Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1982, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1982, Blaðsíða 6
6 DV. FIMMTUDAGUR 29. JULl 1982. ___Neytendur_Neytendur_Neytendur_Neytendur_ „Aðlaðandi erfólkið ánægt" Öskubuskutilfinning getur náð tökum á öllu venjulegu fólki — mis- jafnlega oft og sterkt. Viti einhver ekki við hvaö er átt með þessari sögufrægu tilfinningu þá skal þaö útskýrt nánar. Þegar litið er í spegil blasir viö stór bóla á nefinu, húðin grá og slöpp, háriö úfið og rytjulegt og spegilmyndin í heild ákaflega þreytuleg. I ævin- týrinu um öskubusku kom álfkonan með töfrasprotann sinn og breytti útliti og högum Öskubusku. Svona álfkonur fyrirfinnast ekki í dag — og þó. I síöustu viku lá leiö mín inn að Suðurlandsbraut 2 — Hótel Esju. Þar á jarðhæðinni hafa að undanförnu farið fram miklar breytingar á hluta hús- næðisins. Þar sem áður var bílaverk- stæði er öðru vísi um að litast, eins og töfrasprota hafi verið veifað. Um hina glæsilegu vistarverur svífa svo nútima Þetta er allt starfsliðið „Hjá Dúdda og Matta”. álfkonur og álfar. Allar Öskubuskur sem inn koma breytast í prinsessur. Svo koma líka prinsessur, fallegar og snyrtilegar, en þær fara út eins og drottningar. Sömu erinda koma karl- menn þarna inn og fara út meö sama árangri. Kjörorð þeirra sem þarna starfa er, ,aðlaðandi er fólkið ánægt”. Þarna á jarðhæð Hótel Esju starfa hárgreiðslumeistarar og snyrtifræð- ingar. Innan skamms verður opnuð rakarastofa líka á sama stað. Konur og karlar geta fengið þarna hina beztu þjónustu á sviði hársnyrtingar og aimennrar snyrtingar. Höfuðpaurar hársnyrtingar á svæðinu eru þeir Matti og Dúddi, sem báöir hafa rekið hárgreiðslustofur í mörg ár, Dúddi síðustu árin að Suöur- landsbraut 10 en Matti á stofu sinni í Kópavogi. Snyrtifræðingarnir Erla Gunnars- Snyrtifræðingarnir, Ólöf Wessmann og Erla Gunnarsdóttir, í snyrti og sólbaðs- stofunni „Sól og snyrting”. DV-myndir: Bj.Bj. dóttir og Olöf Wessmann hafa stofnað snyrti- og sólbaðsstofuna „Sól og snyrting” í þessum glæsilegu húsa- kynnum. Valdar snyrtivörur eru á boð- stólum og leiðbeiningar í vali tegunda veittar viðskiptavinum — sem fara út aölaðandi og ánægðir. -ÞG. Neytendur Umsjón: Þórunn Gestsdóttir og Ragnhildur Ragnarsdóttir Kaloríum fórnað fyrir krabbamein: Hættulega mikið cyklamat i sykurlausum gosdrykkjum drykkírnir eingöngu ætlaðir sykursjúkum Hamuóknir ó dýram þykja sýna fram á að cyklamat geti valdið krabbameini, sé þess neytt i mjög miklum mæli. Allir sykurlausu gosdrykkirnir á tslandi innihalda cyklamat en þessir drykkir eru eingöngu ætlaðir sykursjúkum sem sjúkdóms síns vegna þurfa á cyklamati að balda. Gullfallegar stúlkur, grannar og langleggjaðar drekkandi sykurlausa gosdrykki. Hver kannast ekki við þessa mynd frá auglýsingum gos- drykkjaframleiðenda? Hitt vita sennilega alltof fáir aö ef stúlkurnar eru ekki með sykursýki eru þær að innbyrða hættulega mikið magn af cyklamati. Sé cyklamats neytt í mjög miklum mæli getur þaö orsakað krabbamein. I öllum sykur- lausum gosdrykk jum, sem seldir eru á Islandi og ætlaðir sykursjúkum, er magn cyklamats tæplega 1600 milli- grömm í kg. Er það 1400 mg meira en leyfilegt er að hafa í gosdrykkjum sem ætlaðir eru þeim sem ekki hafa þann sjúkdóm. Hins vegar eru engar merkingar á flöskunum sem segja almenningi hvort óhætt sé að súpa á innihaldinu. „Ætlað sykursjúkum” stendur aöeins á öllum gosdrykkja- flöskunum en látið er hjá líða að vara aðra við límonaöinu. Samkvæmt staðlaskrá Alþjóöa heilbrigðisstofnunarinnar, WHO og Matvadastofnunar Sameinuðu þjóð- anna, FAO, er lagt til aö dagsneyzla á cyklamati sé á bilinu 0—4 milli- grömm fyrir hvert kg af líkams- þunga viðkomandi neytanda. Ef neytandinn er t.d. 75 kg aö þyngd skal neyzla hans vera á bilinu 0—300 milligrömm á dag. Á sama hátt er lagt til að neyzla á sakkaríni sé á bilinu 0—2,5 mg fyrir hvert kg líkamans. Hér á landi eru nú framleiddar fimm tegundir af sykurlausum gos- drykkjum sem ætlaðir eru sykur- sjúkum. Eru það Tab, Fresca, Diet Pepsi, sykursnautt Spur Cola og sykursnautt High Spot. Allir þessir drykkir innihalda 1600 mg af cykla- matiáhvergkg. Sakkarín er ekki notað í gosdrykki ætlaöa sykursjúkum á Islandi. Aö sögn Hrafns Friðrikssonar, forstöðu- manns Heilbrigðiseftirlits rikisins, hefur þó leikið grunur á því aö einn gosdrykkjaframleiðandi bæti sakka- ríni út í cyklamatið en ekki hefur tekizt að sanna það. Er ástæða sú aö mælingar eru ekki nægilega nákvæmar til að hægt sé að greina með vissu hvort sakkarín sé í cykla- matinu. Blöndun af þessu tagi er stranglega bönnuö á Islandi. Tilraunir hafa verið gerðar á nei- kvæðum áhrifum mikillar neyzlu cyklamats á dýr og leiddu þær í ljós að cyklamat er krabbameinsvald- andi. Einkum virtist dýrunum hætt við aö fá krabbamein í þvagblöðru. Tekið skal skýrt fram að dýrunum voru gefnir afar stórir skammtar af DV-mynd: Þó.G. cyklamati á hverjum degi. Þá skal einnig á það bent að forsvaranlegt er taliö að sykursjúklingar neyti gos- drykkja er innihalda mikið af cykla- mati, enda þurfi þeir á þessu efni að halda. , I íslenzkum reglugerðum er sér- staklega tekið fram að merkja skuli gosdrykki, ætlaða sykursjúkum, á áberandi hátt. Skulu stafir ekki vera minni en 3 millimetrar að stærð. Þá skal standa utan á flöskunum „ætlaö sykursjúkum”. Á flestum fyrr- nefndum fimm gosdrykkjateg- undum var þessari reglugerð fram- fylgt en merkingar á Fresca eru lélegar. Ekki stendur stafkrókur utan á flöskunum um hvaða efni séu í vökvanum en á tappanum stendur híns vegar að gosdrykkurinn sé ætlaöur sykursjúkum og innihaldi 1600 mg af cyklamati á kg. Þetta eru þó alls ófullnægjandi merkingar þar sem stafimir á töppunum eru litlir og töppunum er hent um leið og gos- drykkjarins er neytt. Neytendur eiga skýlausa kröfu á því aö aðrir en sykursjúkir séu var- aöir við að neyta sykurlausra gos- drykkja. Varla er hægt að takmarka sölu á drykkjunum í verzlunum við þá sem hafa þann hættulega sjúk- dóm. -SA.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.