Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1983, Qupperneq 29
DV. LAUGARDAGUR10. DESEMBER1983.
29
verkum. ,,En þaö er skilyrði aö menn
hafi fjárhagslegan styrk til þátttöku,”
segir hann.
Þessi mynd af Nyerere, forseta Tanzaníu, dr. Milton Obote, og fru Miria
Obote er tekin kvöldið áður en Obote yfirgaf Tanzaníu tH að halda aftur tH
Uganda.
En þegar hér er komið sögu er Ingi
um það bil að missa af vélinni til
London, áfangastaöur hans á leið í
jaröarför vinar síns í Uganda og í
leiöinni „að hreinsa aðeins af skrif-
borðinu mínu í Nairobi”, segir hann.
Hann réttir fram mynd af Ojok, en
það var fréttin um lát hans sem
varpaöi ljósi á störf Inga, og segir:
„Það er mikil eftirsjá að þessum.
manni. Hann hefði á sínum tíma getað
tekiö völdin algerlega í sínar hendrn-.
Það eru sönn eftirmæli aö segja að
Ojok hafi veriö kyndilberi lýðræðis.
Annars er svo margt í stjómmálum
umliðinna ára, sem enn fer leynt og
seiht veröur opinberað. Vegna starfs
míns viö ráðgjöf verð ég að vera þög-
ull. Það er leyndardómur aö kunna að
halda sér saman — en það er lykill að
árangri,” segir Ingi og kveður. -HÞ.
Ingi Þorsteinsson tekur i höndina á Julius Nyerere, forseta Tanzaniu, i
heimsókn hjá forsetanum fyrir tíu árum.
fríðindi til sjö ára og jafnframt að
tryggja sjálfkrafa gjaldeyrisyfir-
færslu á hluta af hagnaði til erlendra
fjárfestingaraðila.
Fyrir tíð Obotes geisaði óða-
verðbólga í Uganda, gengið var skráö
rangt og svartamarkaðsbrask var
mikið. Samkvæmt núgildandi efna-
hagsstefnu er tvenns konar gengis-
skráning í gangi. Annars vegar er
gengisskráning fyrir nauðsynjavörur,
allt hráefni og varahluti. Hins vegar er
sérstakt gengi fyrir aðra vöru og
þjónustu og er það þrisvar sinnum
hærra.”
Segir Ingi að stjómvöld hafi ákveöið
að hækka verð fyrir afurðir í landbúnaði
til að um einhvem hagnað verði að
ræða fyrir bændur og aðrar aðgerðir
hafi beinst í þá átt að hvetja til fram-
leiðslu óhefðbundinna útflutningsaf-
urða og auka útflutning meö því að
greiða á hærra genginu. Kaffi, bómull,
kóbolt og ýmsir aðrir málmar úr jörðu
eru undirstaöa útflutnings frá Uganda.
Ingi segir að í f ramkvæmd efnahags-
stefnunnar hafi verið tekið fullt tiilit til
skilyrða þeirra, sem Alþjóöagjald-
eyrissjóðurinn setur þeim ríkjum sem
hann lánar til að rétta við viðskipta-
hallann.
„En Uganda fékk 180 milljón dollara
lán frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum
bundið þeim skilyrðum sem koma m.a.
fram í efnahagsstefnunni svo og öðrum
smærri aðgerðum, t.d. tífaldri hækkun
á bensíni.
Rikið erfði heilt skuldafen sem hlóðst
m.a. upp í tið Idi Amin og hefur verið
samið um greiðslur á þeim skuldum,”
segir Ingi. Þá bendir hann á nýjustu
skýrslu Alþjóöagjaldeyrissjóðsins, þar
sem komi fram að Uganda sé mjög
ofarlega á blaöi vegna hagstæös
viðskiptahalla. „Verðbólgan í ár er um
30 prósent og útflutningur hefur aukist
um 25 prósent miöað viö árið á undan,”
segir hann.
Möguleikar fyrir
íslenska fjárfestingu
í liganda
Ráðgjafarþjónusta Inga Þorsteins-
sonar er tvíþætt. Annars vegar er hann
sérlegur ráögjafi í ákveðnum verk-
efnum fyrir forseta og ríkisstjórnir
Uganda og Zambíu í efnahagsmálum.
Hins vegar tekur fyrirtæki hans að sér
aö gera úttekt á fyrirtækjum og stofn-
unum og leggja drög aö nýjum fyrir-
tækjum.
Aðspurður um möguleika Islendinga
til að nýta sér markaöi í Uganda segir
Ingi að hann telji aö f jarlægö og flutn-
ingskostnaður standi nokkuð í
veginum þótt það séu ákveönar afurðir
sem hann telji aö geti komið til greina
í útflutningi. „Það eru þrír þættir sem
ég hef aðeins kannaö í þessu
sambandi. Þaö er meöalalýsi, ein-
ingahús og húsgögn. Norðmenn hafa
t.d. fengið athyglisverðar eftirspumir
frá Uganda um einingahús. Eg hef rætt
þessi mál aöeins viö aðila hjá Utflutn-
ingsmiöstöð iðnaöarins en það þarf að
gera nánari athuganir áöur en lengra
er haldið. Þá tel ég að það séu
töluverðir möguleikar fyrir íslenska
fjárfestingu í Uganda, t.d. í málningar-
verksmiðjum og minni þá á þær
ívilnanir sem gilda í sjö ár í kjölfar
erlendra f járfestinga í landinu.”
Enn aðrir möguleikar sem Ingi
nefndi var þörfin í Uganda á tækni-
menntuðu fólki. Þá kvað hann
möguleika fyrir islenska verktaka að
taka þátt í samkeppni um útboö á
VISA
JAFNT BNNANIANDS SEM UTAN!
Nú verða VISA-kortin gild í
innlendum viðskiptum.
Eitt og sama kortið verður
gjaldgengt hjá 4 milljónum
verslunar- og þjónustu-
fyrirtækja um allan heim.
Úttektir í reiðufé
Unnt verður, gegn framvísun
VISA-kortsins, að fá sérprentað
tékkaeyðublað til úttektar á
reiðufé af tékkareikningi
korthafa í öllum VISA-bönkum
og spcirisjóðum hér innanlands.
Úttektartímabil
VISA er frá 18. hvers mánaðar
til 17. næsta mánaðar,
með eindaga 15 dögum síðar,
þ.e. 2. hvers mánaðar.
Fyrsta úttektartímabilid
verður þó viku lengra,
eða frá 10. desember
til 17. janúar,
með greiðslufresti til
2. febrúar 1984 !
VERIÐ VELKOMIN I VISA-VIÐSKIFTI
Alþýðubankinn hf.
Búnaðarbanki íslands
Iðnaðarbanki Islands hf.
Landsbanki íslands
Samvinnubanki íslands hf.
Eyrasparisjóður, Patreksfirði
Sparisjóður Bolungarvíkur
Sparisjóður Hafnarfjarðar
Sparisjóðurinn í Keflavík
Sparisjóður Kópavogs
Sparisjóður Mýrasýslu
Sparisjóður Norðfjarðar
Sparisjóður Ólafsfjarðar
Sparisjóður Reykjavíkur
og nágrennis
Sparisjóður Siglufjarðar
Sparisjóður Svarfdæla
Sparisjóður Vestmannaeyja
Sparisjóður V-Húnavatnssýslu
VISA
- Eitt kort um allan heim.