Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1984, Side 4
4
DV, FQSTUmGUR 17. FEBKUAR49B4
Sjálfstæðisflokkur:
Einkaréttur Ríkisútvarpsins:
Einkaréttur
verdi afnuminn
— segir Friðrik Sophusson varaformaður
„Þaö liggur fyrir ályktun landsfund-
ar Sjálfstæðisflokksins, sem samþykkt
var samhljóöa, þess efnis að einkarétt-
ur Ríkisútvarpsins veröi afnuminn og
mér er ekki kunnugt um að neinn þing-
maður flokksins sé annarrar
skoðunar,” sagði Friðrik Sophusson,
varaformaöur Sjálfstæðisflokksins.
„Eins og fram hefur komið sam-
þykkti Framsóknarflokkurinn að
frumvarpið sky ldi lagt fram, en áskildi
sér rétt til aö flytja og leggja fram
breytingartillögur og það sama gildir
um þingflokk Sjálfstæðisflokksins.
Hins vegar tel ég afar ólíklegt að fram
komi breytingatillögur frá einstökum
þingmönnum. En ég vil taka fram að
það hefur engin formleg ákvörðun
verið tekin í þingflokknum um þessi
mál, ” sagöi Friðrik Sophusson.
Friðrik taldi að helst gætu komiö
fram breytingatillögur um skipan út-
varpsréttarnefndar. Frumvarpið gerir
ráð fyrir að nefndin verði þingkjörin en
í f rumvarpi, sem sjálfstæðismenn hafa
áður flutt á þingi, var gert ráð fyrir aö í
nefndinni sætu embættismenn.
ÓEF
Alþýðuflokkurinn:
Fleiri aöilar fái
aö stunda út-
varpsrekstur
„Ég tel að skapa eigi möguleika til sveitarstjómirnar séu lykilaðili í því
fjölbreyttari útvarpssendinga og að að ákveða hverjir annist útvarpsrekst-
fleiri aðilar fái að stunda útvarps- ur. Þetta er sú lina sem samþykkt
rekstur,” sagöi Kjartan Jóhannsson, . • hefur verið og komið hefur frá flokkn-
formaður Alþýðuf lokksins. um, ” sagði Kj artan J óhannsson.
„Alþýðuflokkurinn hefur þegar lagt -JSS
fram hugmyndir sem byggjast á þv; að
Bandalag jaf naðarmanna:
Afnám til reynslu
„Við teljum í grófum dráttum mjög
eölilegt að gerð verði tilraun meö af-
nám einkaréttar Ríkisútvarpsins á út-
varps- og sjónvarpsrekstri um ein-
hvern ákveöinn tíma. ööruvísi verður.
ekki hægt að fá neina reynslu af því
hvort þetta geti gengið,” segir Stefán
Benediktsson, þingmaður Bandalags
jafnaðarmanna. •
-SþS
Alþýðubandalagið:
r
EINKARETTURINN
ÁFRAM í HÖNDUM
RÍKISÚTVARPSINS
— en gera má undantekningar
„Við Alþýðubandalagsmenn teljum
að einkarétturinn eigi áfram að vera í
höndum Ríkisútvarpsins en vel geti
komið til greina að gera undantekning-
ar með því að veita félögum og félags-
legum landshlutaaðilum rétt til aö
koma upp staðbundnum útvarps-
stöðvum,” sagði Ragnar Amalds, for-
maður þingflokks Alþýðubandalags-
„Við teljum sjálfsagt að ríkisvaldiö
hafi fulla stjóm á þessum málum. Við
höfum ekki áhuga á því að fjársterkir
aðilar í þjóðfélaginu hellist yfir þetta
svið og verði þar allsráðandi í krafti
auglýsinga og auðmagns. Viö teljum
að spyrna verði við slíku,” sagöi
Ragnar.
-KMU.
Samtök um Kvennalista:
Andvíg afnámi
„Samtök um kvennalista em ekki
hlynnt því að einkarétturRikisútvarps-
ins til útvarps- og sjónvarpssendinga
verði afnuminn,” segir í yfirlýsingu
frá Samtökum um kvennalista.
„Þaö er hins vegar vilji kvennalist-
ans að rekstri Rikisútvarpsins verði
breytt á þann veg að rásum verði f jölg-
að og landshlutaútvarpi komið á fót.
Jaínframt verði útvarpiö opnað fé-
lagasamtökum og öðmm þeim sem
áhuga hafa á útsendingum þannig aö
f jölbreytni í dagskrá aukist.”
-SþS
MEIRIHLUTIA AL-
ÞINGIFYRIR AFNAMI
Ljóst er að meirihluti er á Alþingi fyrir tUslökunum á einkarétti Ríkisútvarpsins. Sem kunnugt er hefur náðst
samkomulag milli stjórnarflokkanna um að flytja framvarp til laga um afnám einkaréttar RUV, þó með því fororði
að þingmenn stjóraarflokka hafi frjálsar hendur varöandi breytingatillögur og samþykkt þess.
Á síðasta landsfundi Sjálfstæðisflokksins var samþykkt að flokkurinn beitti sér fyrir afnámi einkaréttarins. Hafa
sjálfstæðismenn þrýst mjög á um samkomulag um flutning stjómarfrumvarps. VUji alþýðuUokksmanna hnígur í
sömu átt með þeim skUmálum að sveitarstjórair ákvarði hverjir annist útvarpsrekstur í landinu. Bandalag
jafnaðarmanna vUl afnám tU reynslu. Samtök um kvennalista og Alþýðubandalag era andvíg afnámi.
Skoðanir þingmanna Framsóknarflokksins til þessa máls era nokkuð skiptar, eins og fram kemur í viðtölum við
þá hér að neðan, er DV ræddi við alla nema tvo, sem ekki tókst að ná tU.
Páll Pétursson:
Hlynntur
þessari þróun
„Eg er hlynntur þeirri þróun sem út-
varpslagafrumvarpið er vísir að.
Ríkisútvarpið á að mínu mati hins veg-
ar að vera númer eitt þótt aðrar út-
varpsstöðvar eigi að geta staðið við
hlið þess. Þótt ég sé óánægður með það
hvemig rás 2 hefur reynst er ég hlynnt-
ur þeirri þróun sem á sér stað og tel
ágætt að sett séu lög um útvarps-
rekstur.”
HÞ
ríkisins verði afnuminn á þeim vett-
vangi. Eg eygi þann möguleika að um
fleiri stöövar geti orðið að ræða. Hins
vegar veröur að hafa í huga að við
erum aðeins 220 þúsund manna þjóð og
verðum aö fara varlega í sakirnar. Við
megum ekki eyðileggja Ríkisútvarpið
og sjónvarpið. En ég er hlynntur
tilslökunum á ríkiseinokun.”
HÞ
varpinu, þ. á m. tilslökunum á einka-
rétti ríkisins. Enda var ég reiðubúinn á
sínum tíma í embætti mínu sem
menntamálaráðherra, að flytja þetta
frumvarp sem stjórnarfrumvarp. Þó
tel ég aö ýmissa breytinga sé þörf á út-
varpslagafrumvarpinu en það mun
eigi að síður skapa umræðugrundvöll á
þingi um þessi mál."
HÞ
Þórarinn Sigurjónsson:
Vilaðvið séumí
taktviðtímann |
„Eg er hlynntur þeirri hugmynd aö
einokun ríkisins á útvarpsrekstri veröi
endurskoðuð. Eg vil hins vegar fara
gætilega í framkvæmd frjáls útvarps-
reksturs. Það ber að skoða þessa hluti
þannig að við séum í takt við tímann og
í ljósi þess er ég samþykkur ákveönum
tilslökuniun.”
HÞ
Steingrímur Hermanns-
son forsætisráðherra:
Hlynnturfrjálsari
útvarpsrekstri
„Eg er því hlynntur að útvarps-
rekstur verði frjálsari og einkaréttur
Alexander Stefánsson
félagsmálaráðherra:
Aukið frjálsræði
„Eg er frekar hlynntur frjálsræði á
þessu sviði en það er ekki alveg sama
hvernig því er framfylgt. Mín skoðun
er sú að Ríkisútvarpið eigi að vera
númer eitt en ég vil ekki loka fyrir
aðra möguleika. Tillögur útvarpslaga-
nefndar eru þannig fram settar að
viðunandi lausn ætti aö fást. Og vil ég
leggja mitt af mörkum til að gera út-
varpsrekstur eins frjálslegan og við
höfumefniá.”
HÞ
Ingvar Gíslason:
Hlynntur
f rumvarpinu í
meginstefnu þess
„Eg er hlynntur þeirri meginstefnu
sem kemur fram í útvarpslagafrum-
Guðmundur Bjarnason:
Sjálfsagt
aðlosaum
einkaréttinn
„Það er sjálfsagt aö losa um þann
einkarétt sem Ríkisútvarpið hefur í
dag og veita staðbundin réttindi til
einkaaöila eöa félagasamtaka,” sagði
Guðmundur Bjarnason, þingmaður
Framsóknarflokksins.
„En Ríkisútvarpiö á aö vera sá aðili
sem þjónar öllu landinu og er enda eini
aðilinn sem hefur aðstööu til að rækja
það hlutverk.”
-ÖEF
Halldór Ásgrímsson:
Tel að þurfi
að liðka til
„Eg er á móti því að einkaréttur
Ríkisútvarpsins til útvarps- og sjón-