Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1983, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1983, Blaðsíða 13
DV. LAUGARDAGUR10. DESEMBER1983. 13 Eiginkonan Linda vann tilað hjáipa Tom á meðan hann reyndiað sláigegn í London. Söngvarinn Tom Jones: V ann í hanskaverksmiðjju og bar tígulsteina „En þar var ungur söngvari sem kallaði sig Tommy Scott svo ég varö að breyta um nafn,” segir hann. „Umboðsmaöur sá raunverulegt nafn mitt Thomas Jones Woodward. Um þaö leyti var verið aö sýna kvik- myndina Jom Jones svo um- boðsmaðurinn sagði: „Hvers vegna breytir þú ekki nafninu í Tomes Jones?” Ég gerði það.” Jones ákvað að freista gæfunnar í eitt ár. „Linda, konan mín, var ekki glöð yfir því en hún var til í að vinna fyrir okkur svo hún tók áhættuna líka. Hún fór að vinna við færiband í verk- smiðju í Wales til að hafa ofan í sig og son okkar á meðan ég var í London og reyndi að gera plötu sem myndi slá í gegn. Innan árs hafði áhætta þeirra borið ávöxt. Upptaka Jones á It’s not Unusual fór á toppinn á bresku vin- sældalistunum. Og hann segir: ,,Eg fór með konu mína og son til London og síðan hef ég ekki litiðumöxl.” Námabærinn Pontypridd i Wales, þar sem Tom Jones ólst upp, er fyrir aft- an hann. Tom Jones býr á setri sem kostar fimm milljónir dollara. Hann vinnur sér inn 200.000 dollara á viku fyrir að koma fram í Las Vegas. En fyrsta starf þessa mjaömaskakara var í hanskagerð fyrir tæpa sex dollara á viku. Hann vann líka í pappírsmyllu og bar múrsteina. I gegnum þetta allt hélt hann sig þó við drauma sína frá því í bamæsku um að verða söngvari. ,,Ég elskaði söng sem barn,” segir Tom Jones. „Öll fjölskylda mín hvatti mig til að syngja. Þau sögðu mér frá upphafi aö ég ætti að gera eitthvað við röddina í mér því hún væri sérstök.” Hann þurfti að berjast í æsku við berkla og þaö bjargaði honum frá því aö vinna í kolanámum í Pontypridd, sem er heimabær hans í Wales. ,,Eg fékk berkla þegar ég var 12 ára. Eg eyddi tveimur árum í rúminu við að jafna mig. Þaö var hræðilegasta tíma- bil ævi minnar en þaö bjargaði mér frá námunum,” segir hann. Jones fór aftur í skóla en segir. „Eg var aldrei hrifinn af skólagöngu. Eg hætti þegar ég var 15 ára.” Fljótlega eftir það fékk hann sitt fyrsta starf sem skerari í hanskaverk- smiöju. ,,Eg vann níu tíma á dag í heitum og pökkuðum staö af fólki. Eg var þar í nær tvö ár. Þaö var leiöinlegur tími,” segir hann. ,JEn ég var bara aö afplána minn tíma áður en ég varð söngvari. Fram að því söng ég á krám og sagðist vera 18 ára þegar ég var í raun og veru aðeinsl5eöal6ára. Rétt áður en Jones varð 17 ára fór hann aö vinna sem verkamaður í pappírsverksmiðju og vann sig upp í að veröa vélaeftirlitsmaður. „Eg var giftur og með barn þá. Ég vann 12 tíma á dag fyrir um það bil 56 dollurum á viku og náði endum rétt saman. Við uröum að búa hjá tengda- móður minni vegna þess að við höfðum ekki efni á því að kaupa okkur okkar eigið heimili.” Eftir þreytandi dag í myllunni hélt hann áfram aö syngja á kvöldin á smástöðum í nágrenninu og vonaði að hann slægi í gegn sem skemmtikraftur. Þegar hann var 21 fór hann að vinna sem byggirigaverka- maður á daginn og bar tígulsteina. Hann söng á kvöldin undir nafninu Tommy Scott þegar umboðsmaður heyrði í honum og hvatti hann til að fara til London. Jones var þá 24 ára gamall og sá aö hann varð aö láta slag standa. Hann flutti til London í júlí 1964. Tom Jones stillir sór upp eins og hann var þegar hann bar tiguisteina i byggingarvinnu. Híöh-Tech 260 (pOLBY Mi-. apróui Ný háþróuð hljómtækjasamstæða fynr kröfuharðan nútímann Já, hún er stórglæsileg nýja SONY samstæðan. Fyrir aðeíns 32.750,- stgr. gefst ykkur tækifæri til að eignast þessa stórglæsílegu samstæðu, eða notfæra ykkur okkar hagstæðu greiðslukjör. 2 > JJ • Magnarí 2x35 sinus wött (2x60 músík- vött) með fúllkomnu tónstillíkerfi SOUND EXCHANGER. • Steríó útvarp með FM, MB og LB. • Tveir 60 vatta hátalarar. • Og rúsínan í pylsuendanum, kassettutæk- ið tekur að sjálfsögðu allar gerðir af kass- ettum. Leítarí fram og til baka. Dolby B og það nýjasta Dolby C. • Mjög vandaður skápur með glerhurð og á hjólum. m WJAPIS hf BRAUTARHOLTI 2 Akranes: Stúdíóval. Akureyri: Tónabúðín. Borgames: Kaupfélagið. Eskifiörður: Pöntunarfélagið. Hafnarfjörður: Kaupfélagið, Strandgötu. Hella: Mosfell. Homafjörður: Radíóþjónustan. íszifjörður: Eplið. Keflavík: Stúdíó. Neskaupstaður: Kaupfélagið. Reyðarfjörður: Kaupfélagið. SeYðísfjörður: Kaupfélagið. Tálknafjörður: Bjamar- búð. Vestmannaeyjar: Músík og Myndir. Húsavík: Bókaverslun Þórarins Stefánssonar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.