Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1983, Side 32

Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1983, Side 32
32 DV. MIÐVIKUDAGUR 24. AGUST1983. Sviðsljósið Sviðsljósið Sviðsljósið É'- ;hj iwWi ii iiwww——ik1’ ■•r-vrnafir vamiimuimmmmmameæasememmiBiam» .................... Hin milda og hiýja ásjóna Peter Dinatale. Afrakstur œvistarfsins er meðai annars þetta myndarlega hús. Pótur er greinilega maöur sem kann að fara með peningana. ÆVISTARF öll góð börn fá aö heyra það spakmæli einhvern tíma í uppvexti sínum að glæpir borgi sig ekki. Lang- flest taka þessu sem gefnu og eru fingrastutt alla ævi. Aftur á móti er alltaf viss fjöldi sem kemur til með að sjá réttarkerfinu fyrir verkefnum og verður hér sagt frá einum sem tók þá ákvörðun snemma að gerast glæpamaður. Peter Dinatale heitir þessi afalegi maður meðmildu ásjón- una, og varð hann sjötíu og eins árs á þessu ári. Afi gamli hóf feril sinn strax í bamæsku og var fyrst gómaður þegar hann var sjö ára gamall, þegar menn komu að honum þegar hann var aö bisa við aö koma lest af sporinu. Þrátt fyrir föðurlegt tiltal og ærlega rassskellingu lét Pétur sér ekki segjast og komst fyrst fyrir alvöru á skrá 11 ára þegar hann var nappaður við innbrot. Þetta var 20. ágúst 1923, og var hann sektaður umtvodollara. öll þessi glöðu og áhyggjulausu æskuár fóru i aö þræða refilstigu og i að læra réttu vinnubrögðin og þrátt fyrir háan aldur slær Pétur alls ekki slökuvið. I Ameríku var saga Péturs rifjuð upp fyrir skömmu af fólki sem telur réttarkerfið í Ameríku hafa brugðist heiöarlegum borgurum, en ekki glæpamönnum og var bent á gamla manninn sem talandi tákn þess að glæpir borgi sig. I þau 64 ár sem Pétur hefur verið starfandi hefur hann einungis setið inni i tíu ár, þar af var lengsti dómurinn fjögur ár. Einnig hefur hann verið ótrúlega fjölhæfur því að hann hefur á sam- viskunni m.a. rán, innbrot, tékka- fölsun, bílþjófnaöi, búðarþjófnað og margt fleira. Á ferli sínum hefur hann veriö dæmdur fyrir 117 glæpi, en oftast sloppið með áminningu. Þessa dagana tekur hann lífinu með ró í hálfrar milijónar dollara villunni sinni og bónar áhyggjulaus Merced- es drossíumar sínar tvær. Þó að afi gamli sé kominn yfir löglegan eftir- launaaldur þá heldur hann sér í formi, hann var gripinn á harða- spretti fyrir skömmu eftir að hafa þrifiö tösku af 87 ára gamalli konu. Timinn líður hjá kvikmyndastjörnum eins og öðrum dauðlegum, en gamla stjaman Jane Russet lætur þoð ekkort á sig fá. MyntSn sem hangir á veggnum fyrir ofan hana er úr hinni frægu mynd Útlaginn, en á sinum tíma olli myndin mikilli hneykslan og reiði siðprúðra i l/.S.A. Jane skelltisár ístellinguna fræguþegar Ijósmyndarileitinn’ á dögunum, og þó heyið sá löngu átið þá var fini leðursófinn látinn duga. Jane mundar hólkinn Strekkt á Chamberlain Leikarinn góðkunni Richard Chamberlain er víst nokkuð bitur þessa dagana. Hann hefur. upp á síðkastið leikið í nýjum sjónvarpsþætti í Bandaríkjunum og honum til mikilla vonbrigða þá hefur það hlutverk ekki leitt til aukinna kvikmyndatilboöa. Þegar illa árar á þessum vettvangi þá hefur löngum verið til ráð sem hefur dugað, ekki aukin vinna og sviti, heldur andlitslyfting. Það er nú svo að andlitslyfting hefur verið margri stjömunni það sem öðrum er andlitsþvottur, þannig að nánast hafa þær verið komnar með augabrýmar aftur á hnakka, en heimildimar segja að þetta sé fyrsta andlitslyfting Chamberlains. Það kemur sér því vel að í Hollywood eru starfandi fleiri sérfræðingar í fegrunarlækningum en á nokkm öðm sviði læknisfræðinnar og Chamberiain hefur ákveðið að snúa sér til eins sem hefur verið í fréttunum fyrir annað en lækningar, nefnilega Harry nokkurs Glassman, sem um nokkurt skeið var oröaöur viö Victoriu PrincipaL •rrr8*•

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.