Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1983, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1983, Blaðsíða 8
8 DV. ÞRIÐJUDAGUR 21. JUN! 1983. Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd manna í Líbanon, sjást hér viö einar sprengjurústirnar í Beirút. RÓSTUR OG SPRENGJU- TILRÆÐI í LÍBANON Sjö sýrlenskir hermenn eru sagöir hafa verið drepnir í launsátri í Libanon í gær á sömu slóðum og skæruliöar hafa veitt ísraelska hernámsliöinu þyngstar búsif jar aö undanfömu. Tveir ofurstar munu hafa veriö meðal hinna drepnu. Þeir voru á ferö í herbíl þegar launsátursmenn skutu af byssum sínum á kyrrstæðan bíl sem þeir viröast hafa komið fyrir, hlöönum sprengiefni. Sprengjutilræöi hafa verið tíö aö undanfömu í höfuöborginni Beirút en aöalskotmörkin hafa verið verslanir í eigu Palestínuaraba. Þó ber hærra í fréttum líbanskra fjölmiöla umræður vegna skýrslu h'b- anskra yfirvalda um fjöldamoröin í Sabra og Chitila í fyrrasumar, þegar Beirút var umsetin af Israelsher, reiðubúnum til innrásar. Rannsóknar- aðilar þess opinbera tel ja að 460 manns hafi látið lífið í flóttamannabúöunum í blóðsútheliingunum. I skýrslunni er ábyrgöinni varpað á Israelsmenn, sem höfðu svæðiö á valdi sínu, en hleyptu herskáum hægrisinna Libönum inn í búöirnar til leitar að skæruliðum Palestínuaraba, sem áttu að hafa yfirgefiö Beirút undangengna daga. I skýrslunni er ekki tilgreint hvaða bardagasveitir hægrimanna hafi verið þama að verki. En tekið er fram, að friðargæslusveitir Itala, Bandaríkjamanna og Frakka gæti nú öryggis búðanna. Verkalýösfélög, sem telja sig spanna þriðjung vinnuafls í Chile, hafa nú boð- að til allsherjarverkfalls frá fimmtu- deginum að telja og viröast nú reiðu- búin til þess aö láta skeika að sköpuöu við herforing jast jórnina. Verkfallið var boðað skömmu eftir að dómari úrskuröaði sex af verka- lýðsforingjum kopamámumanna í fangelsi og þar á meöal forseta námu- manna, Hugo Estivales. — Kopar- námumenn hafa veriö í verkfalli að undanförnu til þess aö fylgja eftir kröfum um að einn forvígismanna þeirra, sem verið hefur í haldi að undanförnu, verði látinn laus. Koparnámumenn höföu leitað lið- sinnis hjá öörum verkalýðssamtökum og óskað samúðarverkfalls en stjórnir þeirra tregðuðust við í fyrstu. Fangelsisúrskurðimir í gær virðast hafa riðið baggamuninn. Engin viðbrögð við þessari nýju verkfallsboðun vom komin fram í morgun af hálfu stjórnvalda. Pinochet forseti hefur áður lýst því yfir aö hann muni brjóta á bak aftur sérhverja and- stööu við st jórn hans. Þaö eru samtök vörubístjóra sem riðið hafa núna á vaðiö með kopar- námumönnum, en þessar tvær stéttir hafa verið í fylkingarbrjósti verkalýðs- baráttunnar í Chile. Kopamámumenn og vörubílstjórar stóðu fyrir verkfalls- aögerðum, sem voru undanfari þess aö Saivador Allende forseta var velt úr stóli 1973. Háskólastúdent í Santiago reynir að kæfa táragassprengju lögreglunnar undir fótum sér í óeirðum á stúdentagörð- unum núna í vikunni, en glæður óánægju hafa safnast að höfði herforingjastjórnarinnar og stefnir í allsherjarverk- fall. Allsherjarverkfall í vændum í Chile FÍNIR MENN í GULL- INNKAUPI Lundúnalögreglan heldur úti um- ávísununum með því að hringja í fangsmikilli leit að svindlurum sem bankana sem vísað var þar á. En við fyrir helgina sviku út Krugerrand því höföu þjófamir séð. Dulklæddir guilmynt að verðmæti um 780 þúsund sem símvirkjar höfðu tveir þeirra steriingspund og rufu til þess síma- rofið símalögnina í götunni og annar lagnirtilgullsalans. sést við tæki sem hann setti í sam- band viðtengiboxgullsalans. En jafnvel laganna verðir geta Svöruðu þeir símahringingunum ekki að sér gert og dást að fram- og þóttust svaramenn viðkomandi kvæmd þessa þjófnaðar, sem fór banka. Fullvissuðu þeir gullsalann fram um hábjartan dag og var fram- umaðávísanirnar værugulls ígildi. inn af fínum mönnum meö skjala- Lögreglan hefur ekkert spor til töskur. þess að rekja í leitinni að þjófunum Tveir bófanna klæddir að hætti en þeir höfðu verið svo bíræfnir aö virðulegra kaupsýslumanna og með ráða öryggisfyrirtæki til þess að hinar ómissandi skjalatöskur, sem flytja gulipeningana, 2.400 talsins, slíkum fylgir gjaman, keyptu gull- frá guilsalanum til skrifstofu sem peningana, sem ganga á alþjóða- þeir höfðu sett á svið gagngert til mörkuðum kaupum og sölum sem svindlsins, aðeins viku fyrr. Flutn- gull, en þeir eru annars slegnir í ingsaöilar höfðu vart fyrr skilað Suður-Afríku. En gullið greiddu þeir sendingunni en þjófamir höfðu sig meðtveimfölskumávísunum. sjálfir á burt af „skrifstofunni” á Að sjálfsögöu gekk gullsalinn úr hælum þeirra með ránsfenginn og skugga um aö innistæður væru fyrir hefur ekkert til þeirra spurst síðan. Rósrauð mótmæli Lögreglan i Stokkhólmi handtók um helgina 50 friðarboðbera sem reyndu að planta rósarunnumog korai á lóðum bandarisku og sovésku sendiráðanna. Fólkið sagðist gera þetta sem tákn mót- mæia þeirra við stefnu þessara ríkja í vígbúnaðarmálum. öllum var sleppt aftur samdægurs úr haldi. Vilja ekki geisla- virkefniísjóinn Þrjú bresk stéttarfélög á flutn- ingasviði lýstu því yfir um helgina að þau mundu beita sér gegn því að frá Bretlandi yrði varpað geisla- virku úrgangsefni í Atlantshafiö en það hafði einmitt verið fyrirhugað í næsta mánuði. Þetta eru samtök farmanna, vörubílstjóra og lestarstjóra sem neita að eiga hlut aö því að flytja slíkan úrgang. Hvetja þau bresk stjóravöld til þess að leggja bann við þessari losun úrgangsefna um tveggja ára bii á meðan sérfræð- ingar og vísindamenn gangi úr skugga um hvort þaðséhættulegt. Bretar ætluðu að byrja í júlí að losa sig við nær 4 þúsund smálestir af geislavirkum úrgangi um 500 mílur út af Suðvestur-Englandi. Þar er sjórinn þriggja mílna djúpur. Var þar varpað í fyrra 2.500 tonnum af slíku efni sem komið haföi verið fyrir í stáltunn- umog steinsteypukerjum. Áttuaöleggja grunninnaö eit- urlyfjamarkaöi? Fíkniefnalögregla Filippseyja kom höndum yfir 3,7 kg af hreinu heróini og handtók þrjá Pakistana í Manila um helgina. Sex aðrir hafa verið teknlr til yfirheyrslu. Pakistanarair eiga yfir höfði sér ákærur sem geta varðað dauða- refsingu en þeir eru taldir úr al- þjóðlegum eiturlyfjasmyglhring sem starfar á Indlandsskaga, 1 Bandarikjunum og i Evrópu. Gruntir leikur á því að þrimenn- ingarair, sem komu til Filippseyja fyrir tvcim mánuðum, hafi átt að koma á fót eiturlyfjamarkaði í Manila og dreifingarmiðstöð til framhaldssmygls til Bandarikj- anna og Japan. Höfðu þeir þegar selt 11/2 kg af beróinl. Lefebvre vfkur afbiskupsstóli Marcel Lefebvre erkibiskup í Sviss, sem reynst hefur páfagarði óstýrilátur og óhlýðinn uppreistar- kennimaður, hyggst setjast í helg- an stein í mánaðariokin en hann er 78 ára gamall orðinn. Páfagarður skipaði honum 1976 að láta af öllum prestskap þegar hann neitaði að verða við fyrirmæl- um páfabréfa þar sem honum þótti leiðtogar kaþólsku kirkjunnar sveigjast tii of mikils frjálslyndis og undanlátssemi við lauslyndi og léttúðtíðarandans. Hann hefur samt stýrt söfnuði sínum sem hann kennir við heiiag- anPíus X. Eftirmaður hans hefur þegar verið valinn og verður Franz Schmidberger ábóti frá Göttingen i V-Þýskalandi. Rikidæmi kirkj- unnar skattlagt áMöltu Stjóra Möitu lagði fram um helg- ina framvarp sem felur i sér að kirkjan verði að láta fé af höndum rakna til menntamála af ágóða sem hún hefur af elgnum sínum og jarðarsölum. Rómversk-kaþólska kirkjan er auðug vel á Möltu og á að skatt- leggja tekjur hennar af kirkjueign- um en sá skattur skal standa straum af ókeypis skólagöngu. Dómur fyrir pyntingar Það hefur mælst vel fyrir meöal almennlngs í Suður-Kóreu að lög- reglumaður , sem fundinn var sek- ur um að hafa valdið gæsiufanga líkamsmeiðingum er leiddu hann til dauða, hefur verið fangelsaður. Þeir bjartsýnustu vonast til þess að þetta tákni tímamót þar sem pyndingar á föngum lögreglunnar legglst af. Þær munu hafa verið hversdagslegur viöburður í tíð fyrr- verandi forseta Park Chung-Hee. Núverandl stjóra Chun Doo Hwan forseta virðist mjög annt um að bæta álit S-Kóreu út á við sem réttarríki og dómurinn yfir lög- reglumanninum þykir bera því vitnl. Flestra hald er að hann hefði slopplð án refsingar í tíð Parks.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.