Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1983, Qupperneq 41
DV. FIMMTUDAGUR 3. MARS1983.
41
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið
„Bakkarínn”
braut í sér
eitt bein
Apa-
legt
að
reykja?
Er apalegt aö reykja?
„Nei, alls ekki,” segir
hann Joe, nítján ára gam-
all api í Southam dýra-
garöinum í Englandi.
Hann hefur reykt frá
fyrstu tíö og segir að hann
hafi lært þetta af þjálfar-
anum sínum í dýragarðin-
um. „Nei, blessaöur
vertu, ég er alls ekki
mikill reykingamaöur.
Fæ mér þetta tvær til
þrjár sígarettur á dag, og
einnig treð ég í eins og
eina pípu. Geri þetta
svona mest til að vera
með eitthvað annað í
munnvikinu en banana þó
að þeir séu auövitað mjög
góðir,” segir Joe
kampakátur.
Hann er kallaður „Herra
Backwards” og það skilja allir hvers
vegna svo er.
„Herra Backwards” heitir fullu
nafni Roger Riddell og býr í
Bandaríkjunum. Hann er það sem
menn hafa kallaö ofurhuga og finnst
okkur að það sé nánast vægt til orða
tekið.
Roger tók upp á því nýlega að sýna
dirfsku sem er hreint ótrúleg. Hann
sneri öfugt á mótorhjóli og „stökk”
yfir sex bandarískar drossíur.
Á nær hundrað kilómetra hraða ók
hann upp á stökkpall og sveif yfir
bítana og lenti á öðrum palli hinum
meginviðþá.
En eins og my ndirnar sýna, féll hann
í lendingunni og kastaðist af hjólinu.
Hann var strax lagður á sjúkrabörur
og ekið á sjúkrahús.
En þótt ótrúlegt megi virðast, fékk
Riddell aö fara heim af sjúkrahúsinu
síðar um daginn, því að hann reyndist'
„aðeins” hafa rifbrotnað við þetta
glæfralega tiltæki sitt.
„Þaö eina sem henti mig var að ég
óhreinkaði fötin mín,” sagði Riddel
glaðhlakkalega, þegar hann kom út af
sjúkrahúsinu.
Já, þeir eru ekki að gera of mikið
veður út af smámunum, sumir fyrir
vestan.