Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.1983, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.1983, Blaðsíða 36
DV. MÁNUDAGUR 24. OKTOBER1983. Sími 27022 Þverholti 11 36 Smáauglýsingar Líkamsrækt Sólbaðsstofa. Kópavogsbúar og nágrannar. Hef opnað sólbaðsstofu að Tunguheiði 12, viðurkenndir Dr. Kern lampar, þeir bestu. Þið verðið brún og losnið við andlega þreytu. Opið alla daga frá kl. 7—23, nema sunnudaga eftir sam- komulagi. Sólbaðsstofa Halldóru Björnsdóttur, sími 44734. Halló-halló. Sólbaðsstofa Ástu B. Vilhjálms, Grett- isgötu 18, sími 28705. Erum í bjartara og betra húsnæði, sérklefar og head- phone á hverjum bekk. Nýjar extra- sterkar perur í öllum bekkjunum. (Endurgreiðum þeim sem fá ekki lit). Verið velkomin. Nýjung á íslandi. Sólbaðsstofan Sælan, Ingólfsstræti 8. Jumbó sólarium sólbekkirnir frá M.A. Dömur og herrar, ungir sem gamlir. Við bjóðum upp á fullkomnustu sólariumbekki sem völ er á, lengri og breiðari bekki en þekkst hafa hér á landi, meiri og jafnari kæling á lokum, sterkari perur, styttri tími, sérstök andlitsljós. Einu bekkirnir sem fram- leiddir eru sem láta vita þegar skipta á um perur. Stereotónlist í höfðagafli hjálpar þér að slaka vei á. Minni tími — meiri árangur. Enginn þarf að liggja á hlið. Opið mánudaga til föstu- daga frá kl. 7—23, laugardaga 7—20, sunnudaga 13—20. Sælan, sími 10256. Snyrtistofa Lilju, nudd- og sólbaðsstofa, Engihjalla 8 (Kaupgarði 2h),Kópavogi, símar 46620 og 44645. Það sem við bjóðum upp á fyrir dömur og herra: Cathiodemúe húömeðferö, andlitsbað, liuðhrcinsun, litun og plokkun, snyrtin , á augnabrún- um (ný mcuierö, fljót og sarsauka- laus), handsnyrting, fótsnyrting, and- litsvax, fótvax, dag- og kvöldförðun (make up), líkamsnudd (viðurkennt vibranudd, nuddtæki), partanudd, Silver Solarium professional sólbekkur stór samlokubekkur með sérstökum innbyggðum andlistperum og sterk- ustu perum sem völ er á. Höfum úrval af snyrtivörum fyrir dömur og herra. Verið velkomin. Ljósastofan Laugavegi 52, simi 24610, býöur dömur og herra velkomin frá kl. 8—22 virka daga, laugardaga kl. 9—19. Belarinum Super sterkustu perurnar. 100% árangur. 10 tímar á 500 kr. Reynið Slendertone vöðvaþjálfunar- tækið til grenningar, vöðvaþjálfunar við vöðvabólgum og staðbundinni fitu. Sérklefar og góð baðaðstaða, sérstak- ur sterkur andlitslampi. Verið velkom- in.. Ný sólbaðsstofa að Bakkaseli 28. Hvort sem þú ert karl- eða kvenmaöur þá ertu velkominn að Bakkaseli 28. Þarftu aö bæta útlitiö? Losa þig við streitu? Ertu haldinn vöðvabólgu, ból- um eða gigt? Athugaðu hvort sólin að Bakkaseli 28 er ekki lausnin með nýj- um sterkum perum. Uppl. í síma 79250. Verið velkomin. Garðyrkja Túnþökur, gróðurmold, fyllingarefni. Áratuga reynsla tryggir gæöin. Fljót og örugg þjónusta. Uppl. í síma 78155 á daginn og 17216 og 99-5127 á kvöldin. Landvinnslan sf. Túnþökur. Vélskornar túnþökur. Björn R. Einars- son. Uppl. í símum 20856 og 66086. Þjónusta Innréttingaþjónustan auglýsir. Láttu okkur setja innréttingarnar upp fyrir þig. Einnig huröaísetningar, milliveggjasmíði, þilju- og panel- uppsetningar, loftaklæðningar og fleira. Alhliöa smíðaþjónusta. Uppl. í síma 77185 eftir kl. 18 og um helgar. Stálorka og samsetning sf. Tökum að okkur hvers kyns járn- smíðaverkefni, vinnuvélaviögerðir og nýsmíði. Framleiðum vélar og búnaö úr ryðfríu stáli og áli. Landsþjónusta. SOS, Skútahrauni 3, Hafnarfirði. Símar 40880,40133 og 37593. ,. . Þú ert tilbúinn til að fara út í líf- iö aftur. Viltu spyrja um eitthvað? Verður þessi tími talinn með þegar kemur að lífeyrisgreiðslum mínum? HU® Mummi meinhorn

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.