Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1983, Síða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1983, Síða 3
DV. ÞRIÐJUDAGUR19. APRÍL1983. 3 Vegir víða um land lokaðir og veður hamlar snjómokstri: UTLAR AHYGGJUR AF OFÆRDINNI — segir ritari landskjörstjómar ,,Ég get ekki séð að það sé ástæða til aö hafa áhyggjur af ófærðinni. Við verðum að athuga það aö kjörstaðir eru margir og stutt að fara hjá flestum,” sagði Friðjón Sigurðsson, ritari landskjörstjórnar, í samtali við DV. Undirkjörstjórn getur frestað kosningu, jafnvel eftir að hún er hafin, ef hún telur óviðráðanlegar aðstæður eins og óveður, hindra kosningu enda komi til samþykki yfirkjörstjómar. Kjósa verður þá aftur innan viku. Sé kosningu frestaö má talning ekki fara fram annars staöar. Kosningu verður að vera lokið hvarvetna. , .Aðalerfiðleikamir verða nú varla við að komast á kjörstað. Kjör- deildimar em margar og sjálfsagt búið að dreifa öllum kjörgögnum. Það tekur kannski lengri tíma aö safna þeim aftur saman. En þaö kemur eftir kosningar. Svo ég hef nú ekki miklar áhyggjuraf þessu. Við eram nú að vona að samgöngur verði komnar í sæmilegt lag á kjördag. Búið er að lýsa því yfir aö allt verði gert til aö ryöja vegi. Ég var að vísu aö heyra að menn gerðu ekki ráð fyrir að tækist að ryöja heim að hverjum bæ. En þar með er ekki sagt að fólkið geti ekki komist á kjörstaö. Ég held að það hljóti aðrætastúr þessu. Það eru nú nokkrir dagar enn til kosninga,” sagði Friöjónígær. Hvernig er f ærðin á landinu? Samkvæmt upplýsingum Arnkels Einarssonar vegaeftirlitsmanns var færð á landinu í gær sem hér segir: Á Snæfellsnesi var víða þungfært og fjallvegir ófærir. Vegir á sunnanverðu nesinu vora opnaöir í gær vegna framboðsfunda og í dag á að opna Kerlingarskarð og Fróöárheiði. Vestan Búðardals var ófært í gær en í dag á aö ryðja úr Dölum í Reykhóla- sveit. Ofært var úr Gufudalssveit vestur í Vatnsfjörð. Barðaströnd var fær stórum bílum og j eppum en Kleif aheiði lokuö. Hún verður væntanlega mokuð í vikunni. Frá Patreksfirði var fært á flug- völlinn og til Bíldudals en lokað í Ketil- dalahrepp og Rauðasandshrepp og óvíst um mokstur fy rir kosningar. Leiðin milli Þingeyrar og Flateyrar var mokuð í gær. Breiðadalsheiði og Botnsheiði voru ófærar og óvíst um Séra Sigurður lætur af störfum Séra Sigurður Pálsson, Vígslubiskup Skálholtsbiskups- vígslubiskup Skálholtsbiskups- dæmis varð hann 1. september 1966. dæmis, hefur sagt starfi sínu lausu Prestar í biskupsdæminu munu velja frá og með 31. júlí nk. Séra Sigurður eftirmann hans úr sínum hópi, og hefur verið starfandi prestur í 50 ár, mun það verða gert áður en langt um en hann var vígður til Hraungerðis- líður. prestakalls í Ámesprófastsdæmi 28. -klp- mai 1933. mokstur. Stefnt er þó að þvi aö moka þær heiðar fyrir kjördag, ef veður leyfir. Ff á Isafiröi var í gærmorgun mokað til Bolungarvíkur. Unnið var að því að moka leiðina inn í D júp og stefnt að því aö opna veginn alla leiðina að Reykja- nesi. Ennfremur var hafinn mokstur á Langanesströnd. 1 Strandasýslu voru allir vegir ófærir í gær. Stefnt er aö því að moka til Hólmavíkur í dag, ef veður leyfir. Ekki verður mokað í Arneshrepp heldur treyst á flugið. Ovíst er um aðra vegi á Ströndum. I Húnavatnssýslum var töluverð öfærð. Unnið var að raðningi á ýmsum leiðum í gær til að liðka fyrir framboðsfundum. Holtavörðuheiði var ófær en verður mokuð í dag. I Skagafirði var unnið töluvert aö mokstri. Vatnsskarð, Norðurlands- vegur og leiðin til Siglufjarðar, en mjög snjóþungt var í Fljótum, voru meðal annars mokuð. Öxnadalsheiöi var fær. I gær var mokaö frá Akureyri til Dalvíkur. Ölafsfjarðarmúli var ófær. Mokað var frá Akureyri til Grenivíkur og um Víkurskarð til Húsavíkur. Leiðin um Dalsmynni var ófær þar sem snjóflóð tók af brú yfir Græfilsgil. Frá Húsavík var unnið að mokstri til Mývatnssveitar og á vegum í Mývatns- sveit. Vegna veðurs í gær var ekkert átt við vegi á Tjörnesi né á Norðaustur- landi. Á Fljótsdalshéraði var þungfært. Fagridalur var mokaður í gær en aðrir fjallvegir á Austurlandi vora ófærir, svo sem Oddsskarö og Fjaröarheiði. Milli Reyðarfjarðar og Fáskrúðs- f jarðar var einungis jeppum og störam bílum fært. Þar fyrir sunnan og meðfram allri suðurströnd landsins var greiöfært til Reykjavíkur. Þó var sandbylur á Mýrdalssandi. -KMU. Dönsk skrifborð gP* Hagstætt verð ^ BÓLSTRUNINGÓLFS Aða/stræti 7, við Hallærisplan — Sími27090. FERÐASKRIFSTOFAN Mallorka__________________ Paradís ájörð Santa Ponsa Santa Ponsa er næsta strönd vestan við Magaluf og er einn allra vinsælasti dvalar- staður á Mallorca. Santa Ponsa er dæmi- gerð sólbaðsströnd, með hvítum ylvolg- um sandi, tærum sjó og allri þeirri þjón- ustu sem hægt er að hugsa sér. Santa Ponsa er um 18 km vestan við höfuð- borgina Palma. Puerto de Andraitx SAGA býður nýstárlega gistiaðstöðu á Mallorca sem er tvímælalaust með því besta sem þar þekkist. Þetta er fjöldi smá- hýsa (bungalows), íbúða og hótela sem heita einu nafni Mini Folies og standa rétt við undurfagurt þorp, Puerto de Andraitx, skammt vestan við Magaluf ströndina. Smáhýsi þessi eru byggð í spönskum lúxus villu stíl og er hvert þeirra á tveimur hæðum. Jardin del Sol SAGA býður gistingu á Jardin del Sol sem er nýtt og sérlega glæsilegt íbúðahót- el er var opnað í júlí 1982. BROTTFARARDAGAR: 11. og 27. maí — 15- júní — 6. og 27 júlí — 17. ágúst og 7. september. Amsterdam______________________ Borgin sem kemur á óvart Þessi borg — Feneyjar norðursins — er ótrúlega fjölskrúðug af mannlífi, lista- söfnum, veitingastöðum, verslunum og skemmtunum. SAGA býður mikla möguleika á ferða- úrvali til Amsterdam. Má þar nefna helg- arferðir, vikuferðir eða lengri ferðir, flug og bíll og möguleika á sumarhúsum í Hol- landi. BROTTFARARDAGAR: Alla þriðjudaga og alla föstudaga. Zurich_______________________ Nýr áfangi hinna vandlátu SAGA býður uppá sérskipulagðar ferðir um mörg fegurstu héruð Sviss. Ferðast er með fyrsta flokks hópferðabifreiðum undir leiðsögn íslenskra fararstjóra. BROTTFARARDAGAR: 22. maí, 29. maí og 5. júní. Veitum alla almenna ferðaþjónustu, flugfarseðla um allan heim, bílaleigubíla, hótelpantanir, lesta- og ferjuferðir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.