Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1983, Síða 4
4
DV.FIMMTUDAGUR 3. MARS1983.
Verítfræðingar
mótmæla skipaní
stöðu flugmálastjóra:
Tækni-
menntun,
sérþekk-
ing og
reynsla
vanvirt
„Framkvæmdastjóm Verk-
fræöingafélags Islands telur að
með þessari stöðuveitingu sé verið
að vanviröa tæknimenntun, sér-
fræðilega þekkingu og starfs-
reynslu. Með því aö velja í embætt-
iö reynslulítinn umsækjanda án
flugtæknilegrar menntunar og fag-
þekkingar er stofnaö til kringum-
stæðna sem hæglega geta leitt til
truflana og tafa á eðlilegri fram-
þróun íslenskra flugmála.”
Svo segir í bréfi sem Verk-
fræðingafélagið sendi Steingrimi
Hermannssyni samgönguráðherra
í gær um skipan í embætti flug-
málastjóra. I bréfinu er komiö á
framfæri eindregnum mótmæium
félagsins. Þar segir:
„Við þessa stöðuveitingu er gróf-
lega gengið fram hjá þeim umsækj-
anda sem hlaut einróma og ein-
dregin meömæli lögboöins umsagn-
araðila, flugráðs. Hann er jafn-
framt félagi í Verkfræðingafélagi
Islands.
Þótt ekki sé getið um sérstakar
kröfur um menntun flugmálastjóra
í núverandi lögum um stjóm flug-
mála, fer ekki á milli mála, að
verkfræðimenntun væri þar sjálf-
sögö krafa, eöa aö minnsta kosti
langæskilegasti kosturinn, líkt og
gildir um stjórnendur hliðstæðra
tæknistofnana, sem heyra undir
samgönguráðuneytiö. Á þaö skal
bent aö auk Leifs Magnússonar
sóttu fjórir aðrir verkfræðingar um
þessa stöðu, það er einn flugverk-
fræðingur, tveir flugvélaverk-
fræðingar og einn rafeindaverk-
fræðingur, sem allir eru félags-
menn í VFI,” segir í bréfinu til
samgönguráðherra.
-KMU.
TANNLÆKNADEILDIN LÖMUÐ
VEGNA „RAFMAGNSSTÓLANNA”
Rektor sagöi að verið væri að athuga
hugsanlegar bráðabirgðaráöstafanir,
sérstaklega vegna þeirra nema sem
útskrifast eiga í vor. Sagði hann að
meðal annars hefði verið talað um að
festa nýju tannlæknastólana í ákveðn-
um stellingum. Þá þyrfti ekki að vera
rafmagn á þeim.
Til fróöleiks má geta þess að hver
tannlæknastóll kostar í dag um 500
Raðir nýrra tannlæknastóla bíða nemenda. Grunur leikur á að allir stólarnir leiði út rafmagn. þúsund krónur meö fylgibúnaði.
DV-mynd: Einar Olason. -KMU.
— engin kennsla hjá elstu árgöngum
— von á bandarískum sérfræðingi til landsins
Kennsla fjórða, fimmta og sjötta Stafar þaö af töfum sem orðið hafa á um.
árgangs tannlæknadeildar Háskólans frágangi hins nýja húsnæðis deildar- Vonast hafði verið til að unnt yrði að
hefur enn ekki hafist eftir áramót. innar og tæknigöllum í tannlæknastól- hefja kennslu í síðustu viku en þá komu
í ljós gallar í nýjum tannlæknastólum.
Ríkir nú mikil óvissa um hvenær
kennsla elstu árganganna getur hafist
á ný. Kennsla þriðja árs nema hefur
einnig raskast.
Von er á sérfræöingi frá
framleiðanda stólanna, Dental-Iz í
Bandaríkjunum, til Islands á morgun,
föstudag. Eftir að hann hefur skoðað
stólana skýrist væntanlega hversu
alvarlegir gallamir eru og hve lengi
kennsla mun liggja niðri.
Rafmagnseftirlit ríkisins fann við
skoðun aö tveir stólar leiddu út
rafmagn. Gallinn var í búnaði sem
hreyfir stólana. Menn gmnar að allir
stólarnir 23 hafi þennan galla.
Tannlæknadeildin flutti úr gamla
húsnæöinuí kjallara Landspítalans um
áramót. Rætt hefur verið um að flytja
aftur þangað inn. En flutningurinn
þaðan út er kominn svo langt að ekki
verður aftur snúiö, aö sögn Guðmund-
ar Magnússonar háskólarektors.
EKKI í TENGSLUM VIÐ PRÓFKJÖRIÐ
— segir Sighvatur Björgvinsson um f lutning lögheimilis síns til ísaf jarðar
„Þessi ákvörðun er ekki tekin í
tengslum viö væntanlegt prófkjör.
Ég ætla ekki að greiða atkvæði í próf-
kjörinu þannig aö það verður á at-
kvæöum annarra en sjálfs mín sem
ég verð kjörinn í þessu prófkjöri. Ég
á enda ekki von á því að úrslitin velti
á einu atkvæði,” sagði Sighvatur
Björgvinsson alþingismaöur er hann
hafði samband viö DV í gær í tilefni
af frétt þess efnis að hann hefði flutt
lögheimili sitt og fjölskyldu sinnar
frá Reykjavík í húsnæði Hjálpræðis-
hersins á tsafirði.
Sighvatur sagði ennfremur að
hann væri ekki aö drýgja tekjur sín-
ar með flutningi lögheimilisins enda
breytti húsaleigustyrkur sá sem
þingmenn utan af landi fengju litlu í
þessu sambandi. „Þetta er ekki
flutningur á eyðibýli eins og því miður
á sér stundum stað,” sagði hann. Sig-
hvatur sagði að ástæðan fyrir þessu
væri sú að hann hefði áöur haft aðset-
ur hjá foreldrum sínum þegar hann
dvaldist á Isafirði en þeir væru nú
fluttir til Reykjavíkur. Hann heföi
því þurft að taka sér íbúð á leigu á
Isafirði og hefði einnig talið rétt aö
flytja lögheimili sitt þangaö sem
hann hefði aðsetur. Það var rang-
hermt í blaðinu í gær að faðir Sig-
hvats væri skráður leigutaki að íbúð
Hjálpræðishersins, en DV fékk þær
upplýsingar hjá Hjálpræðishernumá
Isafirði.
I þessu sambandi er rétt að geta
þess aö þingmenn sem eiga lög-
heimili utan Reykjavíkur fá húsa-
leigustyrk frá Alþingi, auk þess sem
þeim eru greiddir dagpeningar þann
tíma sem þing situr. Þá segir í 2.
grein laga um lögheimili, númer 35
frá árinu 1960, að lögheimili manns
sé þar sem hann hefur bækistöð og
dvelst aö jafnaöi í tómstundum sín-
um og hefur þá hluti sem honum eru
persónulega tengdir. Undantekning
er gerö vegna kaupamennsku eða
annarrar vetrardvalar vegna at-
vinnu en tekið er fram að „enda
hverfi maöurinn til lögheimilis síns
að slíkri dvöl lokinni”. Sighvatur
Björgvinsson hefur átt lögheimili í
Reykjavík öll þau ár sem hann hefur
gegnt þingmennsku fyrir Vest-
firðinga.
OEF
Svo mælir Svarthöfði Svo mælir Svarthöfði Svo mælir Svarthöfði
FRAMSÓKNARNÁTTRÖLLIN
Á hverjum tíma er að finna sér-
vitringa sem telja það skyldu sina aö
verjast öllum framförum. Allt frá
Sókratesi og Galileo hafa þeir
framfarasinnar orðið fyrir ofsóknum
og galdrabrennum sem færa sér
hugsun og vísindi í nyt. Enn á vorum
dögum rísa heilar stéttir manna til
heilagra verkfalla þegar tæknivæð-
ing leysir mannshöndina af hólmi,
enda er hræðslan við nýjungamar
þeim mönnum í blóð borin sem
fæðast nokkrum öldum of seint.
Þetta heita nálttröll á góðri íslensku
og er þetta fyrirbæri löngu þekkt hér
á landi sem annars staðar.
Hins vegar vill svo einkennilega til
að íslensk nátttröll hneigjast flest
hver til þeirrar sérstæðu afstöðu að
fylgja ákveðnum stjórnmálaflokkum
að málum. Þannig hefur Alþýðu-
bandalagið löngum verið borið uppi
af menningarvitum og stofu-
kommum sem telja hið nýja af hinu
vonda og mega hvorki sjá né heyra
frumkvæði í athafnalífi eöa framtak
hjá einstaklingum. Allaballinn er
samt hátíð hjá þeim flokki sem heitir
Framsóknarflokkur. Þar ríður aftur-
haldið húsum og er svo hreinræktað
að slíkt og þvilíkt skírlífi verður ekki
skilgreint öðruvísi en fæðingargalli
þessa blessaða fólks, erfðasjúk-
dómur á hæsta stigi.
Nú væri þessi eiginleiki
framsóknarmanna í sjálfu sér sak-
laus og raunar ágætlega afmarkaður
í básnum þeim ef þjóðin sæti ekki
uppi með þá raun aö nátttröllin í
Framsóknarflokknum hafa náð fót-
festu í stjórnsýslunni fyrir pólitískan
misskilning.
Úr þeirri valdastööu halda þeir
uppi merki afturhaldsins hvar og
hvenær sem að því er vegið.
Á síðasta áratug hafa myndbönd
rutt sér til rúms, enn ein tækni-
nýjung sem ekki þykir tiltökumál á
öld framfara og vísinda.
Islendingar vilja að sjálfsögðu
njóta myndbanda eins og annað
nútímafólk. Á allra síðustu árum
hafa einstaklingar, félög á þeirra
vegum og heil byggðarlög tekið sér
fyrir hendur að leggja kapla fyrir
sjónvarp, þannig að heimilin í
landinu geti notið myndbandaefnis
til afþreyingar. Yfirleitt hefur þessi
þróun mælst vel fyrir og venjulega
skynsamir menn gert sér grein fyrir
að hér væri þaö sama að gerast og
þegar síminn, þotan, vélsleðinn eða
sjónvarpið uppgötvaöist. Tækni-
þróun af þessu tagi er og verður í
þágu almennings.
Þetta skilja allir, þ.e.a.s. allir
nema framsóknarmenn. Þeirra
erfðasjúkdómur hefur eðlislæga og
sjálfkrafa tilhneigingu til að andæfa
og torvelda framfarir á þessu sviði
sem öðru.
Og nú hófust nátttröllin handa.
Framsóknarmaðurinn Ingvar Gísla-
son, sem er menntamálaráöherra,
stakk undir stól tilbúnu frumvarpi
sem gerði ráð fyrir notkun kapal-
kerfis.
Framsóknarmaðurinn Bjöm
Hermannsson, sem er tollgæslu-
stjóri, rukkaði kapalkerfin um sölu-
skatt á meðan framsóknarmaðurinn
Hörður Vilhjálmsson, sem er fjár-
málastjóri Ríkisútvarpsins, stóð
dyggan vörð um einokun ríkisins á
útvarpsrekstri. Framsóknar-
maðurinn Helgi H. Jónsson, sem er
fréttamaður hjá Ríkisútvarpinu, hélt
hugsjónaræðu um ágæti einokunar-
innar á framsóknarráðstefnu og svo
fór að lokum að framsóknar-
maðurinn Þórður Björasson, sem er
ríkissaksóknari, gaf út ákæru á
hendur kapalkcrfunum og tækni-
væðingunni.
Þar með var hringnum lokað.
Nátttröllin höfðu sagt sitt og aftur-
haldið hélt innreið sína á nýjan leik.
Galdrabrennurnar eru enn við lýði.
Svarthöföi.