Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1983, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1983, Blaðsíða 19
DV. LAUGARDAGUR10. DESEMBER1983. 19 is»r«*'lötttr Edda Erlendsdóttir Ut er komin hljómplata meö Éddu Erlendsdóttur pianóleikara. Edda spilar þar 3 Klavierstiicke D. 946 eftir Franz Schubert, Sónötu Op. 1 eftir Alban Berg og 3 Klavierstiicke Op. 11 eftir Arnold Schönberg. Upptökuna geröi Sigurður Rúnar Jónsson í Háskólabiói, en platan var pressuö og gefin út í Frakklandi. Dreifingu á Islandi annast Fálkinn. Edda Erlendsdóttir er fædd í Reykjavík áriö 1950. Hún stundaði nám viö Tónlistarskólann í Reykjavík, meðal annars hjá Áma Kristjánssyni, lauk pianókennaraprófi árið 1972 og einleikaraprófi áriö eftir. Edda hlaut franskan styrk til náms viö Tónlistarháskólann í París og lauk prófi þaöan voriö 1978. Kennari hennar var Pierre Sancan. Síöan hefur hún haldið fjölmarga tónleika, bæði í Frakklandi, á Islandi og víðar á Noröuriöndum. Hún hefur veriö einleikari meö Sinfóníuhljóm- sveit Islands, meöal annars undir stjórn Jean-Pierre Jacquillats og Leif Segerstrams. Þá hefur hún gert upp- tökur fyrir Ríkisútvarpið, bæði hljóðvarp og sjónvarp, og einnig fyrir franska og sænska útvarpiö. Edda er nú búsett í París og starfar þar sem píanóleikari. Hún er einnig kennari viö Tónlistarháskólann í Lyon. Casablanca Geimsteinn hefur gefið út hljómplötu með hljómsveitinni C.TV. Er þetta frumraun hljómsveitarinnar og heitir afurðin „Casablanca”. Platan hefur aö geyma átta frumsamin lög sem öll eru danshæf. Textamir em allir á ensku og fjalla um skugga lífsgæðakapphlaups- ins. Hljómsveitina skipa: Sigurður Sævarsson: söngur, Baldur Þ. Guömundsson: hljómborö, gítar og trommur, Jóhann S. Sævarsson: bassi og Baldur J. Baldursson: hljómborð. Góöfúslega aðstoö veittu: Einar Bragi: saxófónn, Páll Hreinsson: trompet, Tryggvi Hubner: gítar, María Baldursdóttir: bakraddir, Þórir Baldursson: hljóöblöndun. Upptökur fóra fram í Hljóðveri Geimsteins. Háskóla- kórinn Nú í desember era liðin tíu ár frá því aö Háskólakórinn hélt sína fyrstu opin- beru tónleika. Kórinn fagnar þessum tímamótum meðal annars með því aö gefa út hljómplötu, en á henni eru hljóðritanir af söng kórsins undir stjóm Hjálmars H. Ragnarssonar. Kórinn flytur þar ný verk eftir þá Jónas Tómasson og Hjálmar H. Ragnarsson, verk sérstaklega samin fyrir hann. Upptökurnar vora gerðar í Háskólabíói og Fossvogskirkju og haföi Bjarni Rúnar Bjamason, tón- meistari Ríkisútvarpsins, umsjón meö þeim. Skuröur og pressun voru gerö af hinu þekkta þýska fyrirtæki TELDEG, en þaö þykir fremst á sínu sviði í Evrópu um þessar mundir. Helga Stef- ánsdóttir sá um hönnun kápu og texta- blööungs, en Prisma í Hafnarfirði um filmuvinnu og prentun. Háskólakórinn á upphaf sitt að rekja til haustsins 1972 þegar hópur stúdenta viö Háskóla Islands hóf reglulegar söngæfingar. Þessi hópur nefndi sig Blandaöa háskólakórinn. Voriö 1973 var Rut Magnússon söngkona ráðin til aö stýra söng kórsins og var hún óslitið stjórnandi hans til haustsins 1980 þegar Hjálmar H. Ragnarsson tók viö. Af honum tók við tónsprotanum í haust AmiHarðarson. Erum fluttir í þjónustu- verslanamíðstöðína nyja miðbænum við Hðístorö. ÚTVEGSBANKINN EINN BANKI • ÖU MÓNUSTA Eiðistorgi 17, Seltjarnarnesi. sími 29966 Tónlist áhverhi heimili umjóliii 500 HLEDSUIR SPARNAÐUR ÞÆGINDI CADNICA ©Husqvarna GETUR SAGT L VERKK Nýja Husquama Prisma 960 velur sjálfkrafa hentugasta sauminn, rétta sporlengd, sporbreidd og lætur þig vita hvaða fót og nál skal nota. Það eina sem þú þarft að gera er að gefa vélinni upplýsingar um hvemig efni þú ætlar að sauma og hvað þú ætlar að gera. Komið við og lítið á hana. Hún er hreint ótrúleg. UMBOÐSMENN UM >ILLT L4ND Gunnar Ásgeirsson hf. Suóurtandsbraut 16 Simi 9135200

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.