Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1982, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1982, Blaðsíða 21
29 DAGBLAÐIÐ&VÍSIR. MÁNUDAGUR 22. MARZ 1982. Þessi lilli maður er ekki með i hraðáts- keppni GÓiuC.™?rans "K Sunddeildar Ármanns en hann er sýnilega með það sem þar er á boðstólum... Sporð- renndi skammt- inumá tveim mínútum Ungur maður, Ari Guðmundsson að nafni, er líklegastur þessa stundina til að ná sér í nýjan Suzuki bil í hraðát- keppni Góðborgarans að Hagamel 67. Ari hefur náð bezta tímanum i keppninni til þessa. Hann sporðrenndi þrem góðborgurum, einum skammti af frönskum kartöflum og einu glasi af Coca Cola á liðlega tveim mínútum. Það er vel af sér vikið en þó eru menn á því að gera megi betur. Er saj>t að sumir hafi tekið upp séræfingar og aðrir dundi við að finna upp ný „leik- kerfi” sem geti sparað nokkrar sék- úndur. Til mikils er að vinna í þessari hrað- átskeppni sem Sunddeild Ármanns og Góðborgarinn standa fyrir. Ein 12 verðlaun eru i boði, þar á meðal nýr Suzuki bill. Keppninni verður haldið áfram í kvöld og fimmtudag á milli kl. 20 og 22 um kvöldið en henni lýkur sunnudaginn 28. ntarz og þá verða verðlaun afhent. -klp- SÆNSK-ÍSLENSKA kynnir nýtt umboð: hairow SKYRTUR harrow SKYRTUR til afgreiðslu í apríl SÆNSK-ÍSLENSKA SUNDABORG 9 REYKJAVÍK Símar: 83599 og 83899 ■ . ■ . —ogtakmarka verðurverð- bótagreiðslur verulega Þorsteinn Pálsson f ramkvæmdastjóri Vinnuveitendasambandsins: Enginn grundvöllur fyrir kauphækkunum „Við höfum algerlega hafnað kröfu Alþýðusambandsins um 13% grunnkaupshækkanir,” sagði Þorsteinn Pálsson framkvæmda- stjóri Vinnuveitendasambands íslands i samtali við DV i morgun. ,,Það bendir allt til þess að þjóðar- tekjur á mann muni minnka á þessu ári samkvæmt okkar eigin útreikn- ingum og við slíkar aðstæður er enginn grundvöllur fyrir kauphækk- unum. Þar að auki hefur ríkisstjórnin sett sér það efnahagslega markmið að verðbólgan verði komin niður í 30% í lok ársins og ef það á að nást má ekki hækka laun og auk þess verður að takmarka verðbótagreiðslur rnjög verulega.” VSÍ fór fram á það á fyrsta samn- ingafundinum i gær að Þjóðhags- stofnun athugi m.a. hver verði þróun þjóðartekna á mann á þessu ári og hverjar verði horfurnar í þvi efni fyrir árið 1983. Einnig var farið fram á að athugað yrði hver yrðu áhrif þess á verðlagsþróun og atvinnustig ef allar almennar kröfur og sérkröfur ASÍ og landssambanda þess yrðu samþykktar. „Ástæðan fyrir því að við óskum eftir þessu er sú að við viljum að það liggi fyrir upplýsingar um þetta frá hlutlausum aðila sem samningsaðilar geti treyst. Þessi atriði skipta mjög miklu varðandi kjarasamningana og mat á hvaða möguleikar eru fyrir hendi og verða því að liggja fyrir þegar samningarnir eru gerðir,” sagði Þorsteinn Pálsson. -ÖEF. Þorsteinn Pálsson framkvæmdastjóri Vinnuveitendasambandsins. Skákþing íslands í Norræna húsinu Stjórn Skáksambands íslands hefur ákveðið að Skákþing íslands verði i Reykjavík dagana 1. til 15. apríl næstkomandi. Teflt verður í landsliðsflokki, áskorendaflokki og opnum flokki en keppni í drengja- og telpnaflokki verður í lok maí. Keppnin i landsliðsflokki verður háð í Norræna húsinu. Tólf skák- menn eru i landsliðsflokki. Fyrstu verðlaun fyrir sigur i honum nema fimmtán þúsund krónum en peninga- verðlaun verða veitt fyrir fjögur efstu sætin. Auk þess verða veitt fimm hundruð króna fegurðarverðlaun fyrir beztu skák mótsins. Sigurvegari í landsliðsflokki hlýtur sæmdarheilið „Skákmeistari íslands 1982”. Keppnin í áskorendaflokki og opnum flokki verður í húsnæði Tafl- félags Reykjavikur að Grensásvegi 46. Öllum er heimil þátttaka í opna flokknum en þátttökugjald er 200 krónur fyrir fullorðna. f landsliðs- flokki tefla allir við alla en níu um- ferðir samkvæmt Monrad-kerfi verða i öðrum flokkum. -KMU. Fiskiðn ’82 26.—28. marz FYRSTA SÝNING SINNAR TEGUNDAR Á ÍSLANDI. FISKIÐN, FAGFÉLAG FISKIÐNAÐARINS, MUN NÆSTU HELGI STANDA FYRIR SÝN- INGU Á TÆKJUM OG BÚNAÐI FYRIR FISK- IÐNAÐ. 27 FYRIRTÆKI SÝNA MARGHÁTTAÐAR NÝJ- UNGAR í RÚMGÓÐUM SALARKYNNUM SEM ER HIN NÝJA 1000 FERMETRA FRYSTI- GEYMSLA BÆJARÚTGERÐAR REYKJAVÍKUR VIÐ VESTURHÖFN 41 REYKJAVÍK. ALLT ÁHUGAFÓLK UM FISKIÐNAÐ ER VEL- KOMIÐ Á FISKIÐN ’82. MISSIÐ EKKI AF EINSTÆÐRI SÝNINGU. F/SK vnÁ/ fagfelag FISKIÐNAÐARINS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.