Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1983, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1983, Blaðsíða 8
8 DV. FIMMTUDAGUR 21. JUli 1983. Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Fulltrúadeildin sant- þykkir fé til MX-flauga — umræður um málið í öldungadeildinni hafa verið takmarkaðar við 100 klukkustundir Fulltrúadeild bandaríska þingsins leiðslu á MX-flugskeytunum og er samþykkti í gær að veita fé til fram- það talið auka likurnar á að fjárveit- ÞÓRSEÐLA FINNST Þannig eru fyrirbugaðir ikotpallar MX-flugskeytauna gem grafnlr verða í jörð. Stjórn Reagans leggur mikla óherslu á að 100 slfkar flaugar verði til- búnar fyrir árið 1986 og kostnaðurinn er 2,6 milljarðar dollara. í BRETLANDI Breskir náttúrufræðingar eru nú himnum ofar vegna tröllaukinnar risa- eðlu sem þeir hafa grafið úr jörðu og telja margir að hún sé merkasti fundur aldarinnar sinnar tegundar. Þaö var áhugamaður um náttúru- fræði og steingervingasöfnun sem rakst á klóbein skepnunnar í leirgryfju nokkurri suður af Lundúnum síðast- liðinn vetur. Flokkur manna frá Nátt- úrugripasafni Lundúna fór þegar á vettvang og gróf fram afganginn af skepnunni, sem hefur veriö um þrír metrar á hæð, lagöi sér aðrar risaeölur til munns og gekk hér um garða fyrir einum litlum 125 milljón árum. Erlent heiti þessarar skepnu er „dinosaur”, sem stundum er útlagt þórseðla á íslensku. Það mun heyra til undantekninga að þórseðlur snæði kjöt og hefur aðeins ein önnur þeirrar gerð- ar fundist í Bretlandi til þessa. Klóbeinið sem steingervingasafnar- inn fann er rúmlega 30 sentimetrar að lengd og þó smærra en klóbein ráneðl- unnar svonefndu sem grimmust þótti af hinu volduga kyni risaeölanna. ingin veröi einnig samþykkt viö at- kvæöagreiðslu i öldungadeildinni. samkvæmt áætlun eiga 100 flug- skeyti af þessari gerð, með 10 kjamahleðslum hvert, að vera til- búináárinul986. Fulltrúadeildin samþykkti fjár- veitinguna með 220 atkvæöum gegn 207, að undangengnum miklum deilum um hvort spara ætti þessa 2,6 milljarða dollara af 188 milljarða dollara heildarfjárveitingu til varn- armála. Reagan Bandaríkjaforseti lagöi hart aö þingmönnum aö samþykkja f járveitinguna. I bréfi sem hann rit- aði til þingmanna sagði hann aö ef málið næði ekki fram að ganga myndi það veikja stöðu bandarísku samningamannanna i afvopnunar- viðræðunum við Sovétrikin. „Sovét- menn eru famir að breyta afstöðu sinni í samningaviðræðunum, sagði forsetinn í bréfinu og benti á að nú væri tækifæri til aö ná varanlegum stöðugleika i kjarnorkuvopnajafn- væginu. En andstæðingar flugskeyt- anna í fuUtrúadeildinni segja þetta fjársóun og telja þau muni auka hættuna á k jamorkustríði með því að herða á vígbúnaðarkapphlaupi stór- veldanna. Andstæðingar flugskeytanna i öldungadeildinni hafa reynt að fresta atkvæðagreiðslu um máliö en í gær gátu republikanar knúið fram tak- markanir á umræðutíma, sem verð- ur 100 klukkustundir. Andstæðingar flugskeytanna í öldungadeildinni hafa lagt fram 500 breytingatillögur við frumvarpið sem sýnir að þeir ætla að nota allan timann sem er til ráðstöfunar. Reagan harður í orðum Reagan Bandaríkjaforseti kvaðst einráðinn í því aö halda áf ram aö mæla harðlega gegn kommúnisma, þrátt fyrir ásakanir um að harðmæli þau kunni að spilla fyrir sambúðinni við Sovétríkin. „Friðurinn er rofinn af gjörðum en ekki orðum og vér munum segja það sem satt er,” sagði Reagan viö starfs- menn utanríkisþjónustunnar og ríkis- stjórnarinnar á sérstakri árlegri sam- komu, sem haldin er til að minnast þess er Sovétríkin tóku Eystrasaltsiöndin herskildi árið 1940. „Eg mun persónulega fagna sér- hverju skrefi er Sovétríkin munu stiga í friðarátt,” sagði Reagan og lét vel yfir samvinnu við Sovétmenn um leiðir til þess að ná samkomulagi um örygg- ismál Evrópu. En hann bætti því við að Sovétríkin hefðu gerst sek um yfirgang í Afganistan og væru ógnun við heims- friðinn ásamt öðrum kommúnista- ríkjum Austur-Evrópu. Franz Jósef Strauss, hinn skeleggi fyrirliði hægri manna í Bæheimi, liggur undir þungu ámæli sinna eigin flokksmanna þessa stundina. Hann gaf til kynna nýlega að hann heföi haft milligöngu um iánveitingu til Austur-Þýskalands aö upphæð 10 mOljarða króna en hafði rétt áöur brýnt fyrir ríkisstjórninní að beita kommúnistaríki þetta harðari tökum. Flokkur Strauss hélt þing sitt um síðustu heigi og var þá Strauss endurkjörinn forraaður en meö sýnu færri atkvæðum en nokkru sinni fyrr. Strauss hefur gegnt formennsku í flokknum í 22 ár en þessi óvænta lln- kind hefur þegar varpað dimmum skugga á pólitíska framtíð hans. Vestur-þýska dagblaðið Augsburg- er Allgemeine hefur upplýst að Strauss muni hitta að máli Erich Honecker, leiðtoga Austur-Þýska- lands, á laugardaginn kemur. Thatcher eykur sölu- lista ríkisfyrirtækja — Heathrow er nú til sölu ásamt stærstu f lugvöllum Margrét Thatcher herðir nú róður- inn ákaft að þvi stefhumarki sínu aö koma fjölmörgum fyrirtækjum sem snarast af höndum ríkisins og verð- ur ekki annað séð en hún hafi færst öll í aukana eftir kosningasigurinn mikla á dögunum. Frumvarp um sölu á „telecom”, simaþjónustu hins opinbera er á leið- inni í gegnum þingið en jafnframt er á döfinni að selja jámbrautarkerfi hins opinbera, British Leyland, skipasmíöastöövar, stálsmiðjur, flugvelli Rolls-Royce og enn fleiri fyrirtæki af ýmsum stærðum og gerðum hyggst járnfrúin selja í hendur einkaaöilum. Mörg þeirra fyrirtækja sem Thatcher hefur sett á sölulistann hafa skilað einhverjum hagnaði og önnur láta í veðri vaka að þau muni bera sig bærilega innan tíöar þótt rekin hafi verið með stóru tapi árum saman. Rikisstjórn ihaldsflokksins er Bretlands mjög svo fjár þurfi um þessar mundir og gerir sér vonir um að ná inn nærri 25 milljörðum króna á næsta ári með fyrirtækjasölunni. Sósíalistum Bretlands blöskrar mjög þetta framferði en þeir eru til sem fýsir að halda enn lengra en Margrét hefur boðað. Þar eru að vonum frjálshyggjumenn framar- lega í fiokki en einnig nokkrir nafn- togaðir hagfræðingar. Tveir hagfræðingar, Michael Bees- ley og Stephen Littlechild.sem báöir eru prófessorar að starfi, ollu nokkru uppnámi er þeir settu fram kröfur um að ríkið seldi meir en 80 af hundr- aði sinna fyrirtækja, þar á meðal kolanámur, orkufyrirtæki og járn- brautarlínur. Þá hafa aðrir hægrimenn hvatt til þess að póstþjónustan verði seld í hendur einkaaðilum. Ríkisstjórn Margrétar hefur þegar selt hlutabréf ríkisins í olíulindum Norðursjávarins, sósíalistum til mikillar hrellingar. Það sem einkum hefur komið mönnum á óvart á sölulista forsætis- ráðherrans eru hinir sjö stærstu flug- vellir landsins, þar á meðal Heath- row sem er einn af voldugustu flug- völlum heimsins og fara þar um 27 milljón farþegar árlega. Að margra dómi myndi þessi fyrir- hugaða sala flugvallanna skipa Mar- gréti Thatcher á innstu bekki einka- framtaksins fyrr og síðar því yfir- leitt er sá háttur haföur meöal þjóð- anna að hið opinbera hefur þessar mikilvægu umferðarmiðstöðvar á sinni könnu. Talið er að bresku stjóminni sé nú mjög í mun að afla fjármuna hið bráðasta og draga úr umsvifum ríkisins samtímis án þess að skerða hag þeirra sem minna mega sín í þjóðfélaginu eða ganga beinlínis í berhögg við verkalýðshreyfinguna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.