Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1983, Síða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1983, Síða 40
40 DV. ÞRIÐJUDAGUR19. APRlL 1983. F/utningur Fridu ti/ Lundúna hefur ekkiáhrifá störfABBA. Sviðsljósið Sviðsljósið Sviðsljósið Betra að búa í London en Svíþjóð —segir Frida í ABBA „Ég kann betur við mig í stórborg. Mér finnst ég vera frjálsari þar sem tiltölulega fáir þekkja mig.” Það er Frida í ABBA sem segir þetta en hún er flutt til Lundúna. Hún segir að fé- lagar hennar í ABBA skilji vel sjónarmið hennar og aö flutningur- inn hafi ekki áhrif á störf hljóm- sveitarinnar. „Mér fannst ég vera svolítið þving- uö í Svíþjóö og hugsaði með mér að nú þegar ég er orðin 37 ára gömul sé síðasti séns til að lifa lífinu lifandi. ” Hún býr nú í Charles Street í May- fair hverfinu, steinsnar frá Hyde Park. Ekki svo að skilja að hún sé eina poppstjama götunnar því Eric Clapton, gítarleikarinn góökunni, býr beint á móti. Sem kunnugt er hefur hún gefið út eina sólóplötu: Something’s going on. Upptöku þeirrar plötu stjórnaöi trommarinn Phil Collins. Hún valdi hann fyrst og fremst vegna þess að hún taldi mikilvægt að fá skilnings- ríkan upptökustjóra vegna þess að hún var nýskilin við Benny Anderson og Phil sjálfur nýskilinn. Samstarfið gekk svo vel að hún hy ggst fá hann til að stjóma næstu sólóplötugerö sinni. Þess má geta að Frida græðir stór- fé á flutningunum vegna hagstæðari skattareglna í Bretaveldi en í Svía- ríki. Samstarf Fridu og Phil Collins gekk sárlega vel er þau unnu að gerð plöt- unnar Something's going on. Nastassia Kinski, stórstjarnan þýska, leikuraðalhlutverkið ímyndinni Tunglið i göturæsinu á móti vinsælasta leikara Frakka um þessar mundir, Gérard Depardieu. Fjórar myndir keppa fyrir Frakka á Cannes Frá Sigríði M. Vigfúsdóttur, frétta- ritaraDVíParís: Frakkar hafa valið þær fjórar kvikmyndir sem munu keppa fyrir hönd Frakka á kvikmyndahátíðinni í Cannes sem haldin verður 7.—19. maí næstkomandi. Þar er fyrsta að telja Tungiiö í göturæsinu eftir Jean-Jacques Beineix, höfund Diva, með Gérard Depardieu og Nastassia Kinski í aðalhlutverki. Hún fjallar um hafnarverkamann í hefndarhug vegna þess að systur hans hefur veriö nauðgað. Peningarnir heitir mynd Robert Bresson sem keppa mun á Cannes. Hún fjallar um bankaræningja sem sleppt er lausum úr fangelsi. Hann umturnast við að fá frelsið aftur og fremur hræðileg morð. Þriðja mynd Frakka á Cannes verður Morðsumar eftir Jean Beck- er, með Isabelle Adjani í aðalhlut- verki. Hún f jallar um unga konu sem hefnir nauðgunar móður sinnar 20 árum eftir þann hræðilega atburö. Fjórða myndin er svo Særði maðurinn eftir Patrice Gérard. Hún fjailar um hómósexúal mann sem selur bliðu sina og samskipti hans viö melludólginn. Athygli vekur að í myndinni leikur Caroline Lang dótt- ir Jack Lang, menningarmálaráö- herra Frakka. ás Górard Depardieu. Isabelle Adjani leikur aðalhlutverkið i mynd Jean Becker, Morðsumar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.