Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1982, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1982, Page 16
16 Spurningin Ertu ánægð(ur) með veðrið það sem af er sumri? Guftmaun Sveinsson, vélstjóri: Hef lítiö séð af því þar sem ég er sjómaöur og þar að auki vélstjóri. Tel þó aö viö höfum verið frekar heppin með veðriö þetta sumarið. Rúnar Grétarsson, nemi: Já, já. Þaö er ég. Finnst þetta sumar hafa veriö frekar venjulegt. Eiginlega hvorki slæmt né gott. En oft hafa komið mjög góöir dagar. Jóel Jakobsson, ökukennari: Eg var mjög ánægöur með vorið. Það sem af er sumri hefur einnig verið gott. Megum ekki vera of kröfuhörð. Hugrún Helgadóttir: Nei, ég er mjög óánægð. Engan veginn nógu mikil sól. Þó heldur ekki mikii rigning. Held að veðrið hafi fyrst og fremst verið fyrir gróðurinn en ekki okkur mannfólkið. Sigriðnr Jakobsdóttir, hjókrunar- frcðingur: Fannst veðrið vera mjög gott í júní. En júlí hefur valdið mér vonbrigðum. Vonast eftir sem mestri sól á næstunni, enda er ég að fara í sumarfrí nú í ágúst. Pilina Gnnnarsdóttlr, vtnnur á rann- sóknarstofu: Nei, þaö er ég ekki. Er í sumarfríi þessa dagana og fæ bara hvern rigningardaginn á fætur öðrum. DV. FIMMTUDAGUR 29. JULI1982. Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur „Eins og aikunna er, þá eru Þingveilir sá staður sem íslendingar eru hvað stoltastir af og kjósa yfirleitt að sýna útlendingum, er hingað koma, fyrr en aðra staði.” „Koma þarfí veg fyrir aö sKk hneisa endurtaki sfe" Margrét K. Jónsdóttir skrifar: „Island veröur aldrei ferðamanna- land.” Þannig voru viðbrögð fullorðins Islendings er dvalið hefur langdvölum erlendis er hann heyrði af reynslu minni og samferöamanna frá Þingvöll- um um síðustu helgi. Eins og aikunna er, þá eru Þing- vellir sá staður sem Islendingar eru hvað stoltastir af og kjósa yfirleitt að sýna útlendingum, er hingaö koma, fyrr enaörastaði. Fór með bandarískan frænda minn til Þingvalla Þannig var því líka fariö um mig, er ég þurfti að sýna frænda mínum einum bandarískum eitthvað af landi okkar. Eg ákvað að aka með hann fyrst til Þingvalla, bjóða honum í mat í Valhöll og sýna honum síðan nokkra aðra sögustaði á Suðurlandi. Á hverju sumri leggja þúsundir Islendinga upp í svona ökuferð um Suðurland. Oft í þeim tilgangi að sýna útlendum gestum það markverðasta af landinu og sjaldnast er Þingvölium sleppt úr slíkum ferðum. Ýmislegt girnilegt TUefni þess aö ég set þessar línur á blað eru þau miklu vonbrigði sem ég varð fyrir í ValhöU og sú skoðun mín, að þar sé hreinasta nauösyn á að grípa til róttækra ráða tU aö snúa við óheUlaþróun. Við vorum þrjú saman fullorðin á- samt tæplega þriggja ára dreng sem settumst að borðum í Valhöll. Er við Utum á matseðiUnn sáum við strax, aö ýmislegt girnilegt var á boðstólum. En verðlag sýndist okkur mjög svipað og þaö sem gerist á dýrustu og beztu veitingahúsum í Reykjavík. Þegar verð er hátt á maður von á bæði góðum mat og úrvals þjónustu. Undan matnum var heldur ekki neitt að kvarta. Hann var prýðUegur. Þjónustan var líka vinsamleg, þrátt fyrir langa bið vegna margmennis. Stanzlaus straumur drukkins fólks Það sem hins vegar eyðilagöi mál- tíðina gjörsamlega fyrir okkur og fjöl- mörgum öðrum er þama voru, var sá stanzlausi straumur drukkins fólks, sem var um borðsaUnn. I sumum tilfellum var um að ræða fólk er sat að snæðingi eða við drykkju öllu heldur, ellegar menn sem ráfuðu þarna inn fyrirstöðulítið og ónáðuöu þá er sátu að snæðingi og voru í mörgum tilfeUum útlendingar. Gestur okkar varð fyrir svívirðingum Einn þessarra drukknu manna kom að borðinu hjá okkur og hóf að heUa svívirðingum yfir þann útlenda gest, er með okkur var. Eg kaUaði á þjón og bað hann að vísa manninum úr sainum sem hann og gerði. Ekki var maðurinn fyrr kominn úr sahium en hann sparkaði í hurðina af miklu afli svo glumdi í öUum salnum. Eg sá aö aldraöir Vestur-Islendingar er sátu viö næsta borð urðu hálfskelkaðir á svip. Þótt þessi maður væri nú á brott úr salnum var háreisti þar áfram vegna þess að skammt frá okkur sátu þrir dauðadrukknir menn við drykkju og hrópuöu til annarra er leið áttu um salinn. Ekki varð ég vör viö að þjónamir reyndu á afgerandi hátt að skakka leikinn. Blót og formælingar Skammt leiö þar til sá er vísað hafði verið úr salnum var kominn inn aftur. Raunar ekki í gegnum sömu dyr og honum hafði veriö vísað út um. Hann tók þegar að ónáða matargesti, vatt sér að borði þar sem þrír eöa fjórir Bandaríkjamenn sátu. Þeir skildu auðvitað ekki eitt einasta orð, sem hann sagði, en hafa af svip hans væntanlega getað ráðið aö þar var fyrst og fremst um að ræða blót og for- mælingar. Þessari iðju hélt hann áfram um nokkurt skeið allt þar til hótelstjórinn kom á vettvang og tókst með lempni að fá hann úr salnum. Stööugur straumur fólks var áfram í gegnum salinn, bæöi drukkiö fólk og ódrukkið. Olli þetta miklu ónæði, ekki sízt okkur sem sátum viödyrnar. Vandséð var hvað þetta fólk hafði þarna að gera því í fæstum tilvikum virtist það vera að borða. Miklir peningar — lítil ánægja Við ákváðum að ljúka máltíöinni hiö fyrsta. Höfðum enga ánægju af að sitja þarna inni þrátt fyrir ágætan mat. Við báðum um reikninginn. Hann hljóðaði upp á 828 krónur fyrir þrjár lamba- kjötsmáltíöir, hálfan skammt af frönskum kartöflum fyrir hinn þriggja ára gamla ferðafélaga okkar og 4 flöskur af Pepsi. Þegar við athuguöum reikninginn eftir á sáum við að hann gat ekki staðizt. Því hvemig geta þrír réttir, sem eiga aö kosta kr. 195 kr. hver, kostaö samtals krónur 740. Ja, ekki nema skammturinn af frönskum kartöflum fyrir þann þriggja ára hafi kostað 155 kr. Tæplega fær það staöizt. Og þá var reikningurinn illa upp settur. Vantaöi að sundurliða hann betur. Okkur þótti þetta miklir peningar fyrir máltíð sem lítil ánægja var af. Þar sem aösókn að Valhöll virðist mjög góö, ættu eigendur staöarins að hafa efni á að ráða dyravörð, sem sæi um að stöðugur straumur drukkins fólks væri ekki um borðsalinn. Hann kæmi í veg fyrir að slík hneisa endur- tækisig. Verði ekki breyting á þessu á Þing- völlum, veröur Island aldrei feröa- mannaland. „EIN VERSTA GUSA SEM ÉG HEF FENGIÐ FRAMAN í MIG” Númer 6253—3889 í þjóðfélaginu skrifar: Svo virðist sem ríki og bæjarfélög telji ekki heppilegt að fólk verði eldra en 70 ára. Þessa ályktun dreg ég af vinnubrögðum Trygginga- stofnunar ríkisins, en þeir hafa hætt aö greiða mér smávægilega tekjutryggingu, sem ég hef fengiö undanfarin ár. Eg verð nú að segja að þetta er ein versta gusa, sem framan í mig hefur komið á lifsleiðinni, og þaö aö á- stæðulausu. Hafa þær þó margar verið slæmar. Og ekki hef ég orðið var við að tekjur mínar hafi aukizt. Þvert á móti hafa útgjöldin aukizt stórlega eins og allir vita og það þýðir að nú er orðið dýrara að framfleyta sér. Auövitað kemur þessi ákvörðun Tryggingastofnunarinnar illa við mig. Sýnist mér að ég verði aö draga seglin saman og neita mér um ljós og hita, því tekjutryggingin hefur rétt hrokkið til að greiða þann munað. Finnst mér þetta kaldhæðni örlaganna, enda hef ég einmitt á undanförnum áratugum unnið hjá orkustofnunum. Eða þar til heilsan leyfði ekki meir. I þessum störfum urðu margir úti, en þó voru sumir svo heppnir að þeir þurftu ekki á neinum tryggingum að halda. En það er vist tilgangslaust fyrir garnlan mann að nöldra yfir svona smámunum, því Tryggingastofnun ríkisins hefur greinilega skiliö rétt þetta umtal umár aldraðra.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.