Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1983, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1983, Side 10
10' DV.FÖSTUDAGURll. MARS1983; Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Hægar breytingar í Grikklandi: Papandreou svíkur kosningaloforðin 1 Grikklandi er einn maöur aðal- leikarinn í pólitíkinni, Andreas Papandreou forsætisráöherra. Ekki er sú fréttasending í útvarpi og sjón- varpi sem ekki hefst meö viðtali viö hann. Dagblööin í Aþenu segja frá því, hvað Papandreou gerir eða gerir ekki, meö fyrirsögnum sem minna á stríðsfréttir. Mest er nú rætt um tvennt: sambandið viö Bandaríkin, og hættuna frá Tyrklandi. Um þessi tvö mál, sem eru mjög samtvinnuð, skeggræða menn í fjölmiölum og á kaffihúsum. Fyrir kosningamar 1981, var það stefna Papandreous að Grikkland skyldi segja sig úr EBE, eöa þá aö þjóðaratkvæðagreiðsla skvldi haldin) um málið. Nú er þaö ekki rætt, enl aðoins það að Grikkland þurfi að fál inn í samningana við bandalagið ákveðin skilyröi. Þá var það stefna Papandreous aö Grikkland skyldi yfirgefa Nato, en nú hefur sú stefna breyst svo að Grikkir skuli nú vinna að því pólitískt að bæði hernaðar- bandalögin skuli leyst upp. Herstöövarnar Og nú virðist sem þriðja krafan fyrir kosningar, sem einnig eins og hinar gekk út á að leysa Grikkland undan áhrifum erlendra stórvelda, skuli gleymd: krafan um brottvikn- ingu bandaríska hersins með stöövar sínar af grískri grund. Það virðist sem sú krafa koðni niður í það að verða gjaldmiðill í viðskiptum. Stöðvamar fá að vera enn um sinn, gegn því aö Bandaríkjamenn auki hemaðaraðstoð sína við Grikki í því hlutfalli að hernaðarjafnvægi haldist milli Tyrklands og Grikklands. En samningaumræður um þetta hafa dregist á langinn og margir efast um að Papandreou nái fram samningum um tímamörk á tilveru herstöðvanna, sem er einmitt það sem ríkisstjórn Pasok hefur sett á oddinn. Og ástandiö hefur versnað fyrir það að Bandaríkjastjórn hefur aukiö hernaöaraðstoö sína viö Tyrkland. Og Grikkir kosta þegar miklu til landvama, meiru en þeirra fátæka land getur með góöu móti borið. Gagnrýnendur stjórnar Papand- reous, bæði til hægri og vinstri, halda því einnig fram aö ástæðan fyrir því að hann lemur nú hertrommur svo fast og ræðir svo mjög hættuna frá Tyrklandi sé sú að hann vilji leiða athygli manna frá slæmu ástandi innanlands. Efnahagsástandið Stjóm Papandreous hefur ekki náð tökum á efnahagsvandanum og ekki getað efnt loforð um aö bæta lífskjör almennings. Verðbólga er mikil, um 22%, og þrátt fyrir þaö að allar launahækkanir hafi veriö bann- aðar, hægist ekki á henni. Verðlag hækkar stöðugt og atvinnuleysi færist í vöxt og er nú 8%. Pólitísk óró hefur vitanlega aukist við þetta. Þessi pólitíska kreppa hefur breytt því svigrúmi, sem Papandreou hafði til aðgerða,í skrúfstykki. Þess vegna leggur hann svo mikla áherslu á ógn- unina frá Tyrklandi, segja and- stæðingarhans. Fjöldi loforða Papandreous fyrir kosningar hefur ekki veriö efndur. Hann lofaði ýmsum breytingum á félagsmálasviði. Nokkrar hafa verið gerðar, svo sem breytingar á hinni fornlegu hjúskaparlöggjöf og nokkur skref hafa verið stigin í átt til vald- dreifingar. En heilsugæslumál eru enn í ólestri og Grikkir sjálfir halda því fram, aö hvað varðar heilsu- gæslu, séu þeir síst settir allra Evrópuþjóða. Og kosningalöggjöfin, sem Papandreou gagnrýndi sjálfur harkalega í kosningabaráttunni, stendur óbreytt enn. Og innan Pasok hefur Papandreou verið gagnrýndur fyrir ólýðræðislegar stjórnar- aðferðir, og er nefnt sem dæmi aö þingflokkur Pasok hefur aöeins veriö kallaður saman til funda tvisvarsinnum eftir kosningar. Erlend kreppa Papandreou hefur variö sig fyrir þessari gagnrýni með því aö benda á erfitt efnahagsástand um allan heim. Þess vegna, segir hann, hefur ekki verið ráðist í neinar þær breyt- ingar, til dæmis í félagsmálum, sem kosta mikla peninga. Breyting á hjú- skaparlögum kostar ekkert, en full- komið heilsugæslukerfi kostar stórfé. En, segja gagnrýnendur frá vinstri, stjórn hans hefur engar áætlanir gegn vandanum. Og meö aðgerðaleysinu svíkur Papandreou sín kosningaloforð, meðan efnahags- aögerðir hans, gengislækkanir, launastöövun, hækkanir á veröi rafmagns og vatns og síma, koma beintniður á þeim fátækustu. Og hægri andstæðingar stjóm- arinnar benda á aö aögerðir stjórn- arinnar leiði til þess aö fjármagns- eigendur f áist ekki til að festa fé sitt í framleiðslugreinum, og iðnaður er að dragast saman. Á meðan minnkar fylgi Pasok, en kommúnistar unnu á í síðustu kosningum David Cornwell eða John le Carré staddur í Aþenu til aö kynna sér staðhætti fyrir sögusvið nýjustu bókar sinnar. sinnis voru drengirnir sendir til dyra til að ljúga fyrir föðurinn, þegar lánardrottna bar að og skuldheimtu- menn. I skólanum reyndi drengurinn að dylja fyrir félögum sínum hvernig heimilishögum hans var háttaö. Fimmtán ára fór hann til náms í Sviss til þess að flýja föðurinn en slapp raunar aldrei undan lyga- og svikabrallinu. I andstæðu við þessa æsku er David Cornwell heimakær faöir. Hann hefur verið kvæntur Jane Eustace, fyrrum ritstjóra stór- útgáfufyrirtækis í Bretlandi, (sem gefið hefur út bækur hans). Hún er hans hægri hönd, ritari, umboðs- maður og fleira. Þau eiga einn son, Nicholas. — Cornwell heldur góðu sambandi viö böm sín þrjú frá fyrra hjónabandi. Um endalok þess segir hann að frægöarljósið hafi varpað of sterkri birtu á brestina. Hann er sagður undirbúa sig ræki- lega fyrir hverja bók og kynna sér til dæmis ítarlega staðhætti. Til dæmis dvaldi hann lengi í Hong Kong áöur en hann skrifaði bókina „The Honourable Schoolboy”, sem gerist að míklu leyti þar eystra. Um þessar mundir vinnur hann að nýrri bók, „The Little Drummer Girl”, þar sem skiptir algerlega um umhverfi, enda kemur Smiley, er var sérfræðingur í Evrópu, hvergi við sögu. Sú bók byggir á átökum Israela og Pale- stínuaraba í Austurlöndum nær og hefur Cornwell dvalið lagtímum í Beírút til þess að kynna sér and- rúmsloftiö. Sigurgleði — Papandreou vann sigur með loforðum um breytíngar. Grikkir eru nú orðnir þreyttír á þvi að biða. HÖFUNDUR NJÓSNA- ÞÁTTANNAVAR SJÁLP UR NJÓSNARIBRETA David Cornwell þekkja fáir, en hinir munu næstum jafnfáir, sem ekki þekkja John le Carré, og er þetta þó einn og sami maðurinn. Híö síðara er aöeins höfundarnafn. Islenska sjónvarpið hefur nú byrjað sýningar á framhaldsþáttum, sem það kallar „Endatafl”, en þeir eru einmítt gerðir eftir einni njósna- bók le Carré, „Smileys People”. „Njósnarinn sem kom inn úr kuldanum” var bókin, sem gerði le Carré heimsfrægan, og síðan hafa streymt frá honum njósnasögurnar, sem hver af annarri hafa orðið met- sölubækur. Bestar hafa þótt sög- urnar um George Smiley, sem sir Alec Guinness leikur í „Blindskák” og framhaldinu „Endatafl”. — Þær eru þó ekki væntanlegar fleiri í bráð, því að höfundurinn taldi sig hafa skrifað síðasta kaflann um Smiiey, þegar hann skrifaði „Smíleys People”. Þó segir hann ekki alveg' loku fyrír það skotið að hann síðar skrifi einhverjar sögur, sem gerasti eigi á fyrri árum njósnaferils Smileys. Þeir, sem David Comwell þekkja, segja hann líkjast einni af söguper-| sónum sínum, Peter Guíllam, fyndinn gáfaöur og sjálfsöruggur fulltrúi yfirstéttar-Breta. En rétt eins og sú leyniþjónustupersóna er Cornwell ekki allur þar sem hann er séður. Hann hefur eins og huliö margt úr fortíð sinni reykskýi eða felulitum, og hugsar að því leytí til eins og njósnari. Sem er nokkuð skiljanlegt. Breska leyniþjónustan hefur æ ofan í æ borið á móti því aö Cornwell hafi starfað sem njósnari sjálfur á hennar vegum fyrr á árum. En fyrr- verandi njósnarerindrekar halda því fram að Cornwell hafi einmitt veriö einn úr þeirra hópi og starfað bæði fyrir M.I.5 (sem var gagnnjósna- deildin) og SIS (Secret Intelligence Service, eins og leyniþjónusta Breta hét, þótt í daglegu tali væri einfald- legakölluðM.1.6). m Umsjón: Guðmundur Pétursson Cornweil hefur sjálfur alltaf farið undan í flæmingi, þegar gengið hefur verið á hann beint. „Eg hef svo sem fetað mig í njósnaheiminum, en það var fyrir löngu, löngu.” Tímaritið „Newsweek” gerir honum nýlega mikil skil í umfangs- mikilli grein og heldur því fram að Cornwell hafi komist í snertmgu við njósnir aðeins 17 ára að aldri, þegar hann lærði þýsku og bókmenntir! við Bern-háskóla í Sviss • Segir blaöið að 19 ára hafi hann veriö að fullu starf- andi í leyniþjónustunni og sendur 1952 til Austurríkís, þar sem hann hafi verið á þönum á milli Vínar og Graz á vegum ieyniþjónustunnar. Til dæmis mun hann hafa tekið þátt í að yfirheyra þær þúsundir flóttamanna, sem streymdu til Austurríkis frá Ungverjalandi og Tékkóslóvakíu, til þess að fletta ofan af laumuerindrek- um. Hann er sagður hafa átt á sínum snærum njósnara, sem hann gerði út austantjalds. Cornwell er ekki yfir sig hrifinn af þessum greftri í fortíð hans og segir leitt aö þurfa að standa skil á tuttugu ára gömlum gerðum sínum. Af tvennu illu vill hann heldur vera álitinn sem „rithöfundur, er eitt sinn var njósnari, fremur en njósnarinn, sem gerðist rithöfundur”. Þeir segja að bemska hans og æska hafi verið góður undirbúningur fyrir njósnara. David Cornwell fæddist 1931 í bænum Poole. Hann þekkti naumast móður sína, sem sdirgaf mann og börn (David og eldri bróður hans Tony). Faðirinn, Ronnie, var varasamur persónu- leiki, aðlaðandi en óáreiðanlegur, lyginn og ómerkilegur. Hann afplán- aöi fangelsisdóma fyrir f jársvik. Oft-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.