Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.1983, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.1983, Blaðsíða 12
I Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON. Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÚRÐUR EINARSSON. Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM. Aðstoöarritstjóri: HAUKUR HELGASON. Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og ÓSKAR MAGNÚSSON. Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P.STEINSSON. Ritstjórn: Síðumúla 12—14. Sími 86611. Auglýsingar: Síöumúla 33. Sími 27022. Afgroiðsla, áskriftir, smáauglýsíngar, skrifstofa: ÞVERHOLTI 11. S(MI 27022. Sími ritstjórnar: 86611. Sotning, umbrot, mynda-og plötugerð: HILMIR HF., SÍÐUMÚLA 12. Prentun: ÁRVAKUR HF., SKEIFUNNI 19. Áskriftarvcrð á mánuði 230 kr. Vcrð t lausasölu 20 kr. Helgarblaö22 kr. Vandi á lánamarkaöi Mikill fjöldi landsmanna á nú við meiri örðugleika að etja en jafnan áður við greiðslur á lánum, sem tekin hafa verið vegna húsbygginga. Kaupið hækkar lítið, en greiðsl- ur af lánunum mikið. Að óbreyttu kerfi versnar þetta hlutfall enn á næstunni. Næsta kauphækkun verður aðeins 4 prósent hinn 1. október. Þangað til munu verðhækkanir verða margfalt meiri, þótt úr þeim dragi. Flest hin nýrri lán eru bundin við lánskjaravísitölu. Sú| vísitala samanstendur af vísitölu framfærslukostnaðar og vísitölu byggingarkostnaðar. Lánskjaravísitalan hækkaði um 84,5 prósent síðustu tólf mánuði, meðan al- mennt kaup hækkaði um 51,6 prósent. Þarna hefur mynd- azt gífurleg gjá. Almenningi var löngum talin trú um, að greiðslur af lánum mundu haldast í svipuðu horfi og launin. Vissulega spáðu allir mikilli verðbólgu, þó fæstir eins mikilli og raunin varð. En ráðamenn sögðu fólkinu, að það fengist bætt með kauphækkunum, þótt greiðslur hækkuðu með verðlagi. Nú er allt annaö uppi á teningnum. Jafnframt því sem að kreppir og almenningur hefur æ minna úr að spila til annarra þarfa, rjúka lánin upp. Lánin, sem almenningur hefur tekið til húsbygginga, eru að miklu til skamms tíma. Hámarkslán Húsnæðis- stofnunar til nýbygginga eru nú 322 þúsund. Þau eru til langs tíma, svo og lán lífeyrissjóða. Auðvitað er misjafnt, í hve mikið fólk getur náð með lífeyrissjóðalánum, eftir því hvort bæði hjóna eiga þess kost eða bara annað, eftir starfsaldri þeirra og fleira. En varla getur fólk almennt náð með lánum til langs tíma nema svo sem 40—50 pró- sentum upp í byggingarkostnað 3ja herbergja íbúðar í fjöl-j býlishúsi. Um afganginn hefur fólk orðið aö leita til bank-l anna. Þar hefur verið lögð áherzla á lán til skamms tíma. Húsbyggjendur strita við aö borga mörg hundruö þúsund krónur á örfáum árum. Slíkt kerfi er fráleitt, þegar byggð eru hús, sem eiga að; standa í mannsaldra. Meðal annars vegna skammtíma-1 lánanna verða greiðslur nú svo háar, að fjöldi heimila lendir í vandkvæðum, sem hætt er við, að verði oft óleys- anleg. Góðra gjalda er vert, þegar ríkisstjórnin beitir sér núj fyrir frestun greiðslna og lengingu lánstíma. Slíkt þarf að; geta gengið greiðlega án verulegs kostnaðar og vafsturs. j Miklu skiptir, að sú stefna komist í framkvæmd, að fólk ,eigi kost á 80 prósentum af byggingarkostnaði í lánum til lengri tíma, eins og nú er ræit. Einnig er fjallað um að breyta lánskjaravísitölunni, þannig að hún hækki minna á næstunni, til dæmis með því að miða hana í einhver ju við kaupið. Verði úr lánskjaravísitölunni dregið, skapast á hinn veginn vandi fyrir sparifjáreigendur, sem eiga fé á reikn- ingum, sem verðtryggja það samkvæmt þeirri vísitölu. Meirihluti sparifjáreigenda verður enn að þola, að vextir af fé þeirra séu mjög neikvæðir miðað við verðbólgu. Þessu hafa þeir losnað undan, sem hafa fé ávaxtað sam- kvæmt lánskjaravísitölu. Stjórnvöldum er því mikill vandi á höndum að finna leið, sem yrði sem flestum þolanleg. Framvegis verður að byggja upp kerfi húsnæð- islána, sem leiðir ekki í slíkar ógöngur. Það verður fyrst og fremst gert með því að fólk eigi kost á lánum til langs tíma fyrir miklu stærri hluta byggingarkostnaðar en ver- ið hefur. Haukur Helgason. DV. FÖSTUDAGUR 8. JULI1983. Deilumar um sumarþing hafa enn á ný sýnt hve veikburða íslenska þingræðið er í reynd. Ráöherrar hafa ríka tilhneigingu til að gera Alþingi að ómerkilegri afgreiöslustofnun. Þingræðið er í huga þeirra einungis formskilyrði um meirihlutastuðn- ing alþingismanna. Ríkisstjómir vilja umfram allt forðast að þingið verði vettvangur blómstrandi um- ræðu þar sem heilbrigð gagnrýni, að- hald og nýsköpun málefna eru ríkj- andi einkenni. I Reykjavíkurbréfi Morgunblaðs- ins sunnudaginn 19. júní og leiðara DV mánudaginn 4. júlí er réttilega fjallaö um nauðsyn þess að þingræð- ið sé lifandi veruleiki í stjóm lands- ins. Ritstjóramir vara við sífelldri tilhneigingu ríkisstjóma að snið- ganga Alþingi og gera framkvæmdarvaldið að afdráttar- lausum drottnara á flestum sviðum. Almennar kvartanir duga þó skammt í þessu efni. Hnignun þing- ræðisins er orðin svo skýr að víö- tækra aögerða er þörf til að endur- reisa viröingarsess Alþingis. Allir velunnarar þingræöis á Islandi þurfa því að taka höndum saman. Fast- binda verður með lögum víðtækar breytingar. Lýðræði og þingræði verður að festa í sessi meö afdráttar- lausri uppstokkun á kerfinu. Fjögur meginsvið breytinga Efling þingræðisins verður ekki tryggð meö einfaldri aðgerð. Drottn- unn framkvæmdarvaldsins er orðin svo víðtækur sjúkdómur í stjómkerf- inu aö grípa verður til víötækra breytinga. I grófum dráttum þurfa þær að beinast að fjórum meginsvið- um. I fyrsta lagi er lenging þingtímans sem gera myndi Alþingi að starf- rænni og lifandi stjómstofnun megin- hluta ársins. I samræmi við slíkar breytingar væri eðlilegt að afnema vald ríkisstjórna til að setja bráða- birgðalög. Annað meginsvið breytinga felst í því að gera nefndir þingsins að sjálf- stæðum starfsvettvangi sem veitt getur ríkisstjórn og ráðuneytum vemlegt aðhald. I þriöja lagi er afnám þess ríkis- stjórnarforræðis sem sett hefur svip sinn á stjórn þingsins á undanförn- um áratugum. Þingflokkamir allir taki í sameiningu þátt í stýringu þingstarfa. Fjórða meginsviðið beinist að því að gera starfsaðstöðu þingmanna mun öflugri en nú er og skapa þeim möguleika til sjálfstæðrar gagnrýni á kerfisafurðir ráöuneytanna. Lenging þingtímans — Af- nám bráðabirgðalaga A 19. öld kom Alþingi einungis saman annað hvert ár og sat aðeins f 4—6 vikur í senn. A fyrri hluta þess- arar aldar var þingtíminn smátt og smátt að lengjast uns hann festist í núverandi skorðum. Venjan er að Al- þingi sitji rúma tvo mánuði fyrir jól, komi síðan saman seinni hluta janú- armánaðar og starfi fram í maL Þessi skammi timi setur þingstörf- um margvíslegar skorður. Þrýsting- ur ríkisstjórna á að veita stjómar- frumvörpum forgang viö afgreiðslu mála ýtir flestu öðru til hliðar. Ríkjandi venja um setutima Al- þingis samrýmis hvorki starfshátt- um á öðrum sviöum stjómkerfisins né heldur veitir hún möguleika til að efla sjálfstæða starfsemi þingsins. Frumforsenda breytinga felst þvi í lengingu þingtimans. I samræmi við venjur sem tíðkast í nágrannalönd- um okkar og með hliðsjón af íslensk- um aöstæðum væri eftirfarandi skip- un eðlilegust: Alþingi kæmi saman 1. september og sæti til jóla. Þá yrði tekiö hlé i tæp- an mánuð til að veita þingmönnum tækifæri til að heimsækja kjördæmi sín og sinna margvíslegum sam- skiptum viö fólk og félagasamtök. 1 lok janúar hæfist síöan næsta lota og stæði hún allt til páska. Þá væri að nýju tekiö hlé í 3—4 vikur í sama skyni og fundarhlé um jól. Síðan kæmi þingið saman á nýjan leik og sæti til loka júnimánaöar. Eiginlegt sumarleyfi Alþingis væri því ein- göngumánuðimir júli og ágúst. A þennan hátt skapaöist eölileg samfelia í störfum þingsins og þing- mönnum yrðu veitt tækifæri til fund- arhalda í kjördæmum og samskipta viö kjósendur utan þingtímans. r Olaf ur Ragnar Grímsson Þegar setutími Alþingis heföi breyst í þetta horf væri á margan hátt eðlilegt að afnema vald ríkis- stjóma til setningar bráðabirgöa- laga. Væri nauðsyn á slíkri lagasetn- ingu mætti kalla Alþingi saman með skömmum fyrirvara. Þó gæti komið til greina að hafa i stjórnarskrá mjög takmarkaða heimild til aö gefa út bráðabirgðalög ef neyðarástand skapast á ákveðnum sviðum, enda kæmu sh'k lög til formlegrar af- greiðslu á Alþingi innan mánaðar frá setningu þeirra. Sjálfstæð starfsemi nefnda Rannsóknir á stjómkerfum í ná- grannalöndum hafa sýnt að forsend- an fyrir sterkri stöðu löggjafarþings- ins felst fyrst og fremst í því að skapa nefndunum sjálfstæðan sess til starfa. A Islandi hafa þingnefndir hins vegar í ríkum mæli verið fyrst og fremst þjónustustofnanir við rík- isvaldiö. Þær hafa flestar engan möguleika til að starfa stóran hluta ársins né heldur taka á sjálfstæðan hátt þátt í nýsköpun mála meðan Al- A „Þaö er útbreiddur misskilningur að w starfskjör þingmanna séu með miklum ágætum, kaupið stórfenglegt, bitlingarnir fjöl- margir og ástæðulaust sé fyrir þingheim að kvarta yfir aðbúnaði!! Veruleikinn er hins vegar sá að starfsskilyrði eru áratugi á eftir tímanum.”

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.