Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.1983, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.1983, Blaðsíða 8
8 DV. FÖSTUDAGUR 8. JULI1983. Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur Sænsk-íslensk __ ■■ ■ ■ ss. Byggingavorur almennt lítið dýrari hér en í Svíþjóð „Þaö er einkum tvennt sem kom okkur á óvart í þessari könnun. Annars vegar hversu miklu dýrara ópakkað sement er á Islandi en í Svíþjóö og hins vegar hversu byggingavörur almennt eru lítið dýrari hérlendis en þar,” sagöi Georg Olafsson verðlagsstjóri er niöurstöður sænsk-íslenskrar verö- könnunar á nokkrum byggingavörum voru kynntar í vikunni. Könnunin var gerö í Reykjavík og Sviþjóð í júníbyrjun, eftir gengisfell- inguna, og sáu Verðlagsstofnun og Statens Pris och Kartellnamnd i Sví- þjóð um gerð hennar. Hún náði til 33 vörutegunda, þar af eru 22 framleidd- ar í Svíþjóð og fluttar hingað til lands, en 11 eru framleiddar í hvoru landi fyr- irsig. I Reykjavík var kannað söluverð í byggingavöruverslunum eða hjá öðr- um selj endum og er birt meöalverð á viðkomandi byggingavörum. I Sviþjóð var kannaö verð skv. leiðbeinandi verðlistum seljenda og samtaka þeirra. Oft er veittur 5-15% afsláttur f rá verðinu í listum, en ekki er tekið til- lit til þess við birtingu könnunarinnar og sýnir hún því hæsta mögulega verð í Svíþjóð en raunverð í Reykjavík. Sölu- skattur, 23,5%, er innifalinn i veröinu í Reykjavik og virðisaukaskattur (moms), 23,46%, í vöruverðinu í Sví- þjóð. Af þeim 33 vörutegundum sem at- hugaðar voru reyndust 26 vera dýrari í Reykjavík en verð á sjö vera hærra í Svíþjóð. Mest áberandi er að ópakkaö sement er mun dýrara á Islandi og munar þar 58%, en pakkaö sement er heldur dýrara í Svíþjóð. Stafar þetta af því að í Svíþjóð er veittur mikill af- sláttur á sementi sé það keypt ósekkj- að, en hérlendis er afsláttur þessi að- eins4—9%. Eftirtektarvert er að bæöi hérlendis og í Svíþjóð er það einungis einn aðili sem er ráðandi í sementsframleiöslu, þannig aö ekki er hægt aö kenna mis- munandi markaðskerfi um verðmun- inn. Þó ber aö hafa i huga að örlítið er flutt inn af sementi í Svíþjóð. Sements- innflutningur er einnig frjáls á Islandi og myndi borga sig aö flytja inn ópakk- að sement frá Svíþjóð og selja hér. Það yrði ódýrara en hið islenska. Annað sem vekur athygli er að ein- angrunargler er mun ódýrara í Reykjavík en í Svíþjóð þrátt fyrir sömu gæði, skv. upplýsingum frá Rannsóknastofnun byggingariönaðar- ins. Samkeppnin er mikil á glermark- aði hérlendis og hvetur hún vafalaust til hagstæðra innkaupa og hagkvæmni 'í rekstri. Hagstæð innkaup innflytjenda í Reykjavík koma einnig glöggt i ljós ef verð á gleruU, hreinlætistækjum, vegg- flísum og fleiri vörum er borið saman. Munar yfirleitt tiltölulega Utlu á verði þrátt fyrir að greiöa þurfi flutnings- kostnað og vörukostnaö af innfluttu vörunum. Vöruverð á Islandi er yfirleitt háð ströngu eftirliti og einungis gler og eld- húsinnréttmgar eru undanþegnar þvi. I Svíþjóð er verölagnmg hins vegar yf- irleitt frjáls, þótt svo fyrirtæki í bygg- ingariðnaðinum reyni oft að halda vöruverði háu. Kemur þaö til af því aö í Svíþjóð er á sumum sviðum minni samkeppni en hér og meiri hætta á hringamyndun á byggingavörumark- aöinum, að þvi er ke Hallman, aðalfor- stjóri sænska verðlagseftirUtsins sagöi. -sa. Laun Svía hærri en Islendinga t tengglum við verðkönnunlna voru athuguð laun starfsmanna í byggingavöruframleiðslu og í byggingavöruverslunum í Sviþjóð og á Islandi. A tBÍandi böfðu starf s- menn i verslunum 64,33 kr. i meðal- timakaup (þegar tekið hefur verið tilllt tU vinnutíma) að frádregnum belnum sköttum, en í Sviþjóð 87,71 kr. Er kaup Svianna 36,3% hærra. Laun starf smanna i byggingavöru- framleiðslu voru einnig hærri i Svi- þjóð og munaði þar 31,4%. Laun Svianna voru 91,17 kr. en tslend- inga 89,40 kr. Kaupmáttur Svíanna er því meiri og er þvi byggingarkostn- aður meiri bérlendis fyrir þessar starfsstéttir en beinn verðsaman- burður gefur tii kynna. •aa. Sement, steypa, steypustyrktarjárn Reykjavík Svfþjóð Mismunur Portlandsement ópakkað án flutningsgjalds og söluskatts verð á tonni 2.378 1.501 58% Steypa S-200 verð á m3 2.149 1.543 39% Steypustyrktarjárn KS 40,10 mm 0, verð á kg ... 15 11 36% Portlandsement kostar 161-198 kr. hver50 kg pokitil kaupenda i Svíþjóðeftirþví hvemikiðmagn er keypt. Á Islandi kostar hver 50 kg poki 162 kr. óháö því hve mikið er keypt. Hór á landi er greitt flutningsgjald aö upphæö 245 kr. á hvert tonn alls staðar á landinu. í Svíþjóö er flutningsgjald mishátt eftir fjarlægö frá verksmiðju, t.d. 65 kr. á hvert tonn af lausu sementi í Stokkhólmi. Afsláttur á sementsverði er aö jafnaði 4-5% til steypustöðva í Svíþjóð en 9% í Reykja- vík og 4% annars staðar á landinu. Dæmi um sementsverð (á tonn) til steypustöðva.Reykjavík: 2.387, Stokkhólmur: 1.488 (mismunur 60%). Mismunur á steypuverði skýrist að mestu með misháu sementsverði. Steypustyrktarjárn það sem kannað var í Reykjavík er sænskt og norskt. Skýringin á verðmismuninum í Reykjaviko^ Svíþjóð er m.a. fólgin í flutningsgjaldi (8% af cif-verði) og vöru- og jöfnunargjaldi (26%ofan á cif-verð). Þess mágeta að verðbreytingar á járni eru örar. (Cif-verð er innkaupsverð vörunnar ásamt flutnings- og vátryggingarkostnaði.) Timburog naglar Mótatimbur 25x150 mm verð á m .... Þurrkuðfura i glugga 63x125 mm verð á m Sponaplata 12 mm verð á m2 ....... Mótasaumur 2V4“ verð á 2 kg ...... Galvaniseraður saumur 2VS>“ verð á 2 kg . Reykjavfk Svíþjoð Mismunur 28 23 22% 90 83 8% 93 113 - 18% 77 66 17% 99 94 5% Mótatimbur er flutt til islands frá Skandinavíu, Kanada, Rússlandi og Póllandi. Verðmismunur í Reykjavík og Svíþjóð skýrist fyrst og fremst með háum flutningskostnaði (dæmi 38% af cif-verði). Þurrkuð fura er keypt m.a. frá Rússlandi. Dæmi er um flutningskostnað sem er 25% af cif-verði. Ef flutningskostnaðurinn er dreginn frá verður verð vörunnar nokkru lægra i Reykjavíken í Svíþjóð. Spónaplöturerueinkumfluttar innfráSkandinaviu. Flutningskostnaðurerallt að 33% af cif-verði. Saumur er framleiddur á íslandi úr innfluttum málmteinum. Er hann 3,6 mm lengri en sambærilegur sænskur saumur og 0,5 mm gildari. Þak- og einangrunarefni Álplata á þak, Gringers, 0,5 mm þykk, 4 m löng og Reykjavík Svíþjóð Mismunur 1,12 m breið, verð á plötu 1.207 845 43% Glerull, Gullfiber 4“ þykk, verð á m2 101 110 - 8% Einangrunarplast 3“ þykkt, verð á m2 141 152 - 7% Álplatan er sænsk. Flutningskostnaður, vörugjald og jöfnunargjald er um 17% af smásöluverði í Reykjavík og skýrir þvi verðmismun í Svíþjóð og Reykjavík ekki nema að hluta. Glerullin er sænsk. Flutningskostnaður hennar er 42% af cif-verði en vörugjald er 24% ofan á cif-verð. Þrátt fyrir það er verð glerullarinnar lægra í Reykjavík en i Svíþjóð. Einangrunarplast er innlend framleiðsla í hvoru landi. Á íslandi er hráefniskostnaður um 30% af smásöluverði. Málning og fúavarnarefni Reykjavík Sviþjóð Mismunur Beckers þakmálning, rauð, verð á 10 Iftra dós ... 1.706 1.422 20% Beckers utanhússmálning, hvft, verð á 12 Iftra dós . 1.852 1.467 26% Beckers innanhússmálning, hvft, verð á 4 iftra dós . 493 573 -14% Beckers fúavörn, brún, verð á 4 Iftra dós 607 565 7% Nordsjö þakmálning, rauð, verð á 12 lítra dós ... Nordsjö sendin utanhússmálning, hvít, 1.677 1.663 1% verð á 12 lítra dós 1.324 1.067 24% Nordsjö innanhússmálning, hvit, verð á 4 lítra dós . 462 476 - 3% Nordsjö fúavörn, brún, verð á 4 lítra dós 537 431 25% Málningin sem hér um ræðir er framleidd í Svíþjóð. Það vekur athygli að sumar gerðir málningar eru ódýrari í verslunum í Reykjavík en í Svíþjóð. Er skýringin einkum fólgin í misháu innkaupsverði með hliðsjón af söluverði í Svíþjóð. Hreinlætistæki Reykjavík Svíþjóð Mismunur Gustavsberg baðkar, hvítt 6.306 5.379 17% Gustavsberg handlaug með fæti, hvft 4.579 4.365 5% Gustavsberg salerni, hvítt 6.406 5.601 14% Ifö Cascade baðkar, tópaslitt 8.547 6.712 27% Ifö Cascade salerni, hvítt 7.626 7.335 4% Á cif-verð hreinlætistækja leggjast 138% i tolla og vörugjald (80% tollur á cif-verð, 32% vörugjald á cif-verð og toll). Auk þess má nefna að flutningskostnaður er um 12% af cif-verði. Þrátt fyrir þessi háu gjöld er verðmunur ekki meiri en raun ber vitni. Virðist því Ijóst að innkaupsverð til islands sé lægra en innkaupsverð seljenda í Sviþjóð. Veggflísar og gólfefni Reykjavík Svíþjóð Mismunur Höganás gólfflísar, verð á m2 925 822 13% Parket (teg.: Tarket) 14 mm, eik, verð á m2 793 745 6% Höganás veggflisar, verð á m2 460 342 35% Á cif-verð flísanna leggst 67% gjald í formi tolla og vörugjalds (35% tollur, 24% vörugjald ofan á cif-verð og toll). Flutningskostnaður flísanna er gllhár eöa um 20% af cif-verði. Á cif-verð parkets leggst jöfnunargjald og jöfnunarálag alls 15%. Eldavéiar Husquarna, Regina popular Husquarna með blástursofni Reykjavfk 12.585 18.664 Svfþjóð 12.242 18.003 Mismunur 3% 4% Aðeins er greitt 3% jöfnunargjald ofan á cif-verð vörunnar. Flutningskostnaður er um 7% af cif-verði. Gler Tvöfalt einangrunargler 4 mm þykkt, 110x132 cm, verð á stk. ....... Einfalt gler, 4 mm þykkt, verð á m2 Reykjavik 1.741 382 Sviþjóð 3.014 453 Mismunur - 42% -16% Gler er sett saman á Islandi úr innfluttu flotgleri og öðrum efnum sem eru um 60% af söluverði án söluskatts. Glerið í Sviþjóð er unnið úr sams konar hráefnum. Ekki er Ijóst hvað veldur hinu lága verði á islandi í samanburði við Svíþjóð en mikil samkeppni og lægri launakostnaður ræður þar sennilega mestu. Innréttingar Eldhúsinnrétting frá Kalmar úr eik Baðinnrétting frá Kalmar úr eik Reykjavfk 46.099 11.430 Svfþjóð 37.700 8.273 Mismunur 22% 38% Engín toliur né vörugjald leggst á innflutningsverð innróttinga, hins vegar leggst 3% jöfnunargjald á þær. Verðlagning á íslandi er frjáls en er í samkeppni við innlenda framleiðslu. Allmikill flutningskostnaður er á innréttingum eða um 20% af innkaupsverði

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.