Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1982, Qupperneq 7

Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1982, Qupperneq 7
DV. ÞRIÐJUDAGUR 27. JtJL! 1982. Verð á þremur kjötréttum á sex veitingahúsum athugað: Að meðaltali 42% mismunur á hæsta og lægsta verði Fyrir 250—300 krónur má fá úrvals- kjötrétt á þeim veitingahúsum borgar- innar sem vínveitingar hafa. Þetta eru niðurstööur lítillar könnunar sem DV gerði á verði á turnbauta, piparsteik og kjúklingum á sex veitingastöðum í Reykjavík; Aski, Esjubergi, Naustinu, Lækjarbrekku, Torfunni og Rán. Tölu- verður munur, eða að meðaltali 42%, er á verði milli þess staðar sem er ódýrastur og þess sem dýrastur er. Þannig var piparsteik 59% dýrari á Naustinu en á Aski, kostaði 315 kr. á fyrrgreinda staðnum en 198 kr. á þeim síðamefnda. Tumbauti kostaði 305 kr. á Naustinu en 212 kr. á Aski. Mismunur 44%. Loks kostaði kjúklingur 169 kr. á .Esjubergi en 210 kr. á Lækjarbrekku ogNaustinu. Mismunur þar var24%. Aðeins var kannað verð á þeim stöð- um sem í svipuðum klassa má telja og á öllum stöðunum eru vínveitingar, a.m.k. á kvöldin og þjónað til borðs. Ekki var kannað verð á dýrari stöðum, eins og t.d. Amarhóli, Hótel Holti og Grillinu á Hótel Sögu. Samanburðurinn verður greinileg- astur á eftirfarandi töflu. Tekið skal fram að turnbauti er ekki á matseðlinum á Esjubergi. Þá er aöeins hægt að fá bamaskammt af kjúklingi á Torfunni og kostar skammturinn93kr. Yfirleitt er borið fram með tum- bautanum og piparsteikinni bakaðar kartöflur (eða franskar), grænmeti, salat, sósa og sveppir, en áberandi er að meira er lagt í matinn á dýrari stöð- unum. K júklingurinn var matreiddur á svipaðan hátt á öllum stöðunum, enda munar minnstu á verði á kjúklingum á milli staða. -SA. Askur Lækjarbr. Torfan Rán Naust i 3sjub. kr. kr. kr. kr. kr. kr. Piparsteik 198 276 262 284 315 217 Turnbauti 212 295 257 259 305 — Kjúklingur 178 210 - 190 210 169 Minnsti verðmunnr var á miili staða á kjúklingamáitlðinnl eða 24%. og viólegubunaó fæióu í Sportval Sportval | Laugavegi 116 Sími 14390 HER MRDU PLÖTUNk- oglátt’ana snúast í LIST færðu plötur sem snúast. Pop — rokk — klassik — pönk — jass — nýbylgja — country — þjóðlög — disco — íslenskar og erlendar. Semsagt hjá okkur færðu allar þessar svörtu, kringlóttu með gatinu á, þú veist. Og ekki má gleyma límmiðunum sem fylgja með í kaupunum. Kíktu inn og hlustaðu á úrvalið, við erum líka með toppgræjur — Goodmans — SME — Revox — QUAD — Sendum í póstkröfu samdægurs. Hljómplötuverslunin usr Hverfitónar Miðbæjarmarkaöurinn Aðalstræti 9 101 Reykjavík sími 22977 Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.