Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1984, Síða 2
2
DV. ÞRIÐJUDAGUR 3. APRIL1984.
— en yfirvöld ætla að líta f ramhjá
f iskslæðingi í djúprækjuafla
Húnaf lóabáta í sumar
Sá,
BLÁI
fcnmir
út/
Fundurum
Fjalaköttinn
Efnt var til stofnfundar samtaka til
að stuðla að vemdun Fjalakattarins í
fyrradag. Á fundinum gerði fimm
manna undirbúningsnefnd grein fyrir
störfum sínum og hugmyndum um
leiðir til fjáröflunar í þessu skyni.
Ckafur B. Thors var fundarstjóri í gær
en undirbúningsnefnd skipa Björg
Einarsdóttir, Finnur Björgvinsson,
Sigurður G. Tómasson, Erlendur1
Sveinsson og Helgi Þorláksson.
Meðfylgjandi mynd var tekin af
fundinum á Hótel Borg í gær.
DV-mynd GVA
Þegar kvótaúthlutun var lokið eftir
kúnstarinnar reglum í vetur voru
niöurstöður tölvukeyrðar til aö gæta
fyllstu nákvæmni. Ymislegt spaugiiegt
kom þá í ljós, svo sem í kvóta bátsins
Helgu Bjargar HU frá Skagaströnd.
,,Eftir reikningum tölvunnar mátt-
um við veiða 100 grömm af karfa í ár.
Um daginn fengum við hins vegar
fyrsta karfann myndarlegan tveggja
kílóa karfa, svo við erum komnir langt
fram yfir kvótann okkar,” sagði Jón
Ivarsson, skipstjórí á Helgu Björgu, í
viðtali við DV.
Ástæðan fyrir þessu er m.a. sú aö sú
innfjarðarækja sem Helga Björg má
stunda kemur til frádráttar öðrum
kvótum.Þannig hefur hún eitthvað um
fjögurra tonna þorskkvóta og álíka af
ýsu þótt hún hafi veitt margfalt meira
af þessum tegundum í fyrra.
Svipað er ástatt um marga Húna-
flóabáta, þorskkvóti þeirra er niður-
undir ekki neitt. Þessir bátar ætla á
djúprækjuveiðar í sumar en alltaf
slæðist eitthvaö af þorski, ýsu og
öðrum fiski með í þeim veiðiskap.
Sjávarútvegsráðherra hefur nú gef-
ið vilyröi fyrir því að þeir megi koma
með eölilegt magn af öðrum fiski með
rækjunni án þess að nokkuð verði gert í
þvíaf hálfuhinsopinbera. -GS
Helga Björg við bryggjuna á Skagaströnd i biiðunni á fimmtudag. Hún er
komin 1900grömm framyfir karfakvótann. D V-mynd: G l(A
Breytingará
skipastóli
Eimskips:
ENGAR UPPSAGNIR
FYRIRHUGAÐAR
segir f orstöðumaður áætlanadeildar
„Það er ekki verið að draga saman
rekstur né fjölga erlendum leiguskip-
um,” sagði Þorkell Siguriaugsson.for-
stöðumaður áætlanadeildar Eimskips,
en Eimskip hefur nú á leigu fjögur er-
lend skip meö eriendum áhöfnum og er
eitt þeirra á fastri leigu meö langtíma-
samningi til sex mánaða í senn.
Þá er Eimkip að selja tvö skip um
þessar mundir, Múlafoss og Uðafoss,
en stöðugildi á þeim eru 22. Sagði Þor-
kell að ekki væri um uppsagnir aö ræöa
í því sambandi í bili heldur aöeins um
tilfærslur en á síðasta ári keypti Eim-
skip tvö skip, Lagarfoss og Fjallfoss.
Þá eru uppi áform um aö festa nú kaup
á a.m.k. einu skipi, að sögn Þorkels, og
endumýja önnur tvö á árinu. Sagði
Þorkell aö leiguskip þessi væru tekin í
notkun til að brúa þaö bil sem skapað-
ist þegar miklar breytingar ættu sér
stað á skipastólnum á svo stuttu tíma-
bili. Benti hann á að notkun Eimskips á
erlendum leiguskipum væri síst meiri
en hjá öðrum íslenskum útgerðum.
1 eigu Eimskips nú eru fjórtán skip
en fyrirtækið leigur fjögur erlend skip
með erlendum áhöfnum, eitt erlent
skip með íslenskri áhöfn og tvö skip frá
íslenskum útgerðum með íslenskum
áhöfnum. Samtals eru bví 21 skip í
flutningum hjá fyrirtækinu um þessar
mundir. Sagði Þorkell Sigurlaugsson
að það væri stefna fyrirtækisins að
vera með íslenskar áhafnir á leigu-
skipunumþegarþessværikostur. hþ
Kvótatölvan hárnákvæm á því:
HELGA BJÖRG HU
FÉKK100 GRAMMA
KARFAKVÓTA í ÁR
RÆTT UM SAMSTARF
STiÓRNARANDSTÖDU
—á ráðstef nu um velf erðarríkið á íslandi
Aöilar úr öllum stjómarandstööu-
flokkunum munu um næstu helgi gang-
ast fyrir ráðstefnu undir yfirskriftinni:
Island, velferðarríki fyrir hvem? Á
þessari ráöstefnu mun jafnframt rætt
um skipulag áframhaldandi samstarfs
þessara aðila með það í huga að
skapa fastan umræðuvettvang fýrir
stjómmálasamtökin á vinstri vængn-
um. Hugmyndir em uppi um að stofna
málfundarfélag sem gæti orðið vett-
vangur fyrir frekara samstarf þessara
aðila en það verður rætt nánar á ráð-
stefnunni.
Ráðstefnan verður haldin í Gerðu-
bergi í Breiðholti laugardaginn 7. apríl
og hefst klukkan 13. Flutt verða fjögur
framsöguerindi um velferðarriki á Is-
landi. Stefán Olafsson, Bandalagi jafn-
aðarmanna, fjallur um hvort Island sé
velferðarríki, Arni Gunnarsson Al-
þýðuflokki ræðir hvort velferðarríkið
sé á undanhaldi, erindi Svans
Kristjánssonar Alþýöubandalagi
fjallar um atvinnurekendur, velferðar-
ríkið og íslenska þjóðarvitund og Guð-
rún Jónsdóttir Kvennaframboði
ræðir um hvort hugmyndafræði vel-
ferðarþjónustunnar sé tæki til innræt-
ingar eða frelsis. A eftir framsögu-
erindum verða umræður í hópum.
OEF
Bílddæling-
ar vilja
Snorra
Sturluson RE
— oggerahann
úttil rækjuveiða
Forrráöamenn Rækjuvers á
Bíldudal voru á ferð í Reykjavík
fyrir helgi og skoðuðu þá m.a.
BUR-togarann Snorra Sturluson
sem BUR hefur nú lagt.
Hafa þeir áhuga á að taka skipið
á leigu, enda mun það ekki enn
vera falt til kaups, og gera þaö út á
djúphafsrækjuveiðar.
Eins og fram hefur komið er
BUR að hugleiða að breyta Snorra
þannig að afli verði unninn og
frystur þar um borð en ákvörðun
þar að lútandi hefur ekki verið tek-
in. Því er það aö samninga-
viðræður Bíldælinga og BUR-
manna em í gangi enda tekur
undirbúningur áðurnefndra breyt-
inga nokkurn tíma áöur en til
beinna framkvæmda við skipið
kemur. -GS
Landvélamálið:
lausir
Fegðunum tveim, sem setið hafa
í gæsluvarðhaldi vegna gmns um
stórfelld söluskatts- og bókhalds-
svik var sleppt úr haldi um helgina.
Eins og fram hefur komið em þeir
tveir af forráðamönnum Landvéla
hf. í Kópavogi. Meint svik fyrirtæk-
isins em talin skipta milljónum
króna.
-JGH
Maður f éll
í Sand-
gerðishöfn
Minnstu munaði að illa færi í síð-
ustu viku er skipverji á Reyni frá
Sandgerði féll í höfnina. Skipverj-
inn var að stökkva um borð í bátinn
en náði ekki nógu langt og féll á
milli skips og bryggju. Stýrimaður-
inn af Jóni Gunnlaugssyni, sem
einnig lá við bryggjuna, varð vitni
að óhappinu og stakk sér á eftir
skipverjanum. Varð hvomgum
meint af volkinu.
-KÞ
Fengu sjóðandi
vatn yfirsig
ogbrenndust
Fjórir menn brenndust, og þar
af tveir illa, er sjóðandi vatn
skvettist yfir þá í Norðurstjörnunni
í Hafnarfirði á sunnudag. Verið er
að kanna orsakir slyssins en þaö
var vatn úr niðursuöupotti sem
skvettist yfir mennina. Mennimir
tveir, sem brenndust illa, em á
sjúkrahúsi. Annar þeirra er fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins.
-JGH
Leiðrétting
I grein eftir Gunnar B. Kvaran
myndlistarga gnrýna nda DV sem
birtist á föstudag sl. undir fyrir-
sögninni Renaissance og natural-
ismi urðu þau leiðu mistök að
myndvíxlun varð svo að ein mynd
birtist með greininni sem þar átti
alls ekki heima. Það er mynd sem
sögð var eftir Sigurö Eyþórsson og
kölluð Ása Valgerður. Hið rétta er
að myndin er eftir svissneska lista-
manninn Helmut Federle og átti
ekki að birtast með greininni
Renaissance og naturalismi. Biðst
DV velvirðingar á þessum mistök-
um.