Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1983, Side 32
27022 AUGLÝSINGAR SÍÐUMÚLA33 SMÁAUGLÝSINGAR — AFGREIÐSLA SKRIFSTOFUR ÞVERHOLTI 11
866Í1 RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12—14
FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 1983.
Reykjavík:
Aðeins 1382
breytingar
á kjörseðlum
Breytingar á kjörseðlum i Reykja-
vík í alþingiskosningunum nú voru
miklu færri en tvennar síöustu kosn-
ingar. Samtals reyndust þær 1382 en
voru2253 árið 1978 og 1813 árið 1979.
Breytingar þessar, sem geta bæði
verið útstrikanir og breyting á töluröð
listanna, skiptust þannig milli flokka:
A-listi 89, B-listi 40, C-listi 19, D-listi
995, G-listi 222 og V-listi 17. JBH
Upplags-
eftirlit
blaða og
tímarita?
Verslunarráð Islands boðaöi í gær
til fundar með útgefendum dagblaða
og tímarita, ásamt fulltrúa Sambands
íslenskra auglýsingastofa um upplags-
eftirlit blaða og tímarita. Á fundinum
voru fulltrúar frá DV, Tímanum,
Morgunblaðinu og ýmsum timaritum.
Engar ákvarðanir voru teknar á þess-
um fundi en ákveðið að halda viö-
ræðum áf ram um miðjan maí.
JBH
Geim-
skutlunni
seinkar
aðeins
Eins og viö sögöum frá í blaðinu í
gær er von á að Boeing 747 þota með
geimskutluna Colombiu á bakinu milli-
lendi hér á landi. Geimskutlan er á leiö
á flugvélasýninguna miklu í París en
þar verður hún til sýnis.
Að sögn Ken Yates hjá Menningar-
stofnun Bandaríkjanna mun skutian
ekki koma hér við í næstu viku eins og
talið var í fyrstu. Mun hún verða eitt-
hvað seinna á ferðinni og er ekki vitað
með vissu hvaða dag það verður.
-klp-
LOKf
Loki hefur ákveðiO að
snúa sór að fasteignasölu
í Kaupmannahöfn.
Heilaskemmdir af völdum „sniffs” geta þýtt:
og varanlega lömun
rætt við Helga Sigurðsson, lækni á lyf læknisdeild Borgarspítalans
„Skaðsemi þessara efna er mikil.
Þess er dæmi hér á landi aö einstakl-
ingur hafi fengið hjartastopp og hlot-
ið varanlegar heilaskemmdir vegna
misntokunar þeirra,” sagði Helgi
Sigurðsson, læknir á lyflæknisdeild
Borgarspítalans, er DV ræddi við
hann um skaðsemi hinna svokölluðu.
„sniffefna”.
„Skaðsemin er tvenns konar. Ann-
ars vegar er um snemmkomnar
aukaverkanir að ræða, sem hafa
áhrif á lungu, hjarta og miðtauga-
kerfið og hins vegar eru langtíma-
aukaverkanir.”
Helgi sagði að dæmi um snemm-
komnar alvarlegar aukaverkanir
váeru lungnabjúgur, hjartsláttar-
truflanir og krampar. En sviði í aug-
un, meltingartruflanir, ógleði og
uppköst væru minni háttar snemm-
komnar aukaverkanir.
„Hvað langtímaaukaverkanir
snertir er vitað aö það verður mikil
heilarýmun af þessum efnum og þau
geta valdiö því að beinmergurinn
eyðileggist. Einnig hafa þau
„karakterbreytingar” í för meö
sér.”
En hvað einkennir þessi svoköll-
uöu„sniffefni”?
„Það sem er einkennandi fyrir
þau er hversu rokgjöm þau eru.
Þetta þýðir að um leið og þau harðna
rýkur upp ákveðið efnasamband sem
veldur „rússi” ef því er andað að sér.
Og þá má geta þess að í flestum
þeirra em efnin xylene og toluene,
sem eru mjög rokgjörn og náskyld
efninu benzene, sem er krabba-
meinsvaldandi.”
DV vonar að með þessum orðum
sem hér hafa komið fram geri ungl-
ingar og krakkar sér grein fyrir
skaðsemi „sniffsins” og láti reynslu
þeirra sem skaðast hafa fyrir lífstíð
séraðkenningu verða.
-JGH
V°r loksins vor . . . hugsar margur mætur möriandinn um þassar sinn. Á Akureyri er blíðskaparveður og ekki annaö að sjá á DV-mynd Guð-
mundir. Eftir langan og strangan vetur hefur frést af kriu I Reykjavík - mundar Svanssonar af Akureyrarhöfn en aö enn hafi vor sigrað vetur um
o vefengjaniegt merki þess að Vetur konungur á undir högg að sækja um siðirá norðurslóðum.
Snjóbfll tók að klrfra
upp á Bronco og Mözdu
Frá Einari Rafni Haraldssyni,
fréttaritara DV á Egilsstöðum:
Eitthvert undarlegasta umferðar-
óhapp sem menn muna á Egilsstöð-
um varð í gærkvöldi um klukkan tíu
er mannlaus snjóbíll tók sig til og fór
að klifra upp á Bronco-jeppa og
Mazdabíl.
Forsaga þessa máls er sú að fund-
ur var hjá Slysavarnafélaginu á
Egilsstöðum í húsi félagsins við Blá-
skóga. Er fundarsalurinn á efri hæö
hússins en á þeirri neðri er bílskúr og
þar var snjóbíUinn geymdur.
SkyndUega heyrðust ógurlegir.
skruðningar og læti fyrir utan húsið.
Menn spruttu á fætur og hlupu hver
um annan þveran að glugganum tU
að sjá hvað var að gerast.
Sáu þá menn hvar snjóbUUnn,
mannlaus, var kominn fjóra metra
út á bílastæöiö og farinn að klifra upp
á Broncoinn og Mözduna. Spólaöi
hann á húddinu á báðum bUunum.
Var hann fljótlega stöðvaður við
þessaiöjusína.
Fyrst héldu menn að yfirnáttúru-
legir hlutir væru að gerast en síðar
kom í ljós að tveir níu ára drengir
höfðu sett bUinn í gang í bílskúrnum
og var hann í gír. Þeir gátu þó forðað
sér út úr bUnum.
Bílamir eru hvorugur mikið
skemmdir en væn beltaför sjást á
húddinu.
-JGH.