Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1983, Síða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1983, Síða 18
18 DV. ÞRIÐJUDAGUR 21. JUNI1863. I «■ ** ______ - . •r~~——; .. • ■ ííísJwafHHBBWBws mm ......... • f < > „Þetta var draumurinn” Amold Clark Scottish Rally lauk í Glasgow í síöustu viku, eins og fram hefur komið í fréttum, með frá- bærum árangri íslensku keppend- anna, þeirra Hafsteins Haukssonar og Birgis Viðars Halldórssonar. Þeir lentu í 10. sæti á Ford Escort bíl sín- um af 71 keppanda sem lögðu af stað. Sigurvegarar í keppninni voru Sví- amir Stig Blomqvist og Bjöm Ceder- berg á Audi Quattro sem Audi verk- smiðjurnar gera út. Þessi bíll er mjög öflugur og eins og nafnið gefur til kynna er hann með drif á öllum hjólum, hann er með 5 cylindra vél og turbo, sem er um 380 hestöfl. Eftirlæti Skota í keppnirni, Jimmi McRae og Ian Grindrcd, höfnuðu í 2. sæti á Opel Manta 400, og Englend- ingarnir Russell Brookes og Mike Broad á Vauxhall Chevette í þriðja. Hafsteinn og Birgir unnu til marg- víslegra verðlauna fyrir utan 10. sætið yfir heildina. Þeir urðu í 2. sæti í sínum flokki, þeir unnu White Horse farandverölaunin fyrir fyrsta sæti einkaaðila, þ.e. sem ekki em gerðir út af fyrirtæki. Einnig fengu þeir Glasgow Herald verölaunin fyrir það sama. Þá fengu þeir The Daily Mail verðlaunin fyrir 1. sæti þeirra keppenda sem vom í fyrsta skiptið að keppa í Skoska rallinu. Birgir Viðar vann The Hunter Forbes verðlaunin, sem veitt eru að- stoðarökumanni þess bíls sem er efstur einkaaöila. Það hefur heyrst og því verið haldiö fram af ýmsum hér á landi undanfariö að rallakstur sé eitthvert einangrað fyrirbæri sem einungis vanþróaðar þjóðir leyfa og þeir sem hafi ánægju af þessari íþróttagrein eða stundi hana séu ekki eins og fólk er flest. Hvað þá að íþróttir af þessu tagi séu leyfðar á almennum eða vemduðum svæðum. Skoska rallið um síöustu helgi afsannaði allar þessar kenningar nema þá aö Bretar og aðrar þjóðir Evrópu séu svona vanþróaðar. Skoska rallið var fyrst haldið áriö 1932 og hefur verið árviss viðburður allar götur síöan með örfáum undan- tekningum. Þessi keppni er önnur stærsta rallkeppnin á Bretlands- eyjum, einungis RAC rallið, sem fram fer í nóvember, er stærra. Keppnin er haldin af The Royal Scottish Automobile Club, í sam- vinnu við Arnold Clark bílasölu- og bilaleigurnar og Holiday Inn hótelin, ásamt nokkrum smærri klúbbum og félögum, og voru starfsmenn við keppnina um 1500. Alls var keppnis- leiðin 1850 km með 50 sérieiðum sem samtals voru 443 km að lengd. Keppnin hófst 11. júní kl. 17:00 við George Square, sem er nokkurs konar „Austurvöllur” Glasgow borgar, og fyrsta sérleið var í Bellahouston Park á malbikuðum gangstígum og akvegum sem um garðinn liggja. Bellahouston Park mætti líkja við sambland af Mikla- túni og Laugardal hér í Reykjavík. Síðan var keppnisleiðin að mestu um skóga og heiðar skosku hálandanna norður með vesturströndinni, fram hjá Loch Ness til Iverness, og síðan suður Mið-Skotland til Glasgow þar sem var næturstopp eftur 27 klukku- stunda keppni. Vorusérleiöirnarým- ist um einkalönd, skógarstíga eða verndar- og útivistarsvæði á vegum Forest Commission. Voru slík svæöi iðulega merkt með stórum skiltum sem kváðu á um umgengni og t.d. bönnuöu reykingar, en eldar eru aðalskaðvaldurinn í skógunum eins og allir vita. I þessum fyrri áfanga keppninnar gekk þeim Hafsteini og Birgi vel og engar bilanir eöa annaö hrjáði þá, ef frá er talið suð sem þeir töldu sig heyra í gírkassa bilsins á siðustu sér- leið dagsins. Til öryggis var skipt um gírkassann, en það tók örlítið of langan tíma og við það fengu þeir 60 sekúndur í ferjuleiðamínus. I lok fyrri áfanga voru þeir félagar í 14. sæti meö 3:00:21 í mínus, en Stig Blomqvist hafði leitt keppnina frá upphafi og var með 2:38:46 í mínus í lok fyrri áfanga. Siðari áfangi hófst snemma á mánudagsmorgun, en þá fór bíll þeirra Hafsteins og Birgis ekki í gang og mættu þeir 6 mínútum of seint í ræsinguna. Þaðkom þó ekki að sök nema þeir færðust aftar í rás- röð. I fýrri hluta seinni áfanga var ekið suður frá Glasgow að landa- mærum Englands, og aftur til baka. Hluta af leiðinni rigndi eins og hellt væri úr fötu og höfðu þurrkumar varia undan. I viðtali við DV sagði Stig Blomqvist að hann væri ánægður með rigninguna, því að f jór- hjóladrifiö í Quattro bílnumkæmi að mjög góðum notum á blautum og sleipum vegum. I sama streng tók Svíinn Per Eklúnd sem ók Toyota Corolla GT en þó aö bíll hans væri ekki með fjórhjóladrifi sagðist hann kunna vel við sleipa vegi, sem hann reyndar er vanur frá Svíþjóö. Ekki voru allir jafnánægðir en ekkert var við því að gera. Aðfaranótt þriðju- dags var gert 4 klst. hlé og þá voru okkar menn komnir í 12. sæti. Á síð- ustu leiðunum bar lítið til tiöinda og eins og áður kemur fram varð Stig Blomqvist sigurvegari, og Hafsteinn og Birgir höfnuðu í 10. sæti. Alls komu 33 bilar í mark af þeim 71 sem hófu keppnina. Meðal þeirra sem ekki luku keppni má nefna Ford öku- mennina Malcolm Wilson og Louise Aitken en gírkassarnir gáfu sig í bílum þeirra beggja. Kappaksturs- maðurinn Simon Everet, sem ók á Datsun 240 RS, ók út af og Chris Lord á Mazda RX 7 féll út er afturhásingin gafsig. Mikill fjöldi áhorfenda fylgdist með keppninni enda er rallakstur með vinsælustu íþróttagreinum í Bretlandi. Til marks um hvaða augum rallakstur er litinn í Bret- landi má nefna þaö aö breski herinn hefur gert út allt aö 15 Land Rover jeppa i Skoska rallið til þess eins aö þjálfa ökumennina i akstri og öku- leiknl Er keppt um þrenn verðlaun í því sambandi. Reyndar var ekki nema einn slíkur meö í ár. DV tók þá félaga tali eftir keppn- ina og spurði þá fyrst hvort mikill munur væri á Skoska rallinu og Mintex rallinu sem þeir tóku þátt í fyrr á árinu í nágrenni við York á Englandi. ,,Já, það er mikill munur,” sagði Hafsteinn, „því í Skoska eru miklu skemmtiiegri leiðir, meira um beygjur, fastara undirlag og umfram allt skyggni ágætt, em mikil þoka skemmdi fyrir Mintex rallinu. Annars var merki- Einn af AUDI Quattro bilunum í keppninni kemur hér á fullri ferð fyrir eina beygjuna á hinum krókóttu skógarstígum sem keppt var á og eys grjóti yfir mennina sem standa á bak við. Mynd ÓG LOKAÚRSLIT í SKOSKA RALLINU 1 1 S. Blomqvist B. Cederberg Audi Quattro 7 5: 5: 2 2 2 J. McRae 1. Grindrod Manta 400 7 5: 9:37 3 5 R. Brookes M. Broad Chevette 7 5:12: 3 4 3 P. Eklund D. Whittock Corolla GT 3 5:20:17 5 6 T. Kaby R. Arthur Chevette 7 5:25:43 6 9 E. Weber G. Wanger Manta 400 7 5:27:52 7 14 A. Cowan A. Douglas Audi 80 Qtro 7 5:29:38 8 16 D. Weidner M. Greasley Audi Qto 8 5:29:50 9 50 A. Wood N. Ewing Sunbeam 3 5:40:42 10 12 H. Hauksson B. Halldorsson Escort PS 7 5:45: 1 11 29 R. Close D. Wilford Manta GTE 4 5:46: 1 12 22 1. Hughes B. Rainbow BMW323Í 5 5:46: 3 13 18 J. Flemíng R. Cunningham Celica 2000GT 8 5:5026 14 42 P. Burch G. Marlow Sun. Lotus 7 5:55:28 15 35 A. Jackson F. Stuart-Brown Manta 400 7 5:56:48 16 33 C. Valentine B. McGhie Sunbeam 8 5:59: 2 17 53 N. Calvert D. Read Escll RS2000 4 5:59:21 18 11 J. Haugland P. Foubister Skoda 120LS 2 6: 1:44 19 40 V. Wetton P. Horsburgh Escort RS 8 6: 4:52 20 56 T. Cree T. Gelder Escll RS2000 4 6: 5:25 21 51 B. Wiggins T. Shepherd Astra 3 6: 6:45 22 60 R. Barry A. Gardiner Sunbeam ti 3 6:10:30 23 58 A. Barclay A. Russeli Escll RS2000 4 6:17:28 24 54 1. Harrison J. Hough Astra 2 6:18:34 25 61 P. Clayton R. Dunhill Starlet 2 6:36: 5 26 72 B.Lochhead D. Ringer Aveng. 1600GT 3 6:36:47 27 43 R. Stubber W. Piilar Sunbeam 3 6:39:53 28 67 J. IVIoxon S. Moxon Astra 2 6:48:45 29 48 K. Adamson P. Carstairs Esc RS 1800 8 6:50:26 30 75 A. Strachan B. Langley Land Rover 8 7:16:47 31 65 D. Hardy A. Turnbuli Sunbeam 1 7:3129 32 74 B. Rawcliffe C. Cullen Kadett 2 7:47:23 33 71 J. Stevens M. McGhee Mazda RX7 5 7:59:35

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.