Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1984, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1984, Blaðsíða 13
„Meðferð lögreglunnar á skipshöfn mb. Orra ÍS 20, er hún kom fró Englandi í september 1982, er fáheyrð og málið allt lögreglunni til van- sæmdar." þeim að borga eftir tollverði maígengis og dráttavexti frá því í september. Upphringingu þessa fékk skipstjóri kl. 18.30 og er það nokkuð skrítinn skrif- stofutími. Þremur dögum seinna hringdi sama stúlka og sagði nú að lögreglan væri búin að taka orö sín aftur og ef skip- verjar borguðu strax eftir maíverði tollgengis þá slyppu þeir við dráttar- vextina. Borguðu þá flestir strax. Veikindi skipstjóra Er hér var komið sögu átti skipstjóri í veikindum sem lögreglu og toll- afgreiðslustúlku var fullkunnugt um, en hann var á förum til Englands í hjartaaðgerð. Hafði hann hugsað sér að leita réttar síns þegar heim kæmi. Hann var hins vegar einn þeirra óheppnu sem þangað hafa farið en ekki komið lífs til baka. Eg lofaöi honum þá að þetta mál myndi ekki kyrrt liggja. Ráðherra skerst i leikinn Er ég kom heim frá Englandi frétti ég að reynt hefði verið að fá leiðrétt- ingu á málinu en ekki fengist. Fór ég því til sýslumanns en hann tjáði mér að hann gæti hér engu um breytt en yfirmaður hans væri fjármála- ráðherra. Fór ég því á fund ráðherra er síðan talaði við sýslumann. Fékkst þá leiðrétting á greiöslunni. Því næst fór ég fram á það að lög- reglumenn mættu á sýsluskrifstofu og tækju orð sín aftur er þeir höfðu viðhaft um skipshöfnina og var lofað að athuga þaö. Skýrslur þær sem áttu að fylgja bjórnum er tekinn var, og sem skip- stjóra var tjáð að farið hefðu suður, komu ekki fram fyrr en í apríl, rúmu hálfu ári seinna. Síðastliðið sumar fengu svo tveir skipverjar sekt. Annar fyrir 4 kassa af bjór sem teknir voru af honum og honum sagt að gerðir hefðu verið upp- tækir. Hinn hásetinn, 19 ára, fyrir tollinn sem tekinn var af honum. Lögreglan sem tollaði hélt vörð um skipið fyrsta daginn og skipaði þá meðal annars háseta, er var að aka frá skipi, aö keyra upp á lögreglustöð þar sem honum var skipað að opna tafarlaust skott bifreiðar sinnar. Ekkert reyndist þó vera þar nema varadekk. Hvort lögregla þessi hefur haldið að sér hafi yfirsést eitthvað í svona stóru skipi eftir þriggja tíma tollun og að það næmi heilum skott- farmi, skal látið ósagt. Að eiga sér öfundarmenn Sjómenn þeir sem hér um ræðir voru sex. Þrír af þeim eiga að baki 25—40 ára störf á'sjó við fiskveiðar. Þeir hafa siglt í fáein skipti til útlanda, ýmist til að fara með skip eða sækja. Meö tilliti til þess má ót.rúlegt vera að þeir skuli hafa verið meðhöndlaðir á þennan hátt af lögreglu síns byggðarlags og vera yfirlýstir þjófar í þokkabót. Ég er viss um aö þeir hafa flestir talið sig eiga fáa óvildarmenn en því fleiri öfundarmenn. Þeir síðarnefndu ættu að reyna sjálfir að fara á sjó og finna hver sæla það er og öfundast svo vegna þeirra litlu hlunninda sem sjó- menn fá fyrir störf sín. Alla vega er óhætt að segja aö þeir vinni fyrir kaupinu sínu, sjómennirnir. Það er hins vegar ekki hægt að segja um alla, jafnvel þótt þeir hafi lögreglustarf að köllun eða telji sig fædda til þeirra starfa. I lögum mun það vera að ef sjó- maður er ákveðinn tíma erlendis þá má hann koma með, fyrir ákveöna fjárhæð, hluti til landsins. Tveir af áhöfn mb. Orra voru í þrjá mánuði yfir skipinu erlendis. Ekki fékkst nein upp- hæð dregin frá því sem þeir máttu koma með þótt kveðið væri á um þaö. Þannig er ekki sama hvar þú býrð. Sjómenn sem sigla á fragtskipum og koma heim einu sinni í mánuði njóta þessara hlunninda. Ekki skipverjar á mb. Orra. Fátt held ég að hafi haft eins mikil áhrif á skipstjóra mb. Orra, eftir 25 ára s jómannsstarf, en að vera kallaður þjófur. Er rétt að ég þakki hér lög- reglunni fyrir framúrskarandi góða tollafgreiðslu og málsmeðferð aUa því lögreglu ber jú að halda uppi lögum og reglu þótt hún sé undanskilin því aö þurfa að segja satt. Hún getur nefni- lega skýlt sér bak við þann svarta búning, og fer vel á, því svart er Utur lyginnar. Jafnframt bar þó nokkuð á því að nemamir voru mestmegnis látnir sópa fyrstu mánuðina af starfsþjálfuninni og því varð oft lftiö um tilsögn frá hendimeistaranna. I þessu fagi er meirihlutinn kvenfólk en þó er nú þannig ástatt að það er mun verra fyrir kvennema að fá pláss á stofu en karlnema. Astæðan? Jú, kven- fólki er víst hættara við að verða ófrískt en karlmönnum og því er kven- fólk mun óáreiðanlegri vinnukraftur en karlmenn, nema þá að þær séu komnar úr barneign. Þetta er enn eitt dæmið um þann miðaldahugsunar- hátt sem ríkjum ræður í höfuöstöðvum þessara meistara. Kúgun En hvernig skyldi nú standa á því að svona vinnubrögð viðgangast á okkar tímum? Ástæöan fyrir því er nokkuð einföld og byggist á aldagömlum aðferðum sem ganga undir nafninu kúgun. Jarðvegurinn fyrir þessari kúgun meistaranna á nemunum hefur verið mjög góður undanfarin ár, þ.e.a.s. framboðið á nemum hefur ver- ið svo mikið að oft á tíðum hafa verið nemar sem ekki hafa fengið stofu- pláss. Þetta hafa meistarar notfært sér út í ystu æsar og láta þá nemann vita af því að það bíða margir eftir plássinu hans ef hann vogar sér að nefna á nafn að fá borgaða matartíma og þar fram eftir götunum. Með hótanir sem þessar yfir höfði sér stendur neminn einn og sér, alger- lega máttvana. I framkvæmd mundu þessar ógnanir fela í sér aðviðkomandi nemi kæmi jafnvel ekki til meö að geta lokið námi. Meö þetta í huga hafa meistarar oft á tíðum skipulagt sínar umgengnis- venjur gagnvart nemum sem hefur þá jafnvel komið fram í því að það sé nú ekki mjög æskilegt að kröftunum sé „Hárgreiðslu- og hárskerameistarar virðast líta á þá iðngrein, sem þeir eru meistarar i, sem eitthvað ómerkilegri iðngrein en aðrar iðngreinar og þykjast því ekki þurfa að borga þeim nemurn, sem vinna hjá þeim, kaup." eytt í eitthvað sem heitir félagsmál og réttindabarátta. Það hefur jafnvel verið látið í það skína að Iðnnemasamband Islands sé ekki beint hollur félagsskapur fyrir upprennandi hárgreiðslumeistara. Þessi valdaníðsla hefur heldur betur boriö árangur fyrir meistarana und- anfarin ár. Félagsleg virkni hefur verið svo til engin og því erfitt að ná fram réttlátum og mannsæmandi laun- um fyrir þennan hóp. Er hægt að brjóta ísinn? Er það raunhæfur möguleiki að ná fram bættum kjörum fyrir þetta fólk? Það er í dag skoðun hárgreiðslu- og hárskeranema. Iðnnemasamband Is- lands átti í samningaviðræðum með FHHN og ASI við hárgreiðslumeistar- ana þar sem lagðar voru fram kaupkröfur frá því í nóvember 1981, já, takiö eftir því, nóvember 1981. En hvað gerðist: Meistarar voru ekki til viöræðu um þessar kröfur. Hvað er þá til ráða? Ekki geta þessir nemar farið í verkfall því verkfallsrétturinn er ekki til staðar. Eitthvað verður að gera og mun vera gert til að ná fram því sem ekki getur talist annað en sjálfsagt í okkar landi, þ.e. allavega þeim mögu- leika að hægt sé aö lifa á mánaðar- launum í hálfan mánuö. Eitt af þeim sjónarmiðum, sem komið hafa frá meisturunum, er að þetta sé nám og skuli því ekki vera launað. Þessi röksemdafærsla fellur algerlega um sjálfa sig. Þetta er verk- nám og þeir sem það stunda eru vinnu- kraftar úti á hinum almenna vinnu- markaði. Hugmyndafræðingur þess- ara raka hefur veriö gersamlega blind- aður af gróðasjónarmiði einu saman eins og það getur birst í sinni svívirði- legustu mynd. Hugsið ykkur stofu með fimm nema sem allir ynnu við klippingu á viöskiptavinum almennt. Viðskiptavinir borguðu fullt gjald fyrir klippinguna, neminn fengi ekki borg- aðakrónuogstofanmyndimalagull á meðan neminn sylti heilu hungri. Getur þetta talist réttlæti? Einn er sá þáttur sem ekki hefur komið fram í þessari grein en þaö eru laun sveina. Laun sveina eru líka skammarlega lág og þá af sömu ástæðu og hér var drepið á að framan, þ.e. hinni félagslegu deyfð sem ríkjandi hefur verið hjá nemum und- anfarin ár. Nemamir verða jú einhvern tíma sveinar og ganga því inn í sveinafélagið. En hvað skeður þá? Stéttarvitund hefur veriö kæfð hjá þeim sem nemum og því er erfitt fyrir þá að rísa upp á afturlappirnar eftir kúgun undanfarinna ára. Því er auðvelt að halda niðri sveinskaupinu. En við skulum hafa það i huga að ef tekst aö bæta kjör nema þá koma bætur á kjör sveina í kjölfarið. Það sem þarf er bara einhver sem þorir að brjóta ísinn. Eg ætla að vona að eftir lestur þess- arar greinar, lesandi góður, komir þú til með að styðja þessa nema í baráttu þeirra því að hún er bráðnauðsynleg. Hvernig væri t.d. að þú spyrðir að því næst þegar þú ferð í klippingu, hár- lagningu eða eitthvað þessháttar hvað það kosti að láta meistara klippa sig og hvað það kosti að láta nema klippa sig. Athugaðu hvort munur er þar á. Eg fullyröi að hingað til hefur það ekki verið þannig. Þinn stuðningur er þeirra eina vopn. Með ósk um góða heilsu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.