Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1983, Page 20
DV. FIMMTUDAGUR 3. MARS1983.
Vogel á blaðamannafundi með gagnfræðaskólakrökkum. Krakkarnir spurðu
um allt milli himins og jarðar en mest um atvinnuleysi og kjarnorkuvopn.
Vogei var á fundi með skólakrökkunum í meira en kiukkutíma og þeir tóku
upp á segulbönd og myndsegulbönd auk þess sem þeir mynduðu og skrifuðu
niður.
í aðalstöðvum jafnaðarmanna íBonn:
VIUUM TAKA UPP
ÞRÁÐINN FRÁ
BRANDT OG
SCHMIDT
A gangstéttinni framan viö
aðalstöðvar jafnaðarmanna í Bonn
er stórt spjald meö myndum af
Hans-Jochen Vogel, kanslaraefni
flokksins. Öðrum megin á spjaldinu
er Vogel í stífpressuöum jakkafötum
meö bindi, hinum megin jakkalaus
og bindislaus meö skyrtuna frá-
hneppta í hálsinn. Þannig vilja
kratar sýna aö Vogel sé kanslaraefni
bæöi fyrir þá ihaldssömu í tauinu og
líka fyrir hina frjálslyndari.
Jiirgen Giebel flokksritari býður
gesti velkomna í anddyrinu. Hann er
dæmigerður fulltrúi nýju kyn-
slóöarinnar í flokknum: sósíal-
demókrati á skandinavíska visu
og þar með talsvert til vinstri
viö Helmut Schmidt og flokks-
forystuna í stjórnartíð Schmidts.
Giebeltalar sænsku ágætlega; segist
hafa búiö í Svíþjóö um skeiö og er af-
ar hrif inn af Palme.
Bíða úrslita í Genf
— Við viljum gera allt sem í okkar
valdi stendur til aö koma í veg fyrir
aö NATO fjölgi kjamaeldflaugum í
Vestur-Evrópu, en um leið viljum viö
aö Sovétríkin fækki sínum eldflaug-
um. SPD (skammstöfun fyrir
Jafnaöarmannaflokkinn) vill bíða
og sjá hver veröur niðurstaða
afvopnunarviöræönanna í Genf. Ef
þessar viöræöur fara út um þúfur,
vilja Vogel og SPD endurmeta á-
kvöröun NATO frá 1979 um aö setja
upp 572 nýjar meðaldrægar eldflaug-
arí Evrópu.
Giebel segir SPD hafa mótaö
þýsku utanríkisstefnuna, sem
stuölaði aö bættri sambúö austurs og
vesturs: — Viö viljum taka upp
þráöinn frá stjórnartíð Schmidts og
þar áður Brandts. Til dæmis viljum
við ekki vísa á bug jákvæðum til-
lögum sem hafa komiö í vetur frá
Andropov, nýja sovéska leiðtogan-
um. Við viljum aö Bandaríkin svari
með raunverulegu gagntilboði í
Genf. Þaö sem greinir kristilega
demókrata frá okkur er aö þeir tala
og hugsa eins og Reagan og hans
menn í Bandaríkjastjórn. Slíkt kann
ekki góöri lukku aö stýra.
Vilja stytta
vinnuvikuna
Júrgen Giebel segir jafnaöarmenn
vilja stytta vinnuvikuna úr 48 í 40
stundir fái þeir völdin í kosningunum
á sunnudaginn. Einnig vill SPD aö
fólk fari fyrr á eftirlaun og enn-
fremur er á stefnuskránni aö ríkiö
fjárfesti 300 milljarða marka á næstu
þremur árum til aö fá hjól fram-
leiöslunnar til aö snúast hraöar.
Þannig er ætlunin aö búa til mörg
hundruð þúsund ný atvinnutækifæri,
enda ekki vanþörf á þegar þess er
gætt aö í landinu eru allt aö þrjár
milljónir atvinnulausra manna.
Vogel kanslari?
Hvaö gerist svo á sunnudaginn?
VeröurHans Jochen Vogel kanslari?
Jiirgen Giebel horfir þegjandi
niöur í boröplötuna góöa stund. Segir
svo:
— Nei, satt aö segja held ég aö
Kohl veröi kanslari áfram. Þetta
myndi ég aldrei segja í þýsku blaða-
viötali, en ætli sé ekki í lagi aö láta
þaö flakka núna! Eina leiðin sem ég
sé, ef Vogel ædar að taka viö emb-
ættinu, er aö jafnaðarmenn fái
Júrgen Giebel, talsmaöur krata.
hreinan meirihluta á þingi. En á slíkt
trúa fáir í okkar rööum.
Komist græningjarnir inn er viss
möguleiki á minnihlutastjórn okkar
með stuöningi þeirra. Kröfumar sem
þeir gera tú slíks samstarfs yröu bara
líklega mun meiri en viö getum sam-
þykkt. Græningjamir veröa aö falla
frá mörgum kröfum ætli þeir
virkilega að vinna meö okkur.
Viö skulum samt ekki útiloka
þennan möguleika alveg. Áöur
deildu jafnaöarmenn og græningjar
harkalega á héraðsþinginu í Hessen,
ekki síst um framkvæmdir á flug-
vellinum í Frankfurt. Smám saman
átu þeir grænu ofan í sig stóm orðin
og uröu sammála jafnaöarmönnum.
Núna stjómum viö Hessen meö
stuðningi græningja og þaö gengur
bara þokkalega vel!
Þingkosningar íVestur-Þýskalandi á sunnudaginn kemur:
Helmut Kohl kanslari
i velli
aö fá menn kjöma. I skoðanakönnun-
um undanfariö hafa bæöi frjálsir
demókratar og græningjar veriö rétt
við 5% markið, stundum ofan við,
stundum neðan viö. Báöir flokkar
gætu „marið þaö” aö komast inn, en
sá möguleiki er lika fyrir hendi aö
hvorki græningjar né frjálsir
demókratar nái mönnum inn á
þingið. Þar meö er komið tveggja
flokka kerfi í Vestur-Þýskalandi!
Hans-.Jochen Vogel, kanslaraefni
jafnaöarmanna, segir aö flokkur
hans stefni aö hreinum meirihluta á
þingi — sem almennt er talin hrein
óskhyggja. Einn möguleiki er aö
jafnaöarmenn myndi minnihluta-
stjórn meö stuðningi græningja, fái
þessir flokkarmeirihluta samanlagt.
Fáum forystumönnum jafnaöar-
manna geöjast aö því aö gera ein-
hvers konar bandalag viö græningja.
Willy Brandt flokksformaður er einn
þeirra sem er þó frekar jákvæöur
þegar hugsanlegt samstarf við
græningja berágóma.
Franz-Josef Strauss, leiðtogi
kristilegra demókrata í Bæjara-
landi, er mun neikvæöari í garö
frjálslyndra demókrata en flokks-
bróöir hans, Helmut Kohl kanslari.
Strauss vill gjarnan aö kjósendur
sendi frjálslynda í gröfina, þannig aö
hann sjálfur komist í stól utanríkis-
ráöherra í ríkisstjórninni, nái kristi-
legir nægjanlegu fylgi einir.
Vogel hefur gleraugnakæk
eins og okkar eigin Lúlli
Islendingar eru sem betur fer ekki
komnir svo langt í gjaldheimtunni aö
tekið sé af körium gjaíd fyrir aö nota
pisserí á almenningssnyrtingum. I
Vestur-Þýskalandi kostar hins vegar
yfirleitt eitthvað að bregöa sér á svo-
leiðis staöi, að maður tali nú ekki um
sjálft stelliö. Svo þarf venjulega aö
borga fyrir sápu á hendumar á eftir
og oft veröur aö kaupa handþurrk-
umar líka. Vatnið úr krananum var
hins vegar ókeypis á öllum stööum
þar sem ég kom. Þýskir kratar í
Bonn buöu þær kjarabætur eitt kvöld
um daginn aö hjá þeim mátti pissa
ókeypis, og þeir borguöu meira að
segja fyrir handþvottinn líka.
Svo öll sagan sé sögö, þá brá ég
mér á kosningafund hjá krötum í
Bonn. Fundurinn var haldinn í risa-
stórri íþróttahöll í úthverfi og átti aö
byrja á slaginu hálfátta. Eg mætti á
vettvang um sjöleytiö og þá strax
var aðalsalurinn að fyllast af fólki og
mikil þröng viö inngangana. Inni í
anddyrinu stóðu menn viö söluborö
og buðu regnhlífar, bjórkönnur, inn-
kaupatöskur, penna, lyklahringi og
guð má vita hvaö. Allt dótið var
vandlega merkt meö upphafsstöfum
krataflokksins, SPD, eöa á vom
myndir af kanslaraefninu Vogel.
Mér var hugsað til vesalings krat-
anna heima á Fróni sem reyna um
þessar mundir aö lifa af geminga-
hríö Vilmundar og Gunnars Thór.
Myndi ekki hjálpa ef Reykjavíkur-
kratar framleiddu innkaupatöskur
eöa bollapör meö andlitsmyndum af
Jóni Baldvin og Jóhönnu? Væri ekki
Árni ömggur inn á Noröurlandi
eystra ef noröurkratar hefðu vit á aö
setja mynd af honum á regnhlífar og
lyklakippur?
Vopnuð gæsla í fatahenginu
Eg ákvað aö bregöa mér niöur í
k jallara meö frakkann og pissa í leiö-
inni. Hvert þó í logandi. Var ekki
vopnaður maöur á vappi nálægt fata-
henginu. Þeir taka enga áhættu meö
yfirhafnir atkvæðanna, þessir krat-
ar, hugsaöi aðkomumaður af Islandi.
Á snyrtingunni vom skilti á hurö-
um og viö handlaugar: ókeyis að
gera þarfir sinar, ókeypis aö þvosér
á eftir. Ég er viss um að flokkurinn
hefur fengiö mörg atkvæöi út á svo
rausnarlegt boö. Þjóðverjar taka
eftir þegar þeir fá einhverja þjón-
ustugratís!
Dymar á aöalsalnum voru lokaðar
þegar ég ætlaöi aö ganga þar inn
eftir kjallaraheimsóknina. Hliðar-
salur var aö fyllast líka, þar gátu
menn fylgst meö fundinum í sjón-
varpskerfi. Eg ruddist inn í þvögu
fólks viö aðaldyrnar og baö um að fá
aö komast inn. Nei, hér er allt fullt,
var öskrað innan úr þvögunni. Eg
dorgaði íslensk blaöamannaskilríki
upp úr brjóstvasanum og stakk inn í
þvöguna. Þvagan klofnaöi í miðjunni
og mér var kippt gegnum sprunguna
inn í helgidóminn, sjálfan aöalfund-
arsalinn. Ertu kominn alla leið frá
Islandi til aö fylgjast með þessu? var
spurt. Ja, eiginlega. Stundum verður
aö hagræöa sannleikanum. Síöan var
ég leiddur til sætis á næstfremsta
bekk, hjá bandarískum fréttamönn-
um og eftirlaunakrata úr þýska
hernum. Á sviöinu spilaöi dixíland-
hljómsveit létt lög og salurinn dillaöi
sér í takt, uppi á vegg gríöarstór
þýskur fáni og mynd af Vogel.
Ræðustíllinn
minnti á Hannibal
Allt í einu heyröist mikill kliöur
fram viö dyr. Sjálfur Hans-Jochen
Vogel, kanslaraefni kratanna, gekk í
Hans-Jochen Vogel í ræðustóli á kosningafundinum í Bonn.
heldur líklega
Andropov bíður spenntur á skrif-
stofu sinni í Kreml og Reagan bíður
meö óþreyju vestur í Washington.
Þeim boröalögöu i höfuöstöövum
NATO í Briissel líöur heldur ekki
sem best. Öll þessi stórmenni bíða
eftir aö sjá hvaö sunnudagurinn 6.
mars ber í skauti sér. Urslit þing-
kosninganna í Vestur-Þýskalandi
skipta nefnilega miklu meira máli en
svo aö þau komi bara viö stjómmála-
mönnum og kjósendum þar í landi.
Niöurstaöa kosninganna getur skipt
heilmiklu máli fy rir næstu skref stór-
veldanna í vopnakapphlaupi og af-
vopnunarviðræðum.
Margt bendir til þess að ríkis-
stjórn Helmuts Kohls haldi velli í
kosningunum. Á sunnudaginn var,
réttri viku fyrir kjördag, birti rás
tvö í þýska sjónvarpinu skoöana-
könnun sem sýnir aö bandalag
kristilegra demókrata er meö 48%
fylgi, en jafnaöarmenn 41%.
Samkvæmt því hafa jafnaðarmenn
heldur tapaö en hitt síöustu dagana,
en kristilegir unniö á. Þessi nýjasta
könnun sýnir ennfremur aö
græningjamir eru meö 5,G% atkvæöa
og komast þar meö inn á þing.
Frjálsir demókratar, samstarfs-
flokkur kristilegra í ríkisstjórn, eru
hins vegar alveg á mörkunum aö fá
menn kjöma. Ef frjálslyndir
demókratar detta út af þingi og
græningjar ná inn mönnum, þá er
Helmut Kohl kanslari.
samanlagt fylgi græningja og
jafnaðarmanna hálfu ööru prósenti
minna en fýlgi kristilegra demókrata
— samkvæmt könnun þýska
sjónvarpsins. Þetta eru meö öðrum
oröum óhemju spennandi kosningar.
Samkvæmt kosningalögum í
Vestur-Þýskalandi verða flokkar aö
fá minnst 5% atkvæöa á landsvísu til