Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1983, Qupperneq 30

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1983, Qupperneq 30
30 DV. LAUGARDAGUR10. DESEMBER1983. Nýjar bækur Nýjar bækur Nýjar bækur ÍSLKNSKIR STjSrNMÁLAMENN U ÞEIRSETTUSVIPA OLDJMA Þeir settu svip á öldina Þættir um íslenska stjórnmálaleiðtoga Iöunn hefur gefiö út bókina Þeir settu svip á öldina, þætti um sextán islenska stjómmálaleiðtoga. Sigurður A. Magnússon rithöfundur hefur annast ritstjórn verksins og samið for- mála. I bókinni er sagt frá flestum helstu forustumönnum í íslenskum stjórnmálum allt frá aldamótum og fram um 1970. Höfundar þáttanna eru jafnmargir foringjunum. Bókin er prýdd myndum og aftast niöjatal sem Guðjón Friöriksson hefur tekið saman. Höfundar og viðfangsefni þeirra eru sem hér segir: Jón Guðnason dósent ritar um Skúla Thoroddsen, Sigurður Líndal prófessor um Jón Magnússon, Sigurður A. Magnússon rithöfundur um Hannes Hafstein, Gunnar Thorodd- sen forsætisráðherra um Jón Þorláks- son, Jón Baldvin Hannibalsson alþingismaður um Jón Baldvinsson, Þórarinn Þórarinsson ritstjóri um Jónas Jónsson, Pétur Pétursson þulur um Olaf Friðriksson, Andrés Kristjánsson rithöfundur imi Tryggva Þórhallsson, Jónas Haralz bankastjóri um Olaf Thors, Gils Guðmundsson rit- höfundur um Héðin Valdimarsson, Vil- hjálmur Hjálmarsson, fyrrv. ráð- herra, um Hermann Jónasson, Gísli Ásmundsson kennari um Brynjólf Bjarnason, Haukur Helgason hagfræð- ingur um Einar Olgeirsson, Helgi Már Arthursson blaðamaður um Hannibal Valdimarsson, Jóhannes Nordal seðla- bankastjóri um Bjama Benediktsson og Svavar Gestsson alþingismaöur um Magnús Kjartansson. Þeir settu svip á öldina er liölega þrjú hundruð síðna bók. Oddi prentaði. Valentina eftir Rafael Sabatini Valentina er spennandi og örlagarík ástarsaga. Valentina fjallar um ættar- deilur og afbrýði en óvæntar uppljóstr- anir og ókunnar hættur auka enn á spennuna. Bakgrunnurinn er eitthvert litskrúðugasta tímabil mannkyns- sögunnar og Sabatini skapar enn eina meistaralega skáldsögu rómantíkur og ævintýra. Hrífandi skáldsaga eftir einhvem vinsælasta höfund fyrr og síðar. Utgefandi er Ægisútgáfan. Setning og prentun: Prentsmiðja Ama Valdemarssonar. Bókband: örkin. Valentina er 315 bls. Kvöldgestir Jónasar Jónas- sonar Kvöldgestir Jónasar Jónassonar eru eitthvert vinsælasta útvarpsefni, sem flutt hefur verið hin síðari ár og hefur samtalstækni Jónasar í þessum þáttum veriö rómuð. Nú birtist úrval samtala úr þessum hugljúfu síðkvölds- þáttum í bók, sem var aö koma á markaö frá bókaútgáfunni Vöku. I bókinni ræða 15 kvöldgestir Jónas- ar Jónassonar opinskátt um líf sitt, reynslu og áhugamál og segir á bókar- kápu, að gestirnir njóti sin ekki siöur á prenti en á öldum ljósvakans. Mikill fjöldi mynda af fólkinu og ýmsu, sem því tengist, er birtur í bókinni og gefur efninuaukiö gildi. Guðni Kolbeinsson, rithöfundur og íslenskufræðingur, hefur búið þetta vinsæla útvarpsefni til prentunar. Kvöldgestir Jónasar Jónassonar á síðum bókarinnar eru: Garðar Cortes, Guörún Svava Svavarsdóttir, Gunnar Björnsson, Haukur Heiöar Ingólfsson, Helena Eyjólfsdóttir, Hulda Á. Stefánsdóttir, Ingólfur Guðbrandsson, Kristján frá Djúpalæk, Manuela Wiesler, Omar Ragnarsson, Róbert Arnfinnsson, Sigurður Pétur Björns- son, Snorri Ingimarsson, Stella Guðmundsdóttir, Valgerður Bjama- dóttir. Bókin Kvöldgestir Jónasar Jónas- sonar er að öllu leyti unnin í Prent- smiðjunni Odda hf. Stjörnumerkin og áhrif þeirra i eftir Lindu Goodman I þessari bók er fjallað ítariega um öll stjömumerkin. Þar em skírðir kostir og gallar í fari karla og kvenna í hinum einstöku merkjum. Hvers vegna er maki þinn sífellt að skipta um áhugamál? Er hann kannski „tví- buri”. Er vinur þinn þrjóskur? Þá er hann líklega í „nautinu”. Finnst þér augu hennar lesa sálu þína? Er hún kannski „sporðdreki”. Þær em marg- ar kunnuglegar skýringamar í þessari bók af þeim sem þú þekkir og umgengst. Þú finnur fljótlega í hvaða merki viðkomandi er án þess að vita hvaða mánaðardag hann eða hún er fædd. Hegðan þeirra skýrir það allt. Utgefandi er Ægisútgáfan. Setning og prentun: Hagprent. Bókband: Orkin. Stjömumerkin og áhrif þeirra er 314 bls. UNDA GOODMAN Ley ndafdómar stjörnulrúDðiftnar athjúpaðir jA vfí r eín miiíjón emtaKa þegar seití. Andrés Finnbogason skipstjóri Nú er fleytan í nausti — Andrés Finnbogason segir frá Ægisútgáfan hefur gefið út Nú er fleytan í nausti. Inniheldur hún minn- ingar Andrésar Finnbogasonar skip- stjóra. Það er Guðmundur Jakobsson er ræðir viö Andrés. Það kennir margra grasa í þessari sögu Andrésar. Bókin skiptist í kafla og má nefna kaflaheitin Haldið úr höfn, Skútulif og trilluskak, Bóndinn á Hóli, Togaravera í áratug. Örlagarík straumhvörf, Róið frá Sandgerði, Eldskímin, Nú þarf stærri bát, Svanurinn keyptur, Á síld- veiðum, Róið frá Reykjavík, Otgerð frá Reykjavík í tvo áratugi, Lá við slysi, Siglingar milli landa, Samferða- menn og Togaramir og landhelgin. Bókin er fróðleiksnáma um útgerð og sjósókn frá Reykjavík í fjóra áratugi og auk þess stórskemmtilegur lestur. Nú er fleytan í nausti er 230 bls., sett og prentuð i Prentrún og bundin í Örkinni. Heyrt & séð eftir Jóhannes Helga Arnartak hefur sent frá sér bókina HEYRT & SEÐ eftir Jóhannes Helga. I bókinni er samankomið úr ýmsum áttum það bitastæðasta úr skrifum Jóhannesar Helga um menn og málefni frá 1975 til dagsins í dag. Fimmtíu skrif að gefnu tilefni. Er það hin skrautlegasta flóra og mannamyndasafn. I bókinni eru lit- ríkar persónulýsingar í bland við ó- trúlegustu málefni, áhugasvið höfund- ar enda í víðfeðmara lagi, svo sem efnisyfirlitið er til marks um. En að stofni til er safnritið innlegg Jóhann- esar í þjóðmálaumræðu fyrrnefnt átta ára tímabil. Höfundur tileinkar bók- ina íslenskri bændastétt og farast svo orð í formála: „Safnrit þetta tileinka ég íslenskum bændum, með þökk fyrir uppbyggi- lega viðkynningu í sumar sem leið. Ég þræddi annes og fór um fjöll, firnindi og dali, jafnt í þjóðbraut sem utan og hitti að máli hundruð bænda, konur og karla, unga og aldna og gafst kostur á að kynnast augliti til auglitis, hve djúpum rótum þjóðernið og málið stendur í sveitum landsins; og hefði kynnisförin því að ósekju mátt vera fyrrfarin.” Bókin er 227 blaðsíður, prentuö í Borgarprenti og bundin í Bókbands- stofunni örkinni. Sjö fréttir eftir Sigurð Á. Friðþjófsson Ut er komið hjá bókaforlaginu Svart á hvítu smásagnasafnið Sjö fréttir eftir Sigurð Á. Friðþjófsson. Þetta er fjórða bók Sigurðar, en hann er liðlega þrítugur að aldri. I bókinni eru sjö smásögur og fjalla þær um manninn viðýmsaraðstæður: þegar sprengjan fellur, þegar tölvuvæðingin heldur inn- reið sína, þegar einsemdin ræður ríkjum og þegar leitin að fullkomnun- inni stendur sem hæst. Sigurður víkur að fleiri efnum í sögum sínum og stendur hann glæsilega við þau fyrir- heit sem hann gaf með fyrri bókum sínum. Sögurnar eru látlausar, flestar fullai af skopi, en Sigurður sniðgengur ekki vandamál mannlegra samskipta fyrir því heldur glímir viö þau á hug- myndaríkan hátt. Smásöguformið hefur verið vinsælt á Islandi undanfar- in ár og er athyglisvert hve miklu valdi þessi ungi höfundur hefur náö á því. Bókin er 104 bls. að stærð, Kristján Kristjánsson hannaði kápu. Bókin er unnin hjá Guðjóni O og Félagsbók- bandinu og kostar 444,60 krónur. Varstu að fá hann? Bókaútgáfan örn og Örlygur hefur sent frá sér bókina: Varstu að fá hann? eftir Guömund Guðjónsson blaðamann og hefur bókin að geyma viðtöl við 17 kunna laxveiðimenn sem segja frá ýmsu ævintýralegu sem þá hefur hent í laxveiðum. Varstu að fá hann? er spuming sem hljómar títt þegar laxveiðimenn hittast og þeirri spumingu geta viðmælendur höfundar svarað játandi, þar sem þeir hafa lent í glímum við stórlaxa, hvort sem þeir hafa komið á land eða ekki. Viðmælendur höfundar eru: Eyþór Sigmundsson, Engilbert Guðjónsson, Kristján Benediktsson, Þórarinn Sigþórsson, Snorri Jónsson, Sverrir Hermannsson, Analíus Hagwaag, Birgir Steingrímsson, Siguröur Örn Einarsson, Helgi Jónasson, Garðar H. Svavarsson, Þórður Pétursson, Ragnar Pétursson og Jóna Ingimundardóttir, Jóhannes Kristjánsson og Kristján Jóhannesson og Hans Kristjánsson. Bókin er mjög myndskreytt og er hún í stóru broti. Varstu að fá hann? er sett, umbrotin, filmuunnin og prentuð hjá Prentstofu G. Benediktssonar en bundin í Arnar- felli hf. Kápu hannaöi Sigurþór Jakobsson, en mynd á forhlið hennar er úr safni Rafns Hafnfjörð. Kalli og sælgætisgerðin eftir Roald Dahl Svart á hvítu hefur sent frá sér barnabókina Kalli og sælgætisgerðin eftir Roald Dahl. Höfundurinn hefur áður unnið sér frægð með smásögum sínum, en sagan um Kalla hefur farið sigurför um heiminn. Kalli hrósar því happi að mega skoða undur sælgætis- verksmiðju Villa Wonka og lendir þar i furðulegum ævintýrum. Sælgætisgerð Villa Wonka er líka ekki nein venjuleg verksmiðja, heldur er þar að finna allt frá súkkulaðifljóti og lýsandi sleiki- pinnum yfir í ósýnilegt súkkulaöikex sem hægt er að hafa með sér í skólann. Með þessu ævintýri skipar Roald Dahl sér á bekk með Charles Dickens og Lewis Carroll, enda minnir sagan að nokkru leyti á til dæmis Lísu í Undra- landi. Böðvar Guömundsson hefur þýtt þessa bók og kvæðin í henni. Bókin er myndskreytt af Faith Jaques og unnin hjá Guðjóni O. og Félagsbókbandinu. . Hún er 134 blaðsíöur að stærð og kostar 470 krónur. Bóndi er bústólpi Ut er komin f jóröa bókin í flokknum Bóndi er bústólpi, þar eru þættir af 11 bændum úr öllum sýslum landsins, skráðir af jafnmörgum höfundum. Þeir bændur er fjallað er um í bókinni eru Benedikt Grímsson á Kirkjubóli, Eggert Finnsson á Meðalfelli. Gunnlaugur J. Auðunn, Bakka, Helgi Kristjánsson í Leirhöfn, Hermóður Guðmundsson í Ámesi, Hólmgeir Jensson á Þórustöðum. Jörundur Brynjólfsson, bóndi og alþingismaður, Magnús Finnbogason Reynisdal, Metúsalem á Hrafnkelsstöðum, Sigurður Tómasson á Barkarstööuin, Þórólfur Guöjónsson, Innri-Fagradal. Bókaflokkurinn Bóndi er bústólpi hefur átt vinsældum að fagna enda þegar birst þættir af á fimmta tug bænda. Bækurnar eru fróðleiks- brunnur um íslenskan landbúnað og þá sem hann hafa stundað. Þær eru allar vel úr garði gerðar undir ötulli rit- stjóm Guömundar Jónssonar, fyrrver- andi skólastjóra á Hvanneyri. Ægisút- gáfan gefur út bókina. Setning, prentun og bókband í Prentverki Akra- ness. Bóndi er bústólpi er 324 bls.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.