Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1983, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1983, Blaðsíða 32
32 DV. ÞÍUÐJUDAGUR21. JUNI1983. Andlát Jón E. Ragnarsson lést 10. júní. Hann fæddist 24. desember 1936 í Reykjavík. Foreldrar hans voru Ragnar H.B. Kristinsson (kjörfaðir) og Matthildur Eövaldina Edwald. Jón lauk stúdents- prófi árið 1957 og lögfræðiprófi frá Há- skóla Islands 1966. Ritstjóri Vöku 1958—59 og Ulfljóts 1960—61. For- maður Stúdentaráðs 1962—63 og full- trúi stúdenta í háskólaráði 1963—64. Blaðamaður við morgunblaðið 1960— 65. Framkvæmdastjóri Heimdallar 1957—58 og sat í stjórn félagsins 1958— 60. I stjóm og varaformaður SUS 1962—69 og í flokksráði Sjálfstæðis- flokksins 1964—70. Setti á stofn lög- mannsskrifstofu í Reykjavík 1969 og hefur starfað sem lögmaöur síðan. Jón var kvæntur Sigríði Ingvarsdóttur en þau slitu samvistum. Utför hans verður gert frá Dómkirkjunni í dag kL 13.30. Rannveig Ásgeirsdóttir lést 13. júni. Hún fæddist að Hóli í Bolungarvík 4. júlí 1893. Hún giftist Friðrik Magnús- syni útvegsbónda að Látrum í Aðalvík, hann lést fyrir alllöngu. Þau eignuöust einn son. Síðustu æviárin dvaldist Rannveig að Hrafnistu. Utför hennar verður gerð frá Fossvogskirkju í dag kl. 15. Elísabet Borg, Espigeröi 4, verður jarösett frá Fossvogskirkju fimmtu- daginn 23. júní kl. 15. Þórir Einarsson Long, trésmíöameist- ari, Safamýri 52, lést 18. þ.m. Jakobína Pálmadóttir lést af slysför- um laugardaginn 18. júní. Kjartan Baldvinsson, Grundargerði 10, er lést 16. júní, verður jarösunginn fimmtudaginn 23. júní kl. 15 frá Bústaðakirkju. Gestur Sigurjónsson, Tunguheiði 14 Kópavogi, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 22. júní kl. 15 Hjörtur Ólafsson Theodórs húsgagna- smiðameistari, Safamýri 65, verður jarðsunginn frá Safnaöarheimili Grensáskirkju miövikudaginn 22. júní kl. 15 Ólafur R. Einarsson menntaskóla- kennari, Þverbrekku 2, verður jarð- sunginn frá Fossvogskirkju miðviku- daginn 22. júní kl. 13.30. Vilmundur Gylfason alþingismaöur er látinn. Stefanía Marta Guðmundsdóttir andaðist 16. júni að Hrafnistu, Hf. Hjörtur Kristmundsson fyrrverandi skólastjóri andaðist í Landakots- spítala 17. júní. Baldur Jónsson frá Mel, rektor Kenn- araháskóla Islands, andaðist í Landa- kotsspítala aðfaranótt 19. júní. Júlíus Einarsson, Skálaheiði 7 Kópavogi, lést í Hjúkrunarheimilinu Sunnuhb'ðl7. júní. Elísa Ólöf Guðmundsdóttir andaöist í Borgarspítalanum 19. júní. Agnar G. Breiðfjörð forstjóri.Lauga- teigi 27, lést í Landspítalanum 19. júní. Tilkynningar Lestunaráætlun Skipadeildar Sambandsins HULL/GOOLE: Jan ... 27/6 Hvassafell . 19/7 Jan .. .11/7 Hvassafell ..2/8 Jan ... 25/7 KAUPMHÖFN: ROTTERDAM: Hvassafell .22/6 Jan ... 28/6 Hvassafell 6/7 Jan ...12/7 Hvassafell .20/7 Jan . ..26/7 Hvassafell 3/8 ANTWERPEN: SVENDBORG: Jan .. 14/6 Helgafell .17/6 Jan ... 29/6 Hvassafell .23/6 Jan .. 13/7 Dísarfell .27/6 Jan . .27/7 Hvassafell 7/7 HAMBORG: Helgafell .19/7 Jan ...16/6 AARHUS: Jan .. 1/7 Helgafell .17/6 Jan ..15/7 Hvassafell .23/6 Jan ..29/7 Dísarfell .27/6 HELSINKI: HvassafeU 7/7 Helgafell .. 10/6 Helgafell . 19/7 Helgafell . .15/7 GLOUCESTER, LARVIK: MASS.: Hvassafell.... . .20/6 Skaftafell .21/6 Hvassafell ... .. 4/7 Skaftafell .19/7 Hvassafell.... .. 18/7 Jökulfell .28/7 Hvassafell ... .. 1/8 HALIFAX, GAUTABORG KANADA: Hvassafell.... ..21/6 SkaftafeU .23/6 Hvassafell ... .. 5/7 ’SkaftafeU .21/7 Vesturbræður syngja í Bú- staðakirkju í kvöld Karlakórinn Vesturbræður frá Seattle í Bandaríkjunum heldur tónleika í Bústaða- kirkju í kvöld, þriðjudagskvöld, og hefjast þeir kl. 20.30. Þetta verða einu tónleikar Vest- urbræðra í Reykjavík í þessari fyrstu ferð kórsins til Islands, en þessi kór er skipaður Vestur-Islendingum svo sem kunnugt er. Stjórnandi kórsins er Emest Anderson og meðal einsöngvara eru Dr. Edward Palma- son, Jon Palmason og Delbert Anderson. Agn- es Löve er píanóleikari kórsins hér á landi. A þjóðhátíðardaginn söng kórinn í Elliheimilinu Grund og í Menntaskólanum í Reykjavík við mjög góðar undirtektir áheyrenda. Á verkefnaskrá kórsins eru m.a. lög úr söngleikjunum Oklahoma, Carousel, South Uppboð til sameignarslita á fasteigninni Mávanesi 20, Garðakaupstaö, þingl. eign Eddu Jóhannsdóttur og Brands Brynjóifssonar, fer fram eftir beiðni sameigenda á eigninni sjálfri föstudaginn 24. júní 1983 kl. 15.30. Bæjarfógetinn í Garðakaupstað. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 19., 24. og 27. tölublaöi Lögbirtingabiaðsins 1983 á eigninni Daisbyggð 1, Garðakaupstað, þingl. eign Óskars G. Sigurðs- sonar, fer fram eftir kröfu innheimtu rikissjóðs og Sveins H. Valdimarssonar hrl. á cigninni sjálfri föstudaginn 24. júní 1983 kl. 14.45. Bæjarfógetinn í Garðakaupstað. Nauðungaruppboð sem augiýst var í 19., 24. og 27. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1983 á eigninni Ægisgrund 12, Garðakaupstað, þingl. eign Örlygs Arnar Odd- geirssonar, fer fram eftir kröfu Garðakaupstaöar á eigninni sjálfri föstudaginn 24. júní 1983 kl. 16.00. Bæjarfógetinn í Garðakaupstað. í gærkvöldi í gærkvöldi AÐ HAFA VIT Á MÁLUNUM Þátturinn Ur Ferðabók Sveins Pálssonar, sem Tómas Einarsson stýrði í útvarpi í gær, var hinn áheyrilegasti. Þar fór saman skemmtileg frásögn og lifandi ferða- lýsingar. Og mikið gerir það f rásögu- þætti áheyrilegri ef skotið er hljóm- list inn á miili frásagnaratriða, eins og þarna var gert. Fleiri mættu taka sér það til fyrirmyndar þar sem við verður komið. Eg verð að taka undir það með einum kollega mínum hér á DV að auglýsingaflóðið í sjónvarpi getur verið skelfing þreytandi. Það getur verið beinlínis lýjandi að horfa og hlusta á sömu þvottaefnis- og súpu- aríurnar aftur og aftur, þegar fólk heldur sig í afslökun fyrir framan varpið. En allir verða að selja sitt og víst er þetta besta leiðin. Frændi minn lítill beljar t.d. alltaf Emmess-ís-lagið af mikilli innlifun þegar hann heyrir þaö í sjónvarpi. Undantekningarlítið snýr hann sér svo að mömmu sinni og segir: „Mamma, gemmér emmeþþ-íþ”. Og þar með er tilganginum náð, ekki satt? Mánudagsmyndin, Dálitill söngur og dans, var dæmigerð fyrir fyrsta vinnudag vikunnar. Hálf-mæðuleg mynd um unga konu sem missti móð- ur sína og tók að sér götusöngvara í staðinn. Vafasamt hvemig þau skipti komu út þegar upp var staðið. Danska fréttamyndin Metorð undir ráðstjóm var mjög athyglis- verð fyrir margra hluta sakir. Þar var varpað fram spurningunni: „Hvemig komast menn til valda undir ráöstjóm?”. Henni svaraöi fólk, sem gjörkunnugt var málefnum Sovétríkjanna. Og spumingunni var raunar svaraö í upphafi þáttar, þeg- ar fram kom að í kosningum til borg- arráða vissu kjósendur almennt ekki hvaða menn þeir höfðu kosið. Þeir skiluðu bara sínum kjörseðlum, til að staðfesta vilja þeirra sem „vit hafa á málunum”. Og kjörsóknin er aldrei undir 99% í lýðræðisríkinu því. Jóhanna S. Sigþórsdóttir. Pacific og My Fair Lady og einnig nokkrir negrasálmar, enn fremur hiö þekkta lag Amazing Grace í mjög fallegri útsetningu. Þá syngja Vesturbræöur nokkur íslensk lög, þar á meöal eftir Ragnar H. Ragnar á Isafiröi, sem var söngstjóri nokkurra kórfélaga í Karlakór Islendinga í Norður Dakota fyrir mörgum árum, og er Ragnar kominn til Reykjavíkur til aö hitta sína gömlu vini og hlýða á söng þeirra. A morgun, miðvikudag, syngur karlakór- inn Vesturbræöur í Logalandi í Reykholtsdal kl. 21. og á laugardaginn í Aratungu kl. 21.30. Eldri Barðstrend- ingar Kvennadeild Baröstrendingafélagsins fer sína árlegu Jónsmessuferð sunnudaginn 26. júni frá Umferðarmiðstöðinni að austanverðu kl. 10.30. Farið verður að Skógum undir Eyja- fjöllum. Safnið skoðað o.fl. Barðstrendingar, 67 ára og eldri, sérstaklega boðnir. Vinsam- legast tilkynnið þátttöku fyrir föstudags- kvöld. Upplýsingar gefur Maria í síma 40417, Margrét í síma 37751, Helga í síma 72802 og María í sima 38185. Jónsmessuvaka við IMor- ræna húsið. Samtök vinafélaga Norðurlanda á Islandi efna til norrænnar hátiöar — Jónsmessuvöku — fimmtudaginn 23. júní ki. 20. á lóð Norræna hússins. Jónsmessuvaka var haldin í fyrra í fyrsta skipti af sömu aöilum og tókst hún mjög vel. Ýmislegt verður til gamans gert á þessari Jónsmessuvöku og meðal þátttakenda verða margir góðir gestir frá Norðurlöndum sem munu skemmta með söng, dansi og spili. Reist verður Jónsmessustöng að sænskum sið og kveiktur Jónsmessueldur. Homaflokkur Kópavogs leikur meðan fólk er að safnast saman, stúlknakór frá Tromsö syngur, tveir norskir visnasöngvarar syngja, stiginn verður færeyskur dans, lúðrasveit frá Levanger í Noregi leikur og dansað verður kringum jónsmessubálið við undirleik harm- ónikuleikara úr Harmóníkuklúbbnum. Visnakver með norrænum söngvum verður til sölu og grillaðar pylsur og aðrar veitingar verða til sölu. Aðgangur að Jónsmessuvökunni er ókeypis og allir eru velkomnir. Ferðalög Orlofsdvöl húsmæðra í Garðabæ verður á Laugarvatni vikuna 11.-17. júlí. Nánari upplýsingar gefur Kolbrún Lorange í síma 42526 eftir kl. 19.30 á kvöldin. Útivistarferðir Símsvari: 14606. Sumarleyfisferð nr. 1. Við Djúp og Drangajökul. Jónsmessuferð 23.-26. júní. Fuglaparadisin Æðey. Kaldalón og Möngufoss. Drangajökulsganga ef vill. Góð gisting. Styttri ferðir: Sumarferð 1983 til Vestmannaeyja: 25.—26. (iaugard.—sunnud.). Aætlun: Lagt af stað frá Fríkirkjunni stund- víslega kl. 11.00 árdegis 25. júní og ekið til Þorlákshafnar og siglt með Herjólfi kl. 12.30 til Vestmannaeyja. Þar tekur Páll Helgason á móti þátttak- endum og annast framhaldið, þ.e.a.s. sér fyrir gistingu, skoðunarferðum og máltíð. Heimleiðis verður haldið með Herjólfi kl. 14.00 26. júní og í Þorlákshöfn bíður rúta og flytur farþega í bæinn. Innifalið í miðaverði er: farmiði Reykjavík — Vestmannaeyjar — Reykjavík, gisting, skoðunarferð, skoðun náttúrugripasafns og ein máltíð. Verð miða er kr. 1.450,00 ATH: Miðafjöldi er takmarkaöur. Kaupið því miða strax. Nánari upplýsingar í símum 33454, 32872 og 43465. Breiðfirðingafélagið í Reykjavík Sumarferð verður að þessu sinni farin í Þórsmörk, föstudaginn 8. júlí kl. 20.00. Farið verður frá Umferðarmiðstöðinni. Allar nánari upplýsingar gefur stjórn féiagsins. Frá Húsmæðraoriofi Kópavogs Orlofiö verður á Laugarvatni vikuna 27. júní — 3. júlí. Tekið verður á móti innritun og greiðslum miðvikudaginn 15. júní milli kl. 16 og 18 í Félagsheimili Kópavogs. Nánari upplýsingar veittar í síma 40576 Katrín, 40689 Helga og 45568 Friöbjörg. Rangæingafélagið í Reykjavík efnir til skemmtiferðar laugardaginn 25. júní nk. Brottfór verður frá Umferðarmiðstöðinni kl. 8.00. Farið verður í Þjórsárdal, um virkjanasvæöi Búrfells, til Sultartanga og Hrauneyjafoss. Virkjanirnar verða skoðaðar með kunnugum leiðsögumanni. Komið verður að Laugalandi í boði kvenfélaga Asa- Holta- og Landhreppa. Skráning og upplýsingar í símum 76238 og 83792. Stjórnin. Ferðafélag íslands Kvöldferðir F.I. 1. Þriðjudag 21. júní, kl. 20.Miönæturganga á Esjusumarsólstöður. Verð kr. 150. Farþegar á eigin bilum.velkomnir í hópinn. 2. Fimmtudaginn 23. júní, kl. 20. Jónsmessu- næturganga. Ekið að Kalmannstjöm (sunnan Hafna). gengið þaðan gamla þjóðleið í Staðar- hverfi vestan Grindavíkur. Létt ganga. Verð kr. 300. Farið frá Umferðarmiðstöðinm, aust- anmegin. Farmiðar við bíl. Helgarferðir 24.-26. júní: 1. Hagavatn—Jarlhettur—Geysir. Gist í sæluhúsi við Hagavatn. Gönguferðir með far- arstjóra, Tryggva Halldórssyni. 2. Þórsmörk. Gist í sæluhúsi. Gönguferðir með fararstjóra. ATH.: Miðvikudaginn 29. júní verður fyrsta ferðin fyrir þá, sem óska að dvelja milli ferða í Þórsmörk. Leitið upplýs- inga á skrifstofunni og kaupiö farmiða í ferð- irnar. Sumarleyfisferðir í júní og byrjun júlí: 23.-26. júní (4 dagar): Þingvellir—Hlöðu- vellir—Geysir. Gönguferð með viðleguútbún- að. Gist í húsum/tjöldum. 1.—10. júlí (10 dag- ar): Hvítámes—Þverbrekknamúli—Þjófa- dalir. Gönguferð. Gist í húsum. I þessari ferð verður farið í Karlsdrátt, gengið á Hrútfell, Fjallkirkjuna og viðar. Homstrandir: 2.-9. júlí (8 dagar): Homvík—Hornstrand- ir. Gist í tjöldum. Gönguferöir frá tjaldstað meö fararstjóra, Gisla Hjartarsyni. 2.-9. júlí (8 dagar): Aðalvík—Hornvík. Gönguferð m/viðleguútbúnað. Fararstjóri: Hjalti Kristgeirsson. 2.-9. júlí (8 dagar): Aðalvík—Hesteyri. Gist I tjöldum og famar dagsferðir um ná- grennið. 2.-9. júlí (8 dagar): Borgarfjörður eystri — Loðmundarfjörður. Flogið til Egilsstaða, þaðan með bíl til Borgarfjaröar. Gist í húsum. Fararstjóri: Tryggvi HaUdórsson. Leitiö upp- lýsinga um nánari tilhögun ferðanna á skrif- stofunni, Öldugötu3. Ferðafélag Islands. Afmæli Útivistarferðir Þriðjudagur 21. júní kl. 19.30 og 20. Sólstöðu- ferð í Vlðey. Leiðsögumaður Lýður Bjömsson sagnfræðingur. Verð 120 kr., frítt f. böm m. fuUorðnum. Brottför frá Sundahöfn (kora- hlaðan).Sjáumst. Fimmtudagur 23. júní kl. 20. Niunda Jóns- mcssunæturganga (Jtivistar: Kjalamesfjör- ur—Torfhringurinn. Torfhringurinn er byggð- ur samkvæmt gömlum .ileösluaðferðurn. Byggingin er miðuð við Keili og SnæfeUsjlik- ul. Varðeldur og súpa. Verð 150 kr., frltt f. böm. Tryggvi Hansen útskýrir tilurð bygg- ingarinnar. Brottför frá BSI, bensínsölu. Sjá- umst. 70 ára er í dag frú Ingibjörg Kristjáns- dóttir, Tjamarbraut 5 í Hafnarfiröi. Hún ætlar að taka á móti gestum sín- um í Góðtemplarahúsinu þar í bænum eftirkl. 19íkvöld.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.