Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1983, Blaðsíða 19
DV. ÞRIÐJUDAGUR 21. JUNl 1983.
legt hvað margar leiöimar voru með
líku yfirborði og íslenskir vegir og
landslagið oft likt, sérstaklega í há-
löndunum.”
— Kom eitthvert óhapp fyrir
ykkur í keppninni, sprungið dekk,
útafakstur eða annað?
„Nei, en við skiptum um girkassa
til öryggis, þar sem við þóttumst
heyra aukahljóð i kassanum. Það
kostaði okkur reyndar minútu í
mínus en að öðru leyti kom ekki rispa
á bílinn og hann er þess vegna til-
búinn i næstu keppni. ”
— Nú lentuð þið í 10. sæti og unnuö
til nokkurra verðlauna. Bjuggust þið
við þetta góðum árangri?
„Þetta var draumurinn,” sagði
Birgir Viðar, „en viö gerðum ráö
fyrir að hámark 15. væri raunhæft og
hefðum sætt okkur við það, svo þetta
var f ramar vonum.”
— Þaðhefurveriðsagtaðatvinnu-
ökumenn liti svolítiö stórt á sig, eins
og reyndar afreksfólk í öðrum
íþróttum. Urðuð þið varir viö þetta í
Skoska rallinu?
, ,Það bar aðeins á þvi í Mintex rall-
inu, en var þveröfugt i þvi skoska, og
það voru engin merkilegheit í nein-
um þeirra ökumanna sem við hittum
í þessari keppni. Samneyti milli
toppökumannanna var mikið og
alltaf verið aö ræða tima hver
annars og annað sem upp kom i
keppninni.”
— Nú fréttist að Hafsteinn hefði
meitt sig i úlnliðnum i keppninni. Var
það eitthvað til trafala ?
„Astæðan fyrir því er sú,” sagöi
Hafsteinn, ,,að stýrismaskínan í bíln-
um er ekki dobluð eins og i venju-
legum bilum og á einni leiðinni snerti
hægra framhjólið trjádrumb sem lá
út á veginn. Við það sló stýrið mig
hastarlega og ég hef sennilega
tognað smávegis. Eftir það ók ég'
með vafinn úlnlið og þaö jafnaði sig
strax. Annars eru átökin við stýrið í
svona keppni mikil og sumir öku-
menn kvörtuðu undan eymslum af
svipuðum ástæðum.”
— Eitthvað skemmtilegt hlýtur að
hafa gerst í keppninni sem þið getið
sagt okkur frá?
„Jú, eitt og annað gerðist,” heldur
Hafsteinn áfram. „Ég get t.d. nefnt
smáuppákomu sem varð á einni
tímavarðstöðinni. Erwin Weber og
Gunter Wagner óku á Opel Manta 400
en þeir eru frá Þýskalandi. Þessi bíll
er mikið úr plasti til aö hafa hann
sem léttastan. Þeir voru búnir að
dingla honum dálitið utan i, og í
öðrum áfanga lentu þeir í árekstri á
ferjuleið. Þeir héldu þó áfram en bíll-
inn var meira og minna plástraöur
saman og ekki hægt að opna nema
aðra hurðina. Þegar við vorum aö
bíða við sérleið 46 vorum við Per
Eklund, Russel Brookes, Stig
Blomqvist og ég að tala við Þjóð-
verjana þegar Skotinn Jimmy
McRae kom askvaöandi og rykkti
upp heilu hurðinni á bílnum áður en
Weber náði að stöðva hann. Hurðin,
sem er að mestu úr plasti, slitnaði af
og Jimmy hélt á henni i hendinni og
vakti þetta mikinn hlátur við-
staddra. Eftir þetta fóru Þjóð-
verjamir ekki út úr bfinum fyrr en
að keppni lokinni því að nú voru
báðar hurðirnar limdar á bfiinn með
límbandi.”
— Hverjir studdu ykkur í þessari
ferö, Birgir?
„Það voru ESSO, Amarflug, Haf-
skip, Bandag og Taitel Electronics
ásamt Ford umboöinu Sveini Egils-
syni, en allir þessir aðilar auglýstu á
bilnum og kunnum viö þeim bestu
þakkir fyrir aðstoðina. Einnig
fengum við frábæra aðstoð hjá
Graham Walker, Alan Wilkinson og
Alan Benson en þeir voru í þjónustu-
liðinu okkar.”
— Var mikill áhugi hjá Bretum á
íslenskum röllum?
)rIá, maður varð var við mikinn
áhuga hjá keppendum og blaða-
mönnum, bæði á islenskum röllum.
og Islandi almennt, og mikinn áhuga
á að koma til Islands og keppa.”
— Ætliðþiðaðfaraafturaðkeppa
erlendis?
. „Já, við höfum fullan hug á því,”
segir Hafsteinn, „og þá er Skoska
rallið ofarlega á blaði enda töluvert
líkt okkar keppnum. Annars verða
næstu keppnir okkar hér heima fyrst
á Húsavík í júli og síöan Ljómarallið
í ágúst.” „Við förum aftur að keppa
erlendis,” bætir Birgir við,
„spumingin er bara hvenær. ”
—Ólafur Guðmundsson
Hér eru þeir félagar að renna i gegnum endamarkið og að vonum ánægðir eftir vel
heppnaða keppni og góðan árangur, en þeir lentu í 10. sæti yfir heildina.
MyndirÓG
Sigurvegaramir í Skoska rallinu, þeir Stig Blomqvist og Bjöm Cederberg, í sam-
ræðum við borgarstjórann i Glasgow.
Að vonum hvildinni fegnir og gæða sér á kók og marz í einu af viðgerðastoppunum
ikeppninni.
Hér taka þeir Hafsteinn og Birgir við White Horse verðlaununum sem sigurvegar-
ar einkaaðila í Skoska rallinu.
19
Allar vörur fyrirtækisins
með 50% afslætti
Við breytum rekstrinum og seljum
því allar vörur verslunarinnar
i dag og næstu daga
með helmingsafslætti.
Missið ekki af útsölu ársins.
Tjöld og viðlegubúnaður
í miklu úrvali
Sérstaklega bendum við á:
Tjaldborgartjöldin
sem eru sérhönnuð
fyrir íslenskt
veðurfar.
GÚÐ
GREIÐSLUKJÖR
TÓmSTUnDflHÚSIÐ HF
Laugauegi 164-Reiitiauit $=21901