Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1983, Page 9

Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1983, Page 9
DV. FÖSTUDAGUR11. MARS1983. Utlönd Útlönd Útlönd Útlönd Samdráttur íkaffifram- leiðslunni Kaffiframleiðslan mun dragast saman um 17% miðað við það sem hún var í fyrra, eftir því sem sér- fræðingar spá. Mestur samdráttur er á Fíla- beinsströndinni, í Perú og Indónesíu, þar sem þurrkar og skógareldar hafa valdið skaða á kaffiekrum og aukin skordýra- ásókn. Ekki er búist við að þessar horfur hafi áhrif á kaffiverðið, þar sem menn hafa þegar gert ráð fyrir samdrættinum. Máritíus fái yfirráð yfir Diego Garcia Albert Renee, forseti Seychelles- eyja, skoraði í gær á Samtök óháöra ríkja að styðja kröfu stjórn- ar Máritíus um yfirráö yfir eynni Diego Garcia á Indlandshafi. Bretar afhentu Bandaríkjunum eynna undir herstöð áður en Márit- íus varð sjálfstætt ríki árið 1968. Renee sagði að breska stjórnin hefði ekki haft neina lagalega heimild til að ráöstafa eynni, jafn- vel þótt það hefði verið gert með samþykki þáverandi stjórnar Máritíus. Engin stjórn heföi leyfi til að af- sala sér hluta af landi sinu, auk þess sem þessi ráðstöfun stríddi gegn samþykktum Sameinuðu þjóöanna. Renee sagði ennfremur að her- stöð Bandaríkjanna á eynni væri sneisafull af kjarnorkuvopnum, sem væru ógnun við öll ríkin við Indlandshaf. Kirk Kent áfrýjar til dómstóls Evrópuráðs Danska þingmanninum og fiski- manninum Kent Kirk, sem sektaö- ur var fyrir ólöglegar veiðar innan breskrar landhelgi, hefur verið heimilað að vísa máiinu til dóm- stóls Evrópuráðsins í Luxemborg. Kirk er þingmaður Evrópuráðs- ins. Hann var sektaður um 30 þúsund pund (rúmar 900 þúsund islenskar krónur) fyrir að neita að viðurkenna 12 mílna fiskveiðilög- söguna, sem Bretar löggiltu um síöustu áramót. Danir neituðu að viðurkenna fiskveiðilögsöguna og höfðu þar aðra stefnu en hin niu ríki Evrópuráðsins, en nú hefur náðst samkomulag allra ríkjanna. Reagan vill stór- auka hernadaraðstoö Reagan Bandaríkjaforseti þarf nú að sannfæra bandaríska þingið uni nauðsyn þess aö samþykkja 110 mill- jón dollara hernaðaraöstoð viö stjórnina í E1 Salvador. Það er ólík- legt að honum takist þaö. Forsetinn geröi tillögur sínar opinberar í ræðu í gær, þar sem hann lýsti því yfir aö Bandaríkin væru að reyna að hefta framgang kommúnis- mans í Mið-Ameríku. En þingmenn úr báðum flokkum létu þegar í stað í ljós andstööu viö þessar tillögur og sögðust ekki mundu greiða þessum tillögum atkvæði, nema stjómvöld í E1 Salvador hæfu þegar í staö friðar- viðræður við skæruliöa. I upphafi íhugaði Reagan að biðja þingiö um 60 milljónir dollara til hemaðaraðstoðarinnar, en þessi nýja tala er fjórum sinnum hærri en sú aöstoð sem þingið hefur þegar samþykkt til-El Salvador. Að auki — við El Salvador fer forsetinn fram á 20 milljónir doll- ara í hemaðaraðstoð til annarra ríkja á svæðinu og 168 milljónir doll- ara í efnahagsaðstoö, þar af 67 mill- jónirtilElSalvador. Thomas O’Neill, forseti fulltrúa- deildarinnar og leiðtogi demókrata í deildinni, sagði í viðtali við frétta- menn að hann gæti ekki ímyndað sér aö þingið samþykkti þessar tillögur. Hann sagði að enginn vildi að komm- únistar kæmust þar til valda, en hann héldi að forsetinn gengi nú of langt og ástandið sé ekki eins slæmt og haldiö hefði verið f ram. Reagan Bandaríkjaforseti vill nú stórauka hernaðaraðstoðina við E1 Salvador. Opið ALLAN w w HREVF/LL (JÁ 'b STÆRSTA BIFREIÐASTÖÐ BORGA^N 5? ALLAR HREINGERNINGAR ÞRIFILL SF. Sími82205 allan BÆ HVty

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.