Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1984, Qupperneq 17
u.
Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur
Þjónusta SVR er mikiö notuð, en margir hafa fundið að akstursmáta vagnstjóra. Finnst hann fuii glanna-
iegur.
*******
w»n. í %
Ekki borgað þegar
myndirnar
eru á leiðinni
5401—2942 skrifar:
Mig langar aö koma á framfæri
hvaö þjónustan er góö hjá Beta-
myndbandaleigunni. Þegar viö ut-
anbæjarmenn leigjum okkur myndir
þurfum við ekki aö greiöa leigugjald
nema fyrir þá daga sem viö höfum
myndina hjá okkur. Það er að segja,
við þurfum ekki aö borga þegar
myndirnar eru á leiö til okkar. Þaö
tekur heilan dag að senda þær hingað
og svo aftur annan dag aö senda þær
til baka.
En ef viö erum meö myndir
í tvo daga þá þurfum við aöeins aö
borga tvo daga en ekki f jóra, eins og
annars staöar er. Svo er leigan lægri
þar en annars staðar, eða ef miðað er
viö leigu hjá myndbandafyrir-
tækjum úti á landi.
Aksturslag
vagn-
stjóra
H.S. skrifar:
Eg held að þaö sé kominn tími til aö
þeir menn sem aka strætisvögnum hér
í Reykjavík fari aö gera sér grein fyrir
því aö strætisvagnar hafa engan for-
gangsrétt fram yfir það sem kveðiö er
á um í umferðarlögum. Þeir geta ekki
ekiö eins og þeim hentar.
Þaö er sjálfsagt aö þessi
almenningsfarartæki hafi rétt á aö aka
út frá stoppistöðvum án þess aö bíöa
eftir því aö einhver gefi þeim sjensinn.
Strætisvagnarnir þurfa að halda vissri
áætlun, en þegar bílstjórarnir þurfa aö
aka eins og óöir til aö halda þessa áætl-
un þá er ekki nema von aö maður
spyrji hvort ekki sé rétt aö endurskoöa
þessa tímaáætlun.
Almenningsvagnar og önnur al-
menningstæki eiga aö hafa vissan for-
gang, og að minu áliti er það bæði eðli-
legt og nauösynlegt aö hreinsa snjó
fyrst af strætisvagnaleiðum, þaö eru
margir sem treysta á þessi farartæki
þegar önnur komast ekki leiöar sinnar
vegna slæmrar færðar.
Eg ætla ekki aö amast við þeirri
þjónustu sem SVR veitir okkur borgar-
búum heldur hvernig þeir menn sem
stjórna þessum gríðarlegu farar-
tækjum aka. Þaö er kapítuli út af fyrir
sig.
Fyrir skömmu átti ég leið um Grens-
ásveginn þegar umferöin var hvaö
mest, rétt fyrir fimm. Þegar ég svo
nálgast stoppistöö sé ég hvar strætis-
vagn skýtur sér út í umferðina án
nokkurra umsvifa. Við hliö mér var
steypubíll og brá honum svo viö þetta
aksturslag að hann ætlaði að sveigja
frá strætisvagninum, en þá var ég á
mínum smábíl næstum orðinn undir
steypubílnum. Þaö var ekki strætis-
vagnabílstjóranum aö þakka aö þarna
varö ekki slys, langt frá því. En svona
akstursmáti er ekkert einsdæmi meöal
vagnstjóra, þó flestir séu þeir prúö-
menni bæði til orðs og æðis. Það ætti
því að vera allra hagur að þeir vagn-
stjórar sem kannast viö svona aksturs-
lag láti af því og setji ekki ljótan blett á
annars ágæta stétt. Þaö er góð og þörf
þjónusta sem þarna er veitt og hana
ber aðþakka.
Viljaað þættirnir
umBowieverði
endurfluttir
María í Brelðholtinu skrifar:
Eg er mikill aödáandi David Bowie
og tek undir með þeim sem vilja aö
þættirnir um kappann, sem fluttir'
voru á rás 2, veröi endurfluttir. Eg
hlustaöi af hreinni tilviljun á seinni
þáttinn og tók hann upp, þetta var
alveg stórkostlegur þáttur. Mér þykir
mjög leiðinlegt aö hafa misst af fyrri
• þættinum en ég vissi bara ekkert um
hann. Margir kunningjar mínir hafa
barmaö sér yfir aö hafa misst af
þessum þáttum. Við skorum á útvarpið
aö endurflytja þættina.
NU SAUMUM VIÐ
SAMAN LOFT OG VEGGI
MEÐTRE-X
ÞILJUM
Þeir sem hafa kynnt sér klæðningar innanhúss,
þekkja vel þiljur með nót og lausri fjöður.
Þessi hugmynd hefur nú verið einfölduð, þannig að
þiljurnar eru með áfastri fjöður, auk nótar að sjálfsögðu.
Uppsetning verður því bæði fljótleg og þægileg.Þú límir
og neglir með smáum saum og sníður af endum þar
sem við á, - einfaldara getur það varla verið.
Auk þess er verðið stærsti vinningur húsbyggjenda.
Þessar þiljur eru framleiddar tilbúnar undir málningu.
Stærðir: Veggplötur 38x253 cm 58x253 cm
— ii — Loftplötur 58x120 cm 28x120 cm 28x250 cm
HEILDSALA - SMASALA
TRÉSMIÐJA ÞORVALDAR ÓLAFSSONAR Iðavöllum 6 Keflavík SÍMI: 92-3320