Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.1983, Blaðsíða 2
2
DV. FÖSTUDAGUR 8. JOLl 1983.’
Færeyjar:
Tílraunaveiðar
á gulllaxi gefa
göða raun
Fró Eðvarð T. Jónssyni, fréttaritara
DVíFæreyjum:
Tilraunaveiðar Færeyinga á gulllaxi
hafa gefið ágæta raun og stefnt er að
áframhaldandi tilraunum á þessu
sviði, að sögn fiskifræðinga hér í Þórs-
höfn.
Tilraunimar stóðu yfir nú í júnímán-
uði og fékk skipið sem stundaöi
veiðamar Magnús H. Einarsson rúm-
lega 100 tonn á þessum tíma.
Forstjóri Fisks hf. í Hvalbæ á Suður-
ey segir aö ljóst sé nú aö gulllaxinn
sem veiöist við Færeyjar sé ágætlega
vinnsluhæfur en hins vegar hafi komið
í ljós gallar á vinnslubúnaði í frystihús-
inu þar sem gulllaxinn var unninn.
Fiskurinn var eingöngu unninn í blokk
og marning.
Færeyingar hafa góðar vonir um aö
geta hafið vinnslu á gulllaxi til mann-
eldis áður en langt um líður en eins og
stendur eru það nær einvörðungu
Rússar og Norðmenn sem veiða þessa
fisktegund. Selja Norðmenn mestalla
framleiðslu sína til Austur-Þýska-
lands.
ETJ/ás
Hjálparstofnun kirkjunar:
FJÖRUTÍU TONN
AF SALTFISKI
SEND TIL GHANA
Hjálparstobnun kirkjunnar sendi ný-
lega 40 tonn af þurrkuðum saltfiski til
hjálparstarfs í Ghana. Samstarf tókst
meðal nokkurra aðila til að gera fram-
kvæmdina mögulega.
Upphaf málsins var að Hjálparstofn-
unin og Rauöi kross Islands stóðu
sameiginlega að skyndisöfnun síðla
vetrar vegna neyðarástands er upp
kom í Ghana vegna flóttamanna fró
Nígeríu. Um þrjú hundruð þúsund
krónur söfnuöust. Hjálparstofnunin
hafði síðan frumkvæði að því að virkja
fleiri aðila til samstarfs svo hjálpin
gæti orðið órangursríkari.
Niöurstaðan varð sú að ríkissjóður
lagði 1 milljón krónur til hjálparstarfs-
ins og Sölusamband íslenskra fisk-
framleiðenda bauö hagstætt verð og 10
tonn í gjafaformi. Hafskip flutti fiskinn
endurgjaldslaust til Hamborgar og
Reykvisk endurtrygging gaf allar
tryggingar.
Alkirkjuráðið sér síðan um frekari
flutning og dreifingu í Ghana í sam-
vinnuviökirkjunaíGhana. -JGH
ÞÝSKIR ÞING-
MENN HEIMSÆKJA
ALÞINGISMENN
Fimm þingmenn frá vestur-þýska
þinginu hafa verið hér á landi undan-
fama viku í boði Alþingis.
Að sögn Friðjóns Sigurðssonar,
skrifstofustjóra Alþingis, eru þýsku
þingmennirnir í nefnd sem annast er-
lend samskipti Bundestag. Nefndar-
menn hafa sótt Islendinga heim nær-
fellt árlega um nokkurt skeiö og ís-
lenskir þingmenn endurgoldið heim-
sóknimar.
Þingmennimir eru úr þremur af
fjórum flokkum Bundestag, jafnaðar-
menn, kristilegir demókratar og
frjálsir demókratar. Græningjarnir
eiga ekki f ulltrúa í nefndinni.
Þýska þingið greiðir ferðakostnað
þeirra en Alþingi greiðir uppihald.
Þjóðverjamir komu um síðustu helgi
og f ara þeir síöustu þeirra utan í dag.
ás
Glæsilegur námsárangur
Hannes Heimisson er Islendingur
sem stundar nám í alþjóðastjóm-
málum og -viðskiptamálum við Alþjóð-
lega bandariska háskólan i San
Diego í Kalifomiu. Hannes lauk nú ný-
veriö við fyrsta árið með gl.ssilegum
árangri, varð einn af þeim þremur
prósentum sem efst urði’ i öllum
þeim greinum sem hann tók próf í.
Fyrir námsárangur þennan hlotnaöist
honum það, einum Evrópubúa sem
námið stunda, að fara í kynnisferð í
haust til Kina og Japan til þess að
kynna sér, auk 27 annarra nemenda,
Hannes Heimisson.
ORION
hagkerfi, stjórnmál og þjóðfélag við-
komandi landa. Leiðbeinandi i förinni
verður einn kunnasti Asíusérfræðingur
Bandaríkjanna, prófessor Young H.
Kim.
-SLS.
■:
DV-mynd: G. Svansson.
Þingvallastræti 22 á Akureyri. Hæstiréttur hefur dæmt fólkið á miðhæðinni til að flytja út.
Akureyrarfjölskylda
sennilega borin úr
íbúð sinni með valdi
— Mannréttindadómstóll Evrópu fær málið til athugunar
Allt bendir til þess að hjón á Akur-
eyri ásamt fimm bömum, 2 til 11 ára,
verði borin út með valdi úr ibúð sinni
að Þingvallastræti 22 á næstu dögum.
Samkvæmt dómi hæstaréttar er þeim
skylt aö rýma íbúð sína í síðasta lagi
um helgina. Þau virðast ekki ætla að
hlíta þeim úrskurði.
„Við munum hiklaust bíða eftir að-
gerðum mótaðila og sitja áfram í íbúð-
inni. Það fer eftir aðgerðum mótaðila
hvað gerist. Þetta er þeirra bolti,”
sagði Olafur Rafn Jónsson, sem ásamt
eiginkonu sinni, Danielle Somers,
hefur verið dæmdur til að flytja úr íbúð
sinni á miðhæð hússins á Akureyri.
Brynjólfur Kjartansson, lögmaður
mótaðila, Grímu Guðmundsdóttur,
sem býr á efstu hæðinni, sagði að út-
burðar yrði eflaust krafist innan tíðar
færu hjónin ekki út. „Til þess er
dómurinn að fullnægja honum,” sagði
Brynjólfur.
Olafur Rafn Jónsson sagði að hæsta-
réttardómurinn stangaðist gróflega á
við ákvæði Mannréttindasáttmála
Evrópu, sem Island væri aðili að. Auk
þess væri dómurinn rangur.
Hann sagði dóminn rangan sökum
þess að hann byggöi á lögum um fjöl-
býlishús. Þau lög væru fáránleg. Hús-
eignin sem um ræddi væri nánast sem
einbýlishús þar sem henni hefði aldrei
verið lögskipt. Mótaðili hefði aldrei
sótt um né fengið leyfi byggingar-
nefndar til að skipta húseigninni.
Fógetaembættiö á Akureyri hefði gerst
sekt um ólöglega þinglýsingu á sínum
tíma þegar miðhæðin var seld sem sér-
íbúð.
Hjónin hafa fengið lögmann í Belgíu
til að reka mál þetta fyrir Mannrétt-
indadómstól Evrópu. Greinargerð
þeirra verður send dómstólnum,
sennilega í næstu viku, að sögn Olafs
Rafns.
Hann sagði að þeim hjónum hefði
ekki tekist að skýra málstað sinn nægi-
lega vel fyrir íslenskum dómstólum
sökum þess að lögmenn hefðu ein-
hverra hluta vegna gersamlega brugð-
ist. „Nú loksins eru komnir góðir menn
í starfið og við gerum okkur vonir um
að hnika okkar málstað áleiðis,” sagöi
Olafur Rafn.
Að sögn Danielle Somers hafa tvö
blöð í Belgíu sagt frá málinu sem mun
einstakt í íslenskri réttarsögu. Það
hefur aldrei áður gerst að hæstiréttur
hafi dæmt fólk til að flytja úr eigin íbúð
sökum samskiptaörðugleika við ná-
granna.
-KMU.
Veist þú hvar blómakerið er?
— f innandi blómakersins fær 1000 kr.
, ,Við erum tilbúnir til aö borga þús-
und krónur til þess sem finnur kerið
eða getur gefið einhverja vísbend-
ingu um hvar það er niður komlö.”
Þetta sagði Arthur Farestveit í sam-
taliviðDV.
Blómakeri af sömu tegund og þau
sem eru á myndinni var stolið frá
verslun Einars Farestveit að Berg-
staðastræti lOa, um helgina.
Undanfarin 4 ár hefur blómakerj-
um verið stillt upp fyrir utan
verslunina, vegfarendum til ánægju
og yndisauka. „Við höfum oft lent I
því aö blómum hefur verið stoliö og
kerjum verið velt og þau skemmd.
En steininn tekur úr þegar kerinu er
hreinlega stolið,” sagði Arthur. Ker-
ið er 40—50 kíló að þyngd og var eng-
in moldarslóði sjáanlegur þannig aö
ljóst er að einhver hefur tekið það
upp í bifreið. „Nýtt ker kostar um
1000 krónur. Okkur finnst kjörið að
bjóða þó upphæð í verðlaun hverjum
þeim sem finnur kerið. Það verður
fólki vonandi hvatning að haf a augun
opin gagnvart þeim sem eyðileggja
tilraunir til þess að lífga upp á um-
hverfiö.”
Sá sem finnur keriö getur vitjað
þúsund krónanna á ritstjórnarskrif-
stofuDV.
ás
■>
Svona lítur blómakerið út.
DV-mynd: Bj.Bj.