Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.1982, Page 1
Einstakur frí-
merkjafundur i
fundinþjónustu- ogskildingamerki, „sem enginnhélt
aðtilværulengur”
— Sjábaksíðu
Verðstríð í eggjasölu:
„Dálítill bófahasar"
Nú stendur yfir verðstríö eggjafram-
leiðenda og keppist hver viö að selja
sín egg ódýrara en aðrir. Þorsteinn
Sigmundsson í Elliöahvammi, Kóp.,
sem hefur um 7000 varphænur, beið
bara eftir næsta auglýsingatíma í út-
varpi. Hann sagði að ef þar yrðu aug-
lýst egg á 25 krónur kílóið þá færi hann
niður í 22. Síðasta eggjasending hans
var á 30 krónur kílóiö.
Þorsteinn segir ástæöur verðstríðs-
ins vera tvær. Mikið hafi bætzt við af
smábændum undanfarið sem hafi auk-
iö framboð upp úr öllu valdi. En einnig
heföi átt sér staö ólöglegur innflutning-
ur á eggjadufti til bakara og flugfé-
laga.
„Þetta er dálítill bófahasar,” sagði
Þorsteinn.
Formaður félags eggjaframleið-
enda, Einar Eiríksson í Miklaholts-
helli, við Selfoss, sagði stríðið vera
vegna þess að fáir menn ættu „eitt-
hvað lítils háttar og þeir vildu ekki
brenna inni með þetta. ”
Hann sagði hins vegar aö það væru
stóru búin sem væru að auka fram-
leiðsluna. Sjálfur sagðist hann ekki
eiga eitt einasta egg, en hann er með
4.000 hænur.
Jón Guðmundsson á Reykjum í Mos-
fellssveit sagði svona sveiflur ganga
yfir á um þriggja ára fresti og ástæðan
værieinföld.
„Það er of mikið af hænsnum í land-
inu,”sagðihann. Þó.G.
Henry
Fonda
léztígær
— sjá erlendar
fréttirá
síðurn 8-9
dóttur og Vilborgar Einarsdóttur iSS Glæsibæ. D V-mynd: Þó. G.
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR
Reagan
reiddist
harkalega,
Hún brosir
blítt....enæfir
karateí
frístundunum
sjá erlendar
fréttirá
síðum 8-9
Föstudagsmyndm
erásíðu2
181. TBL. — 72. og 8. ÁRG. — FÖSTUDAGUR 13. ÁGÚST 1982.
Hafís tefur
för fursta-
fjölskyldunnar
Franska skemmtiferðaskipiö
Mermoz nálgast nú ísland. Meöal
farþega er furstafjölskyldan af
Mónakó; 'tairier fursti, Grace
f urstaynja, Karólína prinsessa og Al-
bert prins en Stefanía prinsessa,
yngsta dóttirin, er ekki meö í för.
Áætlað hafði verið að sigla frá Jan
Mayen í stefnu á Vestfirði en vegna
rekiss á þeirri leið var horfið fráþví.
Stefnir skipið nú á Langanes. Kemur
skipið væntanlega upp að norðaust-
urhorni landsins í kvöld og til
Reykjavíkur um miðjan dag á morg-
un. Er áætlaö að það leggist að í
Sundahöfn milli klukkan þrjú og
fjögurámorgun.
Vegna seinkunarinnar er óvíst
um Grænlandsflug furstafjölskyld-
unnar. Fjölskyldan er hins vegar
boöin í kvöldverð á Bessastöðum
annaðkvöld. -KMU.