Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.1983, Síða 3
DV. FÖSTUDAGUR 8. JULl 1983.
3
(SAL:
Afturkallar
uppsagnir
— bíður þess að menn hætti
afeigin ástæðum
,,Stefna fyrirtækisins um fækkun í
starfsliði hefur ekki breyst, en fallist
var á að ná þeim markmiðum á lengri
tíma með starfslokum þeirra, sem
hætta af eigin ástæðum,” segir í til-
kynningu Islenska álfélagsins hf. og
trúnaðarráðs verkalýðsfélaganna um
starfsmannamál í álverinu. Isal hefur
afturkallað uppsagnir 45 starfsmanna.
Uppsagnimar áttu að koma til frá
lokum febrúar til 15. september, sem
liður í að auka framleiðni fyrirtækis-
ins. Verkalýðsfélögin mótmæltu og
töldu vegið að atvinnuöryggi starfs-
manna.
Eftir viðræður hafa aðilar sæst á þá
tilhögun sem aö framan getur. A næstu
dögum veröur gerð nánari grein fyrir
því innan fyrirtækisins, hvemig endur-
skipulagning á starfseminni verður
framkvæmd.
HERB
löntæknistofnun og sveitarfélögin
áSuöurlandi:
Kanna fram-
leiöslu hita-
þolinna efna
Þróunardeild Iöntæknistofinunar
kannar nú möguleika á framleiðslu
efna sem þola mikinn hita, 1.500 til
2.000 gráður á celcius. Könnunin er
gerð fyrir Samtök sveitarfélaga í
Suðurlandskjördæmi.
Slík hitaþolin efni era notuð mjög
víða í iönaöi. Þau eru notuð í öllum
málmiðnaði og ýmsum greinum efiia-
iðnaðar til að fóðra ofna eða tæki. Þau
eru notuð í áliðnaði, olíuiðnaði, gler-,
keramik- og sementsframleiöslu, svo
að eitthvað sé nefnt.
Gylfi Einarsson hjá Iðntæknistofnun
sagði í samtali við DV að hleðslu-
steinar heföu hingað til oftast nær
verið í þessu hlutverki. Laus efni væru
aö koma í staöinn og einnig hitaþolin
ull. Gylfi nefndi sérstaklega þann
möguleika aö framleiöa hitaþolin efni
úrsúráli.
Talsverða orku þarf til slíkrar fram-
leiöslu; tvær til sex kilóvattstundir á
hvert kíló af fullunninni vöra. Hráefni
þyrfti líklega öll að flytja inn.
Ekki verður annaö sagt en að Sunn-
lendingar láti hendur standa fram úr
ermum við athugun á iðnaðarmögu-
leikum. Þeir eru einnig að láta kanna
fyrir sig álsteypu, kísilkarbiðverk-
smiðju og c-vítamínverksmiðju.
-KMU.
Lést eftir
umferðarslys
Tuttugu og tveggja ára stúlka, sem
lenti i árekstri aðfaranótt laugardags-
ins 25. j úní við Hafnargötuna í Keflavík
lést í Borgarspitalanum síðastliðinn
þriðjudag.
Stúlkan ók bifreið af gerðinni Dai-
hatsu Charade eftir Hafnargötunni á
fimmta tímanum fyrrnefnda nótt. Hún
var ein í bílnum. Bílll hennar lenti á
bárujárnsklæddu húsi við Hafnargöt-
una.
Hún var flutt fyrst á sjúkrahús í
Keflavík og síðan á Borgarspítalann.
Stúlkan hét Kristín Vilborg Áma-
dóttir, til heimilis að Hrauntúni 12,
Keflavík. Hún var fædd 22. febrúar
1961.
-JGH.
1. ágústal-
mennur frídagur
Frídagur verslunarmanna er nú í ágúst skuli vera frídagur og skuli
fyrsta sinn lögskipaður frídagur fyrir greiða laun fýrir hann samkvæmt
alla launþega. Er það samkvæmt lög- sömu reglum og gilda í kjarasamning-
um nr. 94 frá 31. desember 1982, en þau. um umaðra almenna frídaga.
kveöa svo á um að fyrsti mánudagur í
Málverkasýning í
Hótel Stykkishólmi
Frá Róbert Jörgensen, fréttaritara son opnuöu málverkasýningu í Hótel
DVíStykkishólmi: Stykkishólmi á mánudag og mun hún
Myndlistarmennirnir Kristinn Guð- standa út þennan mánuð. Samtals
brandur Harðarson og Helgi Friðjóns- sýna þeir 35 myndir. -JGH.
„Svona góurinn, þetta skaltu ekki gera aftur.” Hesturinn tekinn í örugga vörslu úti á Seltjarnarnesi í gærmorgun.
DV-mynd: S.
SPRETT ÚR SPORI
YFIR FLUGVÖLLINN
i
Svona góurinn, þetta skaltu ekki
gera aftur, gætú yfirvöld verið að
segja við hestinn sem við sjáum hér
á myndinni.
Hann tók sig nefnilega til og spretti
úr spori yfir flugbrautir á Reykja-
víkurflugvelli á níunda tímanum í
gærmorgun. Athæfið vakti enga sér-
staka kátínu hjá flugumferðarstjór-
um og höfðu þeir samband við lög-
regluna.
Sá ferfætti lét þaö ekki á sig fá,
heldur þeysti áfram áleiðis í vestrið
og lét ekki staðar numið fyrr en úti á
Seltjamarnesi. Þar komu vörslu-
maður borgarlandsins og lögreglu-
yfirvöld til sögunnar og var hann
tekinn í öragga vörslu hið skjótasta.
Eins og fram hefur komið í DV
hafa hross og kindur valdið miklu
tjóni í ófá skipti í göröum fólks í vor
og sumar. Telja margir þetta vera
dýrkeypt kæruleysi hjá eigendum
skepnanna. -JGH
NOTAÐI
■BÍLAR
VOLVO 245 GL '82,
ekinn 14 þús., sjálfskiptur.
Verð 475.000.
VOLVO 244 GL'82,
ekinn 5000, sjálfskiptur. Verð
kr. 425.000.
VOLVO 244 GL '82,
ekinn 13000, beinskiptur. Verð
410.000.
VOLVO 244 DL '82,
ekinn 7000, beinskiptur. Verð
kr. 380.000.
VOLVO 244 GL '81,
ekinn 28.000, sjálfskiptur.
Verð kr. 375.000.
VOLVO 343 DL '82,
ekinn 8000, sjálfskiptur. Verð
kr. 280.000.
VOLVO 345 GLS '82,
ekinn 11.000, beinskiptur. Verð
kr. 320.000.
VOLVO 244 GL '80,
ekinn 50.000, sjálfskiptur.
Verðkr. 305.000.
OPIÐ Á LAUGARDÖGUM
FRÁ KL. 10 til 16.
VOLVOSALURINN
Suðurlandsbraut 16 • Simi 35200