Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1983, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1983, Blaðsíða 34
34 DV. ÞRIÐJUDAGUR 21. JUNÍ1983. DÆGRADVÖL DÆGRADVÖL DÆGRADVÖL Klúbburinn EINHERJI er lík lega þægilegustu féla;' isamtök á öllu landinu. Þar eru aldrei neinir fundir, engin valdabarátta, eng- inn forsmáöur metnaður, engin of- f jölgun og engin skrif finnska. „Einherji” er klúbbur þeirra lánsömu kylfinga sem létu draum allra kylfinga rætast og slógu holu í höggi. Og hvaö er svo eftirsóknarvert viö það að slá holu í höggi? Þaö er að minnsta kosti örugg vísbending um aö hamingjudísinni hefur fundist það ómaksins vert að brosa fallega við þessum lánsama kylfingi, því að íþróttin felst einmitt í því að koma kúlu í holu og það tekur ávallt nokkur högg á hverri braut, og þar heyrir til fá- dæma þegar einhverjum tekst að hæfa holuna á nærri tvö hundruð metra færi eða gott betur. Golf o Baldur Hermannsson „Iss, þetta er bara heppni og á ekkert skylt víð raunverulega leikni í golfi,” sagði mér miðaldra kylfingur sem öðlast hefur nokk- um frama á vellinum græna en aldrei þann að slá holu í höggi og verður honum þó grunsamlega oft tíðrætt um slíka viðburði. — Þetta minnir mig nú meir en ítið á einn hershöfðingja Napóle- )ns, sagði ég. Hann var sigursæll í irrustum, en óvildarmenn hans við hirðina sögðu að hann væri ekkert góður hershöfðingi, hann væri bara svona heppinn. Já, vel má það vera, sagði Napóleon, en heppinn hershöfðingi er góður hershöfðingi. Og ætli það gegni ekki svipuðu máli með golfið? En kylfingurinn, félagi minn, dæsti bara þunglega og fitlaði ann- ars hugar við kylfuna sína. Þegar fyrstu kylfingarnir á Is- landi slógu holu í höggi taldist það til stórtíðinda og það svo mjög að Sveinn Björnsson í Saab-umboð- inu hét hverjum slíkum afreks- manni gullúri í verðlaun. Þegar golfíþróttinni óx fiskur um hrygg fjölgaði „einherjum” svo ört að Sveinn varð að slá af og nú munu hátt í hundrað kylfingar eiga rétt áþátttöku. Við skulum taka nokkra þeirra tali: Björgvin Elvar Björgvins- son, kylfinginn unga sem síðastur vann þetta sjaldgæfa afrek; Olöfu Geirsdóttur, sem lengi hefur verið í fremstu röð íslenskra golfkvenna og sú fyrsta sem sló holu í höggi; og þá er ekki síður vert aö hnippa í sjálfan höfuðpaurinn, hann Kjart- an L. Pálsson, sem er formaður klúbbsins og hefur oftar en nokkur annar Islendingur unnið sér til frægðar með einu höggi vel úti látnu. FYRSTA KONAN í KLÚBBNUM Völlurinn í Grafarholti hefur tekið stórfelldum breytingum frá árinu 1966. Holunum hefur fjölgað úr tólf í átján, tjömin er minni um sig en þá var og gróðurfar ailt á þessum slóðum er heldur ríkulegra. Þar sem ellefti teigur var þá er núna órækt og þýfi, en Olöf Geirsdóttir hefur samt gilda ástæðu til þess að muna þennan stað því að einmitt þarna sló hún holu í höggi 30. maí fyrir sautján árum. Teigurinn, ef teig skyldi kalla, var þá ekki mikið annað en dálítil motta_ lögð ofan á tréfleka, en ekki var þó þessum búnaði alls varnað, því fallega flaug hún, kúlan, þennan dag rakleiðis yfir litlu tjömina og beint ofan í holuna sem beið hennar í 180 metra fjarlægð. „Auðvitað fannst mér þetta dálítið sérstakt,” segir Olöf, ,,en það var samt ekki fyrr en f rá leið að ég fór að skynja hvaö raunverulega hafði skeð. Það er óskaplega gaman aö eiga þessa reynslu að baki og virki- lega gamanaðminnast hennar.” Einn af þeim fyrstu til þess aö óska Olöfu til hamingju var Páll Ásgeir Tryggvason, sem þarna var að spila í grenndinni. Hann rak Olöfu remb- ingskoss og sýnilega kunnu ham- ingjudísimar vel að meta svo ridd- aralega framkomu, því að fáum dögum síöar leyfðu þær honum náð- arsamlegast að slá einnig holu í höggi! Ölöf Geirsdóttir varð fyrst ís- lenskra kvenna til þess aö vinna þetta skemmtilega afrek og hún var iengi vel í fararbroddi íslenskra golf- kvenna. „Það er í rauninni furðulegt hvað fáar stúlkur gefa sig að golfinu,” segir hún, „því að þessi íþrótt hent- ar jafnt konum sem körlum og reyndar allri f jölskyldunni. Þarfyrir utan er þetta dásamleg líkamsæfing að ganga hringinn og fátt er það sem jafnast á við aö skreppa á völlinn á sunnudagsmorgnum með fjölskyld- unni í staö þess að sofa frameftir eða hanga heima við. Ég leik flesta daga níu holur ásamt manninum mínum, og þó að sumir mæti heldur pattara- legir til leiks að vori þá hverfurmag- inn algerlega þegar líður á sum- arið.” — Hefurðu nokkum tíma verið ná- lægt því að slá holu í höggi í annað sinn? „Já, einu sinni. Það var úti á Nes- velli. Kúlan staönæmdist alveg á holubarminum. Það munaði svo litlu — en þa ð m unaði því! ” Ölöf Geirsdóttir mundar kylfuna. Myndín er tekin skömmu eftir að hún sló hoiu í höggi á þessum stað fyrir 17 árum. Þessi mynd er tekin á nákvæmlega sama stað, 17 árum síðar. Staðhættir hafa breyst mikið en tjörnin er enn á sínum stað. Mynd BH.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.