Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.1983, Blaðsíða 5
> M'Q'i'.nniwlv \rn
DV. MANUDAGUR 24. OKTOBER1983.
Frá ráöstefnunni um friðar- og öryggismál á Hótel Borg á laugerdag. Fremstir sitja Geir Hallgrímsson
utanrikisráöherra og Jón Óttar Ragnarsson næringarfræöingur.
DV-mynd Einar Ólason
Vel heppnuð ráð-
stefna Lífs og lands
— um friðar- og öryggismál
Á annað hundrað manns sóttu ráð-
stefnu samtakanna Líf og land um frið-
ar- og öryggismál sem fram fór á Hótel
Borg sl. laugardag. Þar leiddu saman
hesta sína fulltrúar allra stjómmála-
flokka, áhugamannasamtök alls konar'
og Geir Hallgrímsson utanríkisráð-
herra ávarpaði þátttakendur.
„Umræðan um friöar- og afvopnun-
armál hefur breyst mikið á undanförn-
um 6 mánuðum,” sagöi Kristinn Ragn-
arsson, formaður Lífs og lands, í sam-
tali við DV eftir að ráðstefnunni lauk.
.í'ólki er að veröa ljóst aðspumingin
um kjamorku- og afvopnunarmál er of
stór til að rúmast innan ramma eins
ákveðins stjórnmálaflokks. Þessi mál
eru hafin yfir alla flokkshagsmuni og
reyndar koma þau næst á eftir sjálfri
tilveruspumingunni. Enginn getur
haft einkarétt á umræðunni um
afvopnunarmál og kjamorku þegar
ljóst er að kjamorkusprengjuforði
heimsins er nú nægilega stór til að
eyða öllu lífi á jörðinni 18 sinnum,”
sagði Kristinn Ragnarsson.
Þetta er níunda ráðstefnan sem Líf
og land heldur og era fleiri í bígerð.
-EIR.
A slysstað i Garöabæ á iaugardag. Eins og sjá má er aftasti billinn i árekstrinum allmikið skemmdur eftir
óhappið. ökumaður hans var fluttur á slysadeild með nokkur meiðsli.
DV-myndS.
Þriggja bíla
áreksturí
Garðabænum
Arekstur þriggja fólksbíla varð á
Hafnarfjarðarvegi um hádegisbilið á
laugardag, þar sem vegurinn liggur í
gegnum Garöabæ. Overuleg meiðsli
uröu á ökumanni aftasta bilsins i
árekstrinum og var hann fluttur á
sjúkrahús.
Tildrög slyssins voru þau að elds-
neytislausum bíl var lagt uppi viö um-
ferðareyju vegarins. Þar kom að
Volkswagen-bifreiö og þegar ökumað-
ur hennar sá hvernig komið var fyrir
þeim eldsneytislausa hugðist hann
beygja út á næstu akrein og komast
þannig frám úr bilnum. I því kom
þriðji bíllinn aðvífandi og sá ökumaður
hans ekki aö sér i tíma, heldur ók á
nokkurri ferð aftan á Volkswagen-
bifreiðina sem við skellinn hentist á
þann bensínlausa.
Sem fyrr segir slasaöist ökumaöur
aftasta biisins, en mun hann nú óðum
vera að ná sér.
-SER.
Féll af
fjórðu
hæð húss
Það óhapp vildi til á Bergþóra-
götu á þriðja timanum aðfaranótt
laugardags að maður féll af f jórðu
hæð húss sem þar stendur. Maður-
inn var þegar fluttur á slysadeild
Borgarspítalans þegar lögregla og
sjúkralið komu á vettvang. Hann
mun nú vera úr allri lifshættu, en
maöurinn brákaðist töluvert á
útlimum.
Ekki er enn kunnugt um hvað
maðurinn var að gera uppi á þaki
hússins á þessum tíma sólarhrings,
þó svo líkur séu leiddar að þvi að
Bakkus hafi verið með í för. Með
ólikindum þykir hvað maðurinn
slapp vel út úr þessu háa falli.
Máliö er í höndum Rannsóknar-
lögregluríksins. -SER
_______________________________________________5
LYFSÖLULEYFI
er forseti tslands veitir:
Lyfsöluleyfi Grindavíkurumdæmis er auglýst laust til
umsóknar.
Starfsemi væntanlegrar lyfjabúöar skal hafin eigi síðar en
1. júlí 1984.
Umsóknir um ofangreint lyfsöluleyfi sendist heilbrigöis- og
tryggingamálaráöuneytinu fyrir 20. nóvember 1983.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið,
21. október 1983.
NOTAÐIR LYFTARAR
Á LÆGSTA VERÐI
EIGUM ÚRVAL NOTAÐRA LYFTARA Á LAGER
1 stk. TCM, 2,5 tonn,
rafmagnslyftari, árg. 1978,
keyrður 2800 klst.,
með finu húsi og miðstöð.
Hæð 2.96 m,
lyftigeta 5 m
Nýr rafgeymir.
Verð kr. 415.000,-
1 stk. TCM, 2,5 tonn, árg. 1978,
keyröur 3200 klst.,
með finu húsi og miðstöð,
hæð 2,20 m
lyftigeta 3,30 m.
IMýr rafgeymir.
Verð kr. 410.000,-
Við getum boðið báða þessa lyftara með snúningi eða klemmum
eftir óskum kaupandans.
KENTUCKY MASKINER
Kvartettvegen Nr. 3
24500 Staffanstorp
Sverige
Simi 9046-46252965
Bilasimi 9046-0204-151055.
Telex 33563 truck, svarað á islensku.
nr. 1. Lhir: svart, hvítt, fjólublátt,
mosagrænt, blátt, kaki.
Kr. 777,00.
nr. 2. Litur: svart. - Kr. 999,00.
nr. 3. Litur: grátt. - Kr. 999,00.
nr. 4. Litir: brúnt, grænt.
Kr. 875,00.
Herra
nr. 5. Lhir: grátt, blátt, svart.
Kr. 985,00.
Herra
nr. 6. Lhur: svart. - Kr. 1159,00.
nr. 7. Svartir loðfóðraðir leðurkulda
skór. - Kr. 1239,00.
nr. 8. Svart leður, silikonvarin og
Uoðfóðruð. - Kr. 1840,00.
— aKORUÍN
VELTUSUND! 1
TOPS VISAR VEGINN