Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1983, Síða 11
DV. ÞRIÐJUDAGUR 21. JUNl 1983.
11
PRESTASTEFNA HEFST í DAG
Afsláttur
afflugi
Flugleiðir ætla að bjóða sérstak-
an afslátt af fargjöldum fyrir fólk
utan af landsbyggðinni sem vill
koma til Reykjavíkur í lok mánað-
arins á Sönghátíð ’83.
Sönghátíðin hefst mánudaginn
27. júní með tónleikum Gérard
Souzay og Dalton Baldwin. Þriðju-
daginn 28. júní eru tónleikar
Glenda Maurice og Dalton Baldwin
og fimmtudaginn 30. júni, Elly Am-
eling og Dalton Baldwin. Allir tón-
leikarnir veröa haldnir í Austiur-
bæjarbíói og hef jast klukkan 21.00.
-JBH.
Prestastefnan 1983 hefst í dag í
Reykjavík. I ár er minnst 500 ára af-
mælis Marteins Lúters um allan heim
og tekur prestastefnan að sjálfsögðu
miðafþví.
Framsögumenn verða þrír um aðal-
efni stefnunnar: Hinn lúterski arfur
kirkju samtímans. Sr. Jónas Gíslason
dósent fjallar um siðbótarmanninn
Martein Lúter, séra Þorbjöm Hlynur
Arnason ræðir um guðfræði Marteins
Lútere, sér í lagi hugmyndina um hinn
almenna prestdóm en séra Þorberg-
ur Kristjánsson mun taka fyrir stöðu
kirkj unnar í íslensku þ jóðlífi.
Synodan mun fjalla um efnið í um-
ræðuhópum og í almennum umræðum
auk annarra mála. Fundarstaður
Prestastefnunnar í ár er Háskóli Is-
lands.
Kynning á Lútersári
Séretök nefnd, Lútersnefndin, hefur
umsjón með því kynningaretarfi sem
framferá Lútersárinuhérlendis.Mun
nefndin hafa kynningu í samkomusal
Norræna hússins á myndaefni síðdegis
á miðvikudag kl. 16.30 og ýmsum bátt-
um í dagskrá kirkjunnar á afmælis-
árinu. Megináherslan i kynningar-
starfinu verður á haustmánuöum og er
fyrirliggjandi ýmiskonar fræðsluefni
til nota í söfnuðum og öðrum félögum.
Synodus erindi
í útvarpi
Að venju verða tvö erindi flutt i út-
varpi á vegum Prestastefnunnar. Sr.
Auður Eir Vilhjálmsdóttir fjallar um
Lútereka heimssambandið en hún er
þar í stjóm. Erindið hefst kl. 16.20
laugardaginn 25. júní. Daginn eftir,
sunnudag 26. júní kl. 16.20, flytur séra
Guðmundur Oli Olafsson erindi sem
hann nefnir: Góðverkið mikla.
NORSK EÐA NORRÆN
RÁS Á NÆSTA ÁRI
— sem myndi nást hér á landi, til umræðu á fundi norrænu
ráðherranef ndarinnar í morgun
Eiga Islendingar kost á norskri
eða norrænni sjónvarpsrás þegar á
næsta ári? Því svarar ráðherrafund-
ur Noröurlanda sem hófst í morgun
klukkanníuhéríReykjavík. ,
„Norðmenn eiga pantaða rás í
ECS f jarekiptahnettinum sem skotið
verður upp á næsta ári,” sagöi
Halvdan Skard, foretjóri Norrænu
menningarmálanefndarinnar, en
hann er hér staddur vegna fundar
ráðherranefndarinnar.
„Norðurlöndunum hefur verið boðið
að taka þátt í samstarfi um þessa rás
og hefur menningarmálanefndin
komið með tillögur að slíku sam-
starfi sem ræddar verða á fundinum
ídag.”
,,Eg tel þetta vera skref á lengri
braut í þróun norrænna samskipta í
sjónvarpsmálum,” sagöi Halvdan
Skard. Nú þegar er komin reynsla á
sendingar frá tilraunahnettinum
OXS, en tekið hefur verið við
sendingum frá honum inn á kapal-
kerfi i Noregi og Finnlandi. Ein
norræn rás í ECS er ódýr lausn
miðað við alnorrænan fjarskipta-
hnött, NORDSAT, sem lengi hefur
verið til umræðu í Norðurlandaráði.
Það myndi kosta um 490 milljónir ís-
lenskra króna miöað við þriggja ára
tímabil að starfrækja þessa einu rás
en þar við bætist kostnaöur vegna
efnisins.
Menningarmálanefndin lagði fyrir
fundinn í morgun hugmynd að því
hvemig dagskrá slíkrar norrænnar
rásar gæti litið út, en tekin var ein
vika í maí og valið úr sjónvarpsdag-
skrám allra Norðurlandanna efrii
sem vænlegt þótti til sendingar.
Tímamunurinn innan Norðurland-
anna gerir erfitt fyrir því þegar
henta myndi að senda barnaefni til
Islands þá er komiö langt fram á
kvöld í Finnlandi.
Fleiri rásir 1986?
Norrænum tilraunafjarekipta-
hnetti, Tele-X, verður væntanlega
skotið á loft 1986. Samvinna hefur
verið um þennan hnött af hálf u Norð-
manna og Svía og nú í síðustu viku
tilkynntu Finnar aö þeir yröu einnig
með. I Tele-X verður rúm fyrir tvær
sjónvarpsrásir og veröur hægt að
taka beint á móti sendingunum á
hverju heimili ef vill. Ekki er enn
ljóst hvort eða hvemig verður hægt
að ná sendingum frá þessum hnetti
hér á landi. Að sögn Halvdan Skard
þarf að kanna á hvern hátt Tele-X
kemur inn í frekara samstarf
Norðurlandanna í sjónvarpsmálum.
Fleiri ásir 1989?
A næsta vori þarf því aö taka
ákvarðanir um frekara áframhald
samstarfs Norðurlandanna um sjón-
varpssendingar þannig að hægt verði
að hefja reglulegar sendingar 1989.
Þá er gert ráð fyrir þremur rásum
sem þjóna myndu austurhluta
Norðurlanda og einni sem ná myndi
til Islands og Færeyja. Stefnu-
mörkun í þessu mun verða til um-
ræðu á f undinum í dag.
Hugmynd Norðmanna með því að
panta rás i ECS var að koma dag-
skrá norska sjónvarpsins til olíubor-
pallanna í Noröursjó og jafnframt til
Svalbarða. Sú sending myndi án efa
nást á Islandi. Ef norræn rás á ekki
upp á pallborðið hjá ráðherranefnd-
inni í dag þá gæti svo farið að rás tvö
í íslenskum sjónvarpstækjum á
næsta ári yrði norek.
Danir hafa að nokkru staðiö utan
við umræðuna um móttöku gervi-
hnattasjónvarps. Vilji var fyrir
slikri móttöku en lögin sögðu nei. En
nú er verið að vinna að því að lögun-
um verði breytt.
„Þetta samstarf innan Norður-
landanna er framkvæmanlegt með
þeim tæknibúnaði sem fyrir hendi er
í dag,” sagði Halvdan Skard. I
umræðunni um Nordsat kom fram að
smíða þyrfti sérstakan búnaö sem
gerði þá áætlun dýrari. Gert er ráð
fyrir að skjóta gervihnöttunum upp
meö evrópskri eldflaug, Ariane.
-JR
Halvdan Skard
mannahöfn.
— forstjóri Norrænu menningarmálaskrifstofunnar i Kaup-
DV-mynd Einar Ölason.
íslendingar eiga verk á norrænni myndlistarsýningu
— opnuð íHelsinki, fer síðan um Norðurlönd
Þrír íslenskir listamenn eiga verk á
listsýningunni Borealis — norrænar
myndir 83 sem opnuö hefur verið í
Konsthallen í Helsinki. Það er Nor-
ræna listamiöstöðin í Svíavígi (Svea-
borg) sem gengst fyrir sýningunni.
Þar sýna alls sextán listamenn, þrír
frá hverju Norðurlandanna og einn frá
Færeyjum, Ingólfur af Reyni. Islend-
ingarnir eru Ásgerður Búadóttir,
Gunnar öm og Magnús Tómasson.
Þetta er fyrsta stóra farandsýningin
á norrænni nútimalist síðan 1976—77,
að sýningin „Augliti til auglitis” fór
um Norðurlönd. Þar voru mörg íslensk
verk.
Borealis — norrænar myndir 83
verður í Helsinki fram í júlí, en fer
þaðan til Danmerkur, Noregs og
Færeyja. Hún verður sett upp á
Kjarvalsstöðum næsta sumar og lýkur
í Svíþjóð haustiö 1984.
Sænski myndlistarmaðurinn Tage
Martin Hörling valdi veikin í samráði
við þjóðardeildir norræna myndlistar-
bandalagsins.
Ásgerður Búadóttir, Magnús Tómasson og Gunnar öm
farandsýningu.
— eiga verk á norrænni'
fyrir isbúðir
TOLEDO
PANTANASir/ll
78924
REYKJAVlK 9tS6915/4tBSI
AKUREYRI 96-23515/21715
BORGARNES: 93- 7613
BLÖNDUÓS: 95-4136
SAUÐÁRKRÖKUR: 95- 5223
SIGLUFJÖRÐUR: 96-71489
HÚSAVlK: 96-41260/41851
VOPNAFJÖRÐUR: 97- 3145/3121
EGILSSTAÐIR: 97- 1550
HÖFN HORNAFIRÐI: 97- 8303/ 8503
jinterRenti
. 9I-869IV1I6IS_ ■
Wufíyfi Tiyggv«n>«ut 14 96-USIS/JI ?1S
HÁBERG HF.
AUGLÝSIR
fyrir bílinn:
STARTARA, ALTERNATORA,
nýja og verksmiðju-
uppgerða, ásamt varahlutum.
SPENNUSTILLA (Cut-out),
landsins besta úrval.
MIÐSTÖÐVAMÓTORA
RAFMAGNS BENSÍNDÆLUR
STEFNULJÓSABLIKKARA
RELAY, 12V og 24V
KVEIKJUHLUTI
KERTAÞRÆÐI
HÁSPENNUKEFLI
KERTI, BOSCH-SUPER
SÍUR, allar gerðir
LJÓSAPERUR, SAMLOKUR
ÞURRKUMÓTORA
HÖGGDEYFA
SPÍSSADÍSUR
GLÓÐARKERTI
SKIPTIROFA, 12V/24V
BÚKKAMÓTORA, DÆLUR
LUMENITION
MARK-II
HLEÐSLUTÆKI
TÍMABYSSUR
AFGASMÆLA
HÁBERG HF.
Skeifunni 5,
sími 91-84788.