Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1983, Síða 15
DV. ÞRIÐJUDAGUR19. APRIL1983.
15
Kjallarinn
Þórunn Friðriksdóttir
þyrftu að vinna fyrir sér sjálfar úti
á vinnumarkaöinum. Eitthvaö annaö
var þeirra hlutskipti. En fjárhagslegt
sjálfstæöi hlýtur aö teljast meöal
grundvallarmannréttinda hvers
manns m.a. Þess utan vinna um 80%
giftra kvenna utan heimilis.
Eg hef aldrei þekkt (ef til vill er þaö
tilviljun, þó held ég ekki) karl sem
alinn hefur veriö upp meö þaö fyrir
augum aö velja sér atvinnu og mennt-
un sem samræmist vel heimilisstörf-
um og barnauppeldi — en ég þekki ótal
konur, sem bent hefur verið á aö hafa
þetta til hliösjónar þegar hugsaö er til
framtíöar.
Ég þekki heldur enga konu sem feng-
iö hefur að heyra í uppeldinu aö hún
þurfi aö velja sér þannig vinnu aö hún
geti séö sómasamlega fyrir manni og
bömum. En ég þekkimarga menn sem
þetta hef ur verið sagt viö.
Þetta eru bara smádæmi af ótal-
mörgum hvernig uppeldið markar
kynjunum ólíkan reynsluheim.
Þegar viö erum oröin fullorðin er sú
reynsla sem viö höfum orðið fyrir ólík
og reynsla karla og kvenna viö bams-
burö er ólík — þó feður taki alveg þátt í
uppeldinu og mótun barnsins heima
fyrir, þá leggur samfélagiö ábyrgöina
á konuna.
Jafnvel þó aö konan sé launahærri en
maöurinn — sjaldgæft en til — þykir
þaö ekki sjálfsagt aö maðurinn gefi sig
meir aö barninu — eöa gerist heima-
vinnandi húsfaöir.
Sá maöur þykir óeðlilegur og örugg-
lega eitthvaö bogið viö hann — aö láta
kerlinguna sjá fyrir sér.
Hvaöa maður er aö því spurður við
ráöningu í vinnu — hvort hann eigi
bam — ef svo — hafi hann örugga
barnagæslu — hvaö ef barnið verður
veikt? Mætir hann þá í vinnuna?
Vinnuveitandinn telur sér ekki koma
þetta viö — þetta sé einkamál viðkom-
andi starfsmanns.
Annað vill oft veröa upp á teningnum
þegar kona sækir um vinnu — þá er
barneign ekki lengur einkamál — held-
ur ókostur viö starfskraftinn — og
skiptir þá stundum meira máli en
reynsla og menntun.
Þegar viö tölum um reynsluheim
kvenna og aö hann sé ólíkur reynslu-
heimi karla erum viö aö tala um aö
samfélagiö móti okkur á ólíkan hátt —
aö reynsla kvenna leiði af sér annaö
verömætamat — önnur lífsgildi — og
aö okkur finnst tími til kominn að
reynsla okkar fái líka aö njóta sín.
Þórunn Friðriksdóttir.
Hægri stefna-
aukin atvinna
Skammsýn
Sífellt heyrast þær blekkingarradd-
ir aö allar hægri stefnur á borö viö
stefnu Sjálfstæðisflokksins boöi at-
vinnuleysi, en er þetta sannleikur?
Nei, þvíferfjarri.
Mikilvægt er hvort fólk horfir til
skammstíma eöa lengritíma.
Þeir sem segja aö ailar hægri að-
geröir boöi atvinnuleysi horfa ein-
ungis til skamms tíma og vitna
gjaman til Bandaríkjanna og
Bretlands en gleyma alveg Frakk-
landi þar sem er engu minna
atvinnuleysi og fer vaxandi, þó eru
sósíalistar viö völd þar.
Þeir hinir sömu gleyma hins vegar
alveg Japönum sem beittu hægri
aögerðum í efnahagsmálum og kom-
ust langfyrstir út úr verðbólguvíta-
hring olíuverðshækkananna og tókst
aðauka straxatvinnuá sama tíma.
Þeir hinir sömu og segja aö allar
hægri aögerðir boöi atvinnuleysi
horfa eingöngu til skamms tíma og
gleyma að horfa til lengri tíma og
gera sér ekki grein fyrir afleiðing-
unum, langtíma atvinnuleysi og
lélegum lífskjörum.
Þeir vilja þá væntanlega halda
áfram núverandi gjaldþrotastefnu
stjórnvalda meö afleiðingum áfram-
haldandi skuldasöfnunar, sem af-
komendur eiga að borga, minnkandi
samkeppnishæfileika .fyrirtækja og
þar með minnkandi líkum á auknum
kaupmætti launafólks og stóraukn-
um líkum á atvinnuleysi til lengri
tíma litið, vegna gjaldþrota fyrir-
tækja.
Þannig á að vera best aö velta
vandanum á undan sér, sem stækkar
eins og snjóbotti, í stað þess aö ráö-
ast aö vandanum strax.
BaldurPétursson
Sumir vilja jafnvel halda uppi
fullri atvinnu meö erlendum lánum,
sem þeir ætla síöan afkomendum
sínum að borga í framtíöinni, —
skrýtin stefna þaö.
Hægri stefna,
aukin atvinna
strax
Nokkrum ríkjum hefur tekist meö
hægri aögeröum aö auka atvinnu
strax, bæöi til skamms tíma og
lengri tíma, sem skiptir þó mestu
máli. Japönum hefur tekist aö
byggja upp eitt öflugasta efnahags-
kerfi í heimi. Þeir beittu hægri
aðgerðum í efnahagsmálum, með
sérstakri áherslu á samkeppnishæfi-
leika fyrirtækja og komust fyrstir út
úr veröbólguvítahring olíuverös-
hækkana og tókst aö auka atvinnu
á sama tíma. Kaupmáttaraukning
hefur veriö hvaö mest í Japan undan-
farin ár og síðast en ekki síst eru
laun verulega há þar sbr. TOYOTA
en þar eru meðallaun um 170 kr. á
tímann.
í Japan hefur veriö hægri stjórn
síöan 1955, og hefur atvinnuleysi ver-
ið nánast óþekkt.
Tæknivæðing — aukinn
kaupmáttur
Orsakir velgengni Japana eru
sjálfsagt margar í smáatriöum, en
gífurleg tæknivæöing atvinnuveg-
anna er ein meginforsendan.
Atvinnufyrirtæki eru hvött til fjár-
festingar í erlendri og innlendri
tækni svo sem kostur er og eru sköpuð
rekstrarskilyrði til þess til að auka
framleiöni fyrirtækjanna og verö-
mætasköpun og stuöla þannig aö
bættri samkeppnisaðstöðu þeirra, og
auka þannig líkur á auknum kaup-
mætti launafólks. Þetta kemur best
fram i stórauknum útflutningi
Japana t.d. á háþróuöum iðnaðar-
vörum, bílum og fleiru, sem er aftur
forsenda fyrir auknum kaupmætti
launafólks.
Einnig hefur aukin tækni skapað
ný atvinnutækifæri og fólk hefur
flust úr erfiöum störf um í léttari.
Alþjóðleg samkeppni
Islendingar eru háöir alþjóöa sam-
keppni eins og aörar þjóðir, hvort
sem okkur líka betur eöa verr og
verðum því einfaldlega aö standa
okkur ef viö ætlum aö viðhalda eða
bæta lífskjör hér á landi.
Þaö verður því aö skapa atvinnu-
vegunum eðlileg rekstrarskilyröi til
aö þau geti tæknivæöst og bætt sína
samkeppnisaðstöðu og skapað þann-
ig auknar forsendur fyrir auknum
kaupmætti launafólks og forsendum
fyrir aukinni atvinnu til lengri tíma
litið.
Hér á landi hafa stjórnvöld hins-
vegar rekiö gjaldþrotastefnu meö
afleiöingum minnkandi samkeppnis-
hæfileika fyrirtækja, óöaveröbólgu,
minnkandi kaupmætti launafólks
líkum á langtíma atvinnuleysi, auk
skuldasöfnunar erlendis handa af-
komendunum.
I komandi kosningum gefst þó
kjósendum tækifæri til aö reyna aö
snúa þessari þróun viö meö því aö
kjósa stefnu eins og stefnu sjálf-
stæðisflokksins ef kjósendur vilja
breytingar.
Baldur Pétursson
SAIMDGERÐI
Blaðbera vantar í Norðurbæ.
Upplýsingar hjá umboðsmanni, simi 7684.
á sínum stað
Er það ekki notalegt aö geta gengið aö öllum
hlutum á sínum staö?
Fyrir suma, til daemis verslanir — lagera —
skóla — spitala — verkstæði — vörugeymslur
er hrein nauðsyn aö hafa allt á sínum staö.
Með SCHÁFER hillukerfinu er þetta hægt. í
þaö er hægt aö fá hirslur fyrir alla skapaöa hluti
og engin hætta er á lausum skrúfum — því
SCHÁFER hillukerfinu er bara smellt saman —
engar skrúfur, boltar eöa rær.
Meö SCHÁFER hillukerfinu sparar þú bæöi
pláss — orku og tima, þaö er auðvelt í
Uþpsetningu, og ef þér er sagt upp
lagerplássinu þarftu ekki aö kaupa húsiö, þvi
það er jafnvel auðveldara aö taka þaö niður.
Með skrúfulausu SCHÁFER hiliukerfinu er
allt á sínum staö, og ekki nauðsynlegt aö leita
að skrúflyklinum inni í isskáp.
Litið inn — hringiö eöa skrifið og fáið nánari
upplýsingar.
skrútulaust hUlukerfl fyrir alta hlub
r r
\f § 84^=^-
VÉLAVERSLUN
Ármúli 8 - 105 Reykjavík - « 91-85840
Jámsmíðavélar - Stálinnréttingar
Fyrir verkstaaði, birgða- og vörugeymslur