Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1983, Side 17

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1983, Side 17
DV. LXUGARDAGUR10. DESEMBER1983. 17 Bókakynning DV Fyrsta upplagi bókarinnar fylgja tveir kostagripir: tíu tommu hljóm- plata „Tórt veröur til trallsins” meö átta lögum — alls tuttugu mínútur að lengd — tekin upp á dansiböllum Stuömanna liöiö sumar; og spilið ,,Sláðu í gegn” fyrir alla fjölskylduna, vandaö og bráöskemmtilegt spil meö mörgum tilbrigðum. Við grípum hér niður í söguna: Þegar hér var komiö Islandssögunni var liöin sú tíð aö menntaskólanemar teldu fínt aö vera gáfaöir og menning- arlegir; þess í stað vildu menn vera fríkaðir, eöa útfrikaöir ef sérstaklega vel tókst til. Þetta setti mjög mark sitt á starf margumrædds skemmtiráðs og þegar leið aö fyrsta desember þótti óhæfa að halda upp á daginn meö há- stemmdum ræöuhöldum eöa heit- strengingum um áframhaldandi frelsissókn — þaö væri eflaust miklu skemmtilegra aö slá upp útfríkaöri há- tíö.Ogþaövargert. Þetta var einn vandaöasti dans- leikur eftirstríösáranna. Þema hans var Danmörk, eins og til að minna á fom yfirráö Dana yfir Islandi, en þaö var þó enginn haturshugur í garö gömlu herraþjóðarinnar sem lá aö baki — þvert á móti var hátíðin full velvilja til alls þess sem danskt var. Skólinn var skreyttur hátt og lágt meö dönskum og íslenskum fánum sem prentaöir höföu verið af þessu tilefni og danska sendiráöiö haföi lánað myndefni ýmislegt sem punt þótti aö. Til þess aö menn gætu gert allar sínar þarfir á danska vísu var slegið saman danskættuöum kömrum sem síöan voru reistir hér og hvar um gangana, og í stofu sautján var boðiö upp á osta og hvítöl, sem einhver bragöbætti þegar líöa tók á kvöldið. Loks höföu veriö fengin að láni tvö svín og nokkrar hænur, sem skemmtiráöinu fannst endilega aö mundu lífga upp á stemmninguna, en dýrin náöu því miður ekki aö taka þátt í sjálfu gillinu. Svínin, sem hlutu nöfnin Eitt kíló og Tvö kíló, voru ekki fyrr komin á sinn staö í skemmtimekkanóinu en þau geröu sér lítið fyrir og skitu á gólfið. Smiöir voru aö störfum í skólanum og þeir hótuðu öllu illu ef svínin yröu ekki fjarlægö hiö bráöasta, og vitnuðu ótæpilega í reglugerðir um aöbúnað á vinnustöðum, máli sínu til stuðnings. Svínin voru því ferjuö heim til sín, upp í Mosfellssveit, en hver veit nema þau hafi borist aftur inn í skólann seinna og þá sem skinka á brauösneiöum í s jopp- unniSómaliu. Skemmtiatriði á þessari Dan- merkurhátíö voru mýmörg og há- púnkturinn var þegar Guðmundur Magnússon, seinna flugmaöur, söng Lille sommerfugl viö undirleik orgel- hetjunnar mikilhæfu úr Mosfellssveit, Sigurjóns Ásbjörnssonar Sigurjóns- sonar Péturssonar, en Sigurjón haföi leikið meö Stjörnum í Stundinni okkar um áriö. Eftir þetta ógleymanlega atriði fór heldur aö lækka risið á menntskælingunum og þaö er erfitt að ímynda sér hvaö skáksnillingurinn og góðmennið Guömundur Amlaugsson hugsaöi þegar hann gekk um hvítöls- klístraöa gangana daginn eftir og horfði yfir blóövöllinn; æla hér og spýja þar og allt í rifnum f ánum frænd- þjóðanna tveggja. Eitt er víst; aö hann var hugsandi á svipinn. . . .hjá SÁA ef sá félagsskapur heföi þá veriö kominn á legg. Hægt væri að rifja upp þegar fálkanum var stolið í bekkjarpartíinu og hann síðan notaöur sem gjaldmiðill þegar verslaöir voru kjammar á Umfó síðar um kvöldið; eöa þegar jólatrénu var stolið með seríunni og öllu englahárinu; eöa þegar Guömundur rektor opnaöi klæöaskáp í kórferöalagi og fann tvo bassa dána; eöa þegar fimm ungir menn óku upp Skeiðin í rauðum bíl, allsnaktir og dauöadrukknir, og bíl- stjórinn hvaö mest. Svona klæddir . læddust þeir inn í helgidóminn í Skál- holti og þar brá einn strípalingurinn sér í stólinn og messaöi fyrir hina Adamana. Þeir hlutu þó áminningu aö ofan eptir prédikun, því bíllinn lenti ekki sjaldnar en tvisvar utan vegar, en allt fór þó vel aö lokum. Loks mætti rifja þaö upp þegar pilturinn ætlaöi fram af svölum á þriöju hæð vopnaður regnhlíf, en allar þessar sögur flokkast undir viökvæm mál og verða því (alls) ekki rifjaöar upp hér. Kawai píanó framleidd 1 Japan eftir ströngum vesturþýsk- um staðli. Litir: hnota, eik, rauð- pólerað mahóní og svartpóleruð. öll með bekk. Verð frá kr. 58.700,- FENDER, MARTIN, AUGUSTINE, GIBSON, EARNIE BALL OG R0T0S0UND STRENGIR Varahluta- og viðgerdarþjónusta fyrir þessi merki og fleiri Rafmagnsgítarar, rafmagnsbassar frá KAWAI, MORRIS og IBANEZ 40 ÁR í FARARBRODDI! pin' Sjón er sögu ríkari. Renndu FRAKKASTÍG 16 - SÍM117692 Aska- sleikir, foringi jóla- sveinanna, og bræður hans eru komnir í bæinn og verða í JL-portinu í dag --------KL. 27 • ALLTÍ JÓLAMATINN • öl og gosdrykkir á kassaverði í JL-portinu • Ávaxtamarkaður í JL-portinu, kassaverð Skoðið hið fjölbreytta Ijósa- og húsgagnaúrval á 2. og 3. hæð. JLGRILLIÐ réttur dagsins: lambalæri, bearnaise, verð aðeins kr. 110. Munið okkar hagstæðu greiðsluskilmá/a. Jón Loftsson hf. Hringbraut 121 Sími 10 600

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.