson, Por- valdur Guðmundsson, Sverrir Norland, formaður, Guðmundur H. Garð- arson og Leifur ísleifsson. Er það með því hæsta sem gerist í bankakerfinu. Á aðalfundi var ákveðið að auka hlutafé úr 12 milljónum í 18 milljónir króna á þessu ári og jafn- framt að greiða hluthöfum 4% arð. Starfsemi Verzlunarbankans í Húsi verzlunarinnar mun hefjast á þessu ári og verður í fyrstu komið upp afgreiðslu á fyrstu hæð hússins. Fyrst um sinn verða höfuðstöðvarnar áfram í Banka- strætinu. Á aðalfundi lét Pétur O. Nikulásson stórkaupmaður af stjómarstörfum og formennsku í Verzlunarbankanum, en við sæti hans tók Sverrir Norland, verkfræðingur. Tillagan sýnir ráðleysi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.