Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.1983, Blaðsíða 44
44
€8M H?ÍÍI0T'/Í0 .>$ HTJOAQUWAM .VO
DV. MÁNUDAGUR 24. OKTOBER1983.
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið
tilboð frá
olíufursta
Þaö er varla furða að Brooke Shields só ánægð á svipinn þar sem henni
hefur verið gert tilboð um að þiggja 30 miiijarða íslenskra króna fyrir að
giftast oiíufurstanum Muhammad Khashoggi.
Brooke Shields fær
STVRMlR SSC\P Ab FbRMAOtíR
SJAIFSTÆDISFLOKKSINS ÞtíRÖ
AO V£RA FRAMBtCRI-I 7 'J
LÍ6OR1 FJÖLMIBL* J ^Jí §
UM... SINS OC ^WmM
RONALO R6AG4N) "■&%.
Brooke Shields er nú um það bil að
vaxa uþp úr umsjá móður sinnar
sem hefur haft á dóttur sinni strangt
taumhald frá því að hún fór að geta
sér orð í kvikmyndum. Brooke er nú
sautján ára gömul og þykir mörgum
karlpeningnum að nú sé hún orðin
bæði mannbær og gjafvaxta.
Um tíma var Brooke Shields orðuð
viö Albert prins af Mónakó og var
sagt aö móðir hennar væri því ekki
mótfallin að dóttir hennar yrði næsta
furstaynja af Mónakó. En nú er
Brooke búin aö sparka prins Albert
og enda var henni gert tilboö sem
hún gat ekki hafnað, — eða á að
minnsta kosti erfitt með það.
Þaö er arabískur olíufursti aö
nafni Muhammed Khashoggi sem
hefur gert henni tilboðiö. Hann er
forríkur og veit vart aura sinna tal
og þykir kvennaflagari hinn mesti.
Tilboðið hljóðar upp á það að hann
skuli leggja einn milljarö Banda-
ríkjadala inn á bankareikning
Brooke um leið og hún giftist honum.
Þetta munu vera um 30 milljarðar
íslenskra króna.
Brooke greindi móður sinni frá
þessu tilboði og það fylgir sögunni að
gamla konan hafi orðið orðlaus í
fyrsta skipti á ævinni. Henni er
ekkert gefið um olíufurstann og vill
heldur að Brooke verði furstafrú í
Mónakó en ein af konunum í kvenna-
búri Khashoggis. En þeir sem þekkja
Brooke Shields segja aö líklegra sé
að hún falli fyrir peningunum heldur
en nafnbótunum þótt ekki sé hún
alveg á flæðiskeri sjálf.
...C6T HORFT* ALVAR-
LCGUM AVGÖIA fRAM
AN’I dJONVARPS' ff
MVN DAV 6LA R NARy
Orðum aukið
DV-myndir E.Ó.
Geir Hallgrímsson færir Friðrik Sophussyni bókargjöf frá Sjáifstœðis-
fiokknum i tiiefni fertugsafmæiisins. Tii hliðar stendur eiginkona Friðriks,
Helga Jóakimsdóttir.
D V-mynd EÓ WfT
Friðriki Sophussyni 0
allt fært fertugum é
í
Friðrik Sophusson, varaformaður
Sjálfstæðisflokksins, varð fertugur 18.
október síðastliöinn. Af því tilefni hélt
hann vinum sínum og velunnurum hóf
að heimili sínu aö Skógargerði 6.
I hófinu hélt Geir Hallgrimsson, for-
maður Sjálfstæðisflokksins, ræðu þar
sem hann lýsti því yfir að Friðrik
Sophusson væri nú loksins orðinn
þroskaður og hefur væntanlega átt við
að varaformaðurinn gæti nú farið að
takast á við stærri verkefni. Geir Hall-
grímsson færði Friðrik bókargjöf frá
Sjálfstæðisflokknum á þessum tíma-
mótum. Sviösljósiö óskar Friðrik
til hamingju og minnir á að allt erj
fertugum fært.
Nú geta Gunna og afi
SÓTTUMSÖMU VINNUNA ° J
DV vill ráða mann eða konu, pilt eða stúlku til léttra snúninga á
ritstjórn blaðsins.
Vinnudagurinn hefst klukkan 7 að morgm og er fram eftir morgnin-.
um að minnsta kosti til klukkan 10.
Starfið hentar vel morgunhressu fólki á hvaða aldri sem er. Þess
vegna getur Gunna litla sótt um og afi hennar Itka. Þau eiga bœði
jafnmikla möguleika.
Umscekjendur hafi samband við fréttastjóra,
Síðumúla 12—14, sími 86611.