Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1983, Qupperneq 22

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1983, Qupperneq 22
22 DV. LAUGARDAGUR10. DESEMBER1983. Bókakynning DV Bókakynning DV — rætt vid Gudrtinu Öldu Hardardót tur um nýdtkomna barnabók hennar, Þegar pabbi dó „Hvaöa augum lítur barnið dauðann? Hvemig bregst sex ára drengur við þegar pabbi hans deyr? Hver er skilningur hans á aö lífið haldi áfram?” Þessar spurningar er að finna á bókarkápu nýrrar barnabókar eftir Guðrúnu öldu Haröardóttur fóstru- nema, en þetta er fyrsta bók höfundar. Sagan, sem heitir Þegar pabbi dó, lýsir á raunsæjan hátt hvaö hrærist í huga sex ára drengs sem missir pabba sinn í bílslysi. Efni bókarinnar er ætlað að vekja fólk til umhugsunar um hvaða augum þaö lítur dauða náinna ástvina. ,,Ég geri mér fullkomlega grein fyrir því aö mörgum finnst eflaust að vangaveltur um dauðann séu nokkuö sem ætti helst ekki að skrifa um og allra síst fyrir böm,” segir Guðrún Alda. „En ég er hins vegar á þeirri skoðun aö það sé nauðsynlegt aö fjalla um þennan þátt lífsins alveg eins og aðra þætti tilverunnar. Dauðinn er jú ekkert annað en einn þáttur lífsins og flest börn kynnast þessum þætti á einhvern hátt, afar og ömmur deyja og svo framvegis. Pukur Börn fara þannig tiltölulega ung að velta þessu fyrir sér, en í okkar nútímaþjóðfélagi er dauöinn nokkuð sem þau sjá helst í sjónvarpi og kvik- myndum þar sem engar skýringar eru gefnar. Áður fyrr var þetta allt öðm- vísi, dauðinn var oft nær einstaklingn- „Set mig í spor sex ára drengs" Hvemig tekurðu á þessum málum í bókinni? ,jEg læt sex ára dreng segja frá því hverju hann er aö velta fyrir sér eftir að hann missir pabba sinn í bílslysi. Þannig held ég að frásögnin verði ein- faldari og einlægari en ef ég hefði skrifaö hana út frá sjálfri mér.” En er ekki erfitt að setja sig í spor sex ára drengs? „Vissulega er það erfitt en þar sem ég styðst að mörgu leyti við atburði sem ég þekki til verður þaö ekki eins erfitt og ekki eins fjarri raunveruleik- anum og ætla mætti. ” Er bókin þá sérstaklega ætluð böm- um á þessum aldri? „Nei, hún er ekki skrifuð fyrir neinn sérstakan aldurshóp bama. Hún er í rauninni fyrir alla aldurshópa, jafnt börn sem fullorðna.” Hefur þegar hjálpað Nú fjallar bókin um nokkuð óvenju- legt efni eins og fram hefur komið. Hefurðu heyrt um viðbrögð einhverra semhafalesið hana? „Langflestir þeirra sem ég veit að hafa lesið bókina hafa verið mjög jákvæðir og þótt hún falleg en sorgleg. En ég hef líka heyrt um þá sem hafa veigrað sér við að opna hana. Þau viðbrögð sem hins vegar hafa „Böm þurfa á þvl að halda að rætt só við þau um dauðann alveg eins og hvern annan þátt tilverunnar," segir Guðrún Alda Harðardóttir fóstru- nemi, höfundurbókarinnar Þegarpabbi dó. DV-mynd GVA snortið mig mest em að ég veit að sagan hefur nú þegar hjálpað einni fjölskyldu í sorg sinni yfir missi ást- vinar. Vitneskjan um þetta fullvissar mig um að ég hef ekki skrifað bókina til einskis, og vonandi getúr hún hjálpaö fleirum.” -SGV um, afar og ömmur dóu heima og þá þótti þetta eðlilegur þáttur lífsins sem ekki var verið aö pukrast með eins og nú. I dag er algengast að fólk deyi inni á stofnunum og böm fá yfirleitt ekki aö taka þátt í sorgarathöfninni, ef til vill vegna þess að þeir fullorðnu halda að þau hafi ekki nægilegan skilning á því sem er að gerast. Böm jafnt sem full- orðnir þurfa þó á því að halda að upp- lifa sorgina til þess að geta komist yfir hana og geta séð björtu hliðar lifsins á ný. Annars er hætta á að þau byrgi innra meö sér ýmsar spumingar um dauðann, sem þau þora ekki að spyrja þáfullorðnu að.” „Dauðínn er þáttnr í lífmn,, Jane Fonda. Listin tekur þungaskatt Marlon Brando var með troðinn munninn i The Godfather. Dustin Hoffman þurfti að raka á sér fæturna og vera í magabelti til að leika konu í Tootsie. En slíkir aukahlutir nægja ekki fyrir suma aðra leikara sem verða að breyta sér líkamlega jafnt sem andlega I hlutverkum. Jane Fonda, drottning líkamsrækt- arinnár, þurfti að brjóta sínar eigin vinnureglur til að þyngja sig um 10 kíló í hlutverkinu sem fremur þybbinn flakkari í þættinum The Dollmaker sem ABC sjónvarpsstöðin lét gera. Hún segist hafa notiö hverrar mínútu. Robert De Niro hafði það fyrir starfa sem aðrir gera ókeypis: svínfitna. Fyrir myndina Raging Bull bætti hann á sig 30 kílóum á fjórum mánuðum með frönskum mat, ís og bjór. Með aukaskvapinu nuddaöist hann á lærunum þegar lappirnar á honum nerust saman. Hann létti sig aftur á fjórum mánuðum en siöustu 5 kílóin voru erfiöust. Míchael Caine hakkaði í sig spag- hetti og fleira til þess aö auka við sig 17 kílóum fyrir hlutverk í myndinni Education Rita. Þetta virtust vera tíu mínútur sagði hann eftir á. Nú hefur hann sex vikur til að losa sig við megnið af þessari þyngd fyrir myndina Love, Rio. Það er hræðilegt segir hann. Meryl Streep minnkaði vökva- inntöku til þess að losa sig við 10 pund í hlutverki sínu sem fórnarlamb í einangrunarbúðum í Sophies Choice. Hún notaðist einnig við faröa til að auka á áhrifin. Tom Cruise hefur þurft að raka höfuð sitt og stunda líkamsrækt fyrir hlutverk í Taps (sem myndin er úr). Fyrir The Outsiders tók hann krónu af framtönn til að vera hörkulegri. Þá skipti hann yfir í að leika Joel í Risky Business sem er góður gæi. Hann tók: vítamín og fór í megrun til að losna við vöðva. Þá át hann til aö fá útúrboru- lega bleikfeita útlitið sem þurfti. I All The right Moves þurfti hann aftur að hyggja upp vöðva. „Eg er í góðu sambandi við líkama minn,” segir hann. Ben Kingsley sem Gandhi tók tíu kíióa megrun sína alvarlega. Hann los- aði sig við þau með mjög nákvæmri megrun sem Gandhi fylgdi. Hann át að mestu ávexti. Hann rakaði einnig á sér höfuðið og sat í sólinni klukkutímum saman til að dekkja húð sína. Ben Kingsley. Robert De hliro. Tom Cruisse.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.