Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1984, Page 7
DV. ÞlÍÐ'jÖMGtfRÍ. ^HlL’lðM. ’’ ’
Neytendur
Neytendur
Neytendur
Neytendur
Þeir sem nota greiðslukort skilja eft-
ir sig spor á hverjum stað þar sem þeir
eiga viðskipti með þeim. Hugsanlegt er
aö einhverjir aðilar geti notfært sér
þetta, sem getur haft alvarlegar
afleiðingar fyrir þann sem notar
kortiö.
1 Danmörku er umræða um þetta
efni í gangi. Þar í landi er unniö aö því
að gera þetta kort að allsherjar gjald-
miðli í landinu. Eigendur þessara
korta fá mjög nákvæmt yfirlit yfir allt
sem greitt hefur verið með kortunum.
Þetta er mjög svipaö því sem gerist
hér á landi í sambandi viö þau kort
sem hér eru í noktun. Þetta er gert í
því augnamiði að eigendur kortanna
geti fylgst nákvæmlega með allri
neyslu sinni og að þeir þurfi ekki að
borga fyrir meira en það sem þeir
sjálfir hafa tekið út fyrir. Danski þing-
maðurinn Leif Hermann hefur vakið
máls á því aö ef þessi reiknisyfirlit
komist í hendur annarra aöila sé
möguleiki fyrir þá að misnota þessar
upplýsingar. Hann bendir á að banka-
Greiðslukort í Danmörku:
HÆGT AÐ KORTLEGGJA NEYSLUVENJUR
ÞEIRRA SEM NOTA GREIÐSLUKORT?
stofnanir muni eiga greiðan aðgang að
þessum upplýsingum. Þær geti því
mjög auðveldlega gert sér grein fyrir
neysluvenjum viöskitavina sinna.
Bankamir geti notfært sér þessar
upplýsingar í sambandi við bankalán.
Við getum hugsað okkur að eftir-
farandi samtal eigi sér stað í bankan-
um: Viðskiptavinur kemur í bankann
sinn og sækir um aö fá lítið lán. Banka-
stjórinn flettir upp í tölvuútskriftar-
möppu og segir: Þú verður að greiða
hærri afborganir en þú geröir síðast
þegar þú fékkst lán hér. Viðskiptavin-
urinn svarar undrandi: Hvers vegna?
Það kemur hik á bankastjórann og
hann svarar: Ehem, ég sé að þú gætir
auðveldlega minnkað við þig sígarett-
urnar og notar þú ekki fullmikiö af öli?
Viðskiptavinurinn: Hvernig veist þú
þetta? Bankastjórinn: Dankort kerfið
skráir niður öll þín innkaup og ég er
með útskrift yfir þau héma.
Leif Hermann, sem er þingmaður
Sósialíska þjóöarflokksins, segir að
flokkur hans ætli aö koma f ram með þá
kröfu að bankastofnunum verði ekki
heimilaður aögangur að þessum
reikningsyfirlitum.
Hann bendir einnig á að jafnvel
ríkisstjórnin geti notað þessar upplýs-
ingar. Það er búist við því að notkun
þessara korta eigi eftir að aukast mjög
mikið. Eftir nokkur ár er gert ráð fyrir
Ekki hætta á misnotkun
—segir Sólon R. Sigurðsson
aðstoðarbankastjóri
Eg hef enga trú á því að það veröi
misnotkun á þessu hér á landi. Það
reikningsyfirlit sem sent er til kort-
hafa er fyrst og fremst gert til aö
auðvelda þeim að gera sér grein fyrir
öllum úttektum á úttektartímabilinu,”
sagði Sólon R. Sigurðsson, aðstoöar-
bankastjóri Búnaðarbanka Islands, er
DV innti hann eftir því hvort hugsan-
legt væri aö þessar upplýsingar um
eyðslu korthafa gætu verið misnotaöar
af bönkum.
I þessum yfirlitumer greint frá því
hvar viökomandi hefur tekið út á kort-
ið. Síðan er gerð gróf samantekt á
heildarútgjöldunum og þau flokkuö
niður í um sex flokka eftir því hvers
konar verslanir var um að ræða. Það
kemur ekki fram hverjar hinar ein-
stöku vörur voru sem korthafinn
keypti.
Fjallað um
óréttmæta við-
skiptahætti og
neytendavernd
— í nýjasta tölublaði
frá Verðlagstofnun
„Neytandi ætlaði að kaupa lugt á
leiði og hringdi í fyrirtæki sem hafði
þær til sölu og spurðist fyrir um verð á
þeim. Þegar hann síðan keypti lugtina
var söluskatti bætt ofan á uppgefið
verð.
I bréfi til fyrirtækisins var bent á að
söluskattur ætti að vera innifalinn í þvi
verði sem gefið er upp í síma eða á
þeim vörum sem til sýnis eru hjá
fyrirtækjum sem selja vörur til neyt-
enda. Upplýsingar um verð og verð-
merkingar skoðast sem bindandi tilboð
um söluverð vörunnar.”
Mál sem þetta er eitt af þeim fjöl-
mörgu neytendamálum sem berast til
neytendamáladeildar Verðlags-
stofnunar. I nýjasta tölublaði Verð-
kynningar Verðlagsstofnunar er greint
frá starfi þessarar deildar og sagt frá
fjölmörgum málum sem hún hefur
sinnt á síðasta ári. Þessari deild er
ætlað aö fjalla um mál sem snerta
óréttmæta viðskiptahætti og neytenda-
vemd. Neytendamáladeildin er stofn-
uö samkvæmt lögum um verðlag, sam-
keppnishömlur og óréttmæta við-
skiptahætti. I þessum lögum er m.a.
greint frá því hvað seljendum er heim-
ilt og óheimilt þegar þeir eru að selja
vörur sínar til neytenda. Verkefni
ueildarinnar er að sjá um að þessum
lögum sé framfylgt.
I blaðinu er varpað ljósi á ýmsi dæmi
um hvar brotinn hefur verið réttur
neytenda og er það án efa fróðlegt f yrir
alla neytendur sem kunna að hafa
kynnst svipuðum málum eöa eiga eftir
að verða fyrir þeim seinna.
Allir geta fengið þetta blað endur-
gjaldslaust á skrifstofu Verðlagsstofn-
unar að Borgartúni 7 eða hjá fulltrúum
Verölagsstofnunar úti á landi.
-APH
Sólon sagði að í raun væri hægt að fá
nákvæmlega sömu upplýsingar með
því að kanna ávísanareikninga við-
skiptavina bankans. Það hafi ekki tíðk-
ast að bankamir væru að kanna hvar
viökomandi hafi verið að versla og
nota sínar ávísanir. Bankarnir hefðu
því enga ástæöu til að fara að hnýsast í
þessi yfirlit, enda litlir möguleikar
fyrir aðra en korthafana sjálfa að hafa
gagnafþeiip.
Það er vert að benda á aö bankarnir
hér hafa aðgang aö þessum upplýsing-
um vegna hlutdeildar sinnar í greiðslu-
kortafyrirtækjunum. I Kreditkortum
sf. eiga Verslunarbankinn og Útvegs-
bankinn tvo þriðju hluta í fyrirtækinu
og Sparisjóður vélstjóra er samstarfs-
aðili þess. Fimm bankar og 13 spari-
sjóðir eiga hlutdeild að Visa Island.
að um þriðjungur allra viðskipta eigi
sér stað með þessum greiðslukortum.
Þá er hugsanlegt að stjómvöld hafi
nokkuð gott yfirlit yfir það í hvað
peningar fólksins fara og þau geti bet-
ur gert sér grein fyrir því hvar hugsan-
legir tekjumöguleikar eru, t.d. þegar
þau hafa í huga að skella á nýjum
gjöldum. -APH.
§••••••••••«••
kAKgol
BASKA-húfan
kr. 360,-
'
' <>***
vnr .„yoVÓ'"
PÓSTSENDUM.
HATTABUÐIN
MB-húfan kr. 360,-
Frakkastíg 13, sími 29560.
FRANSKIR DAGAR í ÞÓRSCAFE • FRANSKIR DAGAR í ÞÓRSCAFE • FRAÍISKIR DAGAR í ÞÓRSCAFE
ÞIÐ GETIÐ
TRYGGT YKKUR
PARÍSARFERÐ
FRANSKIR DAGAR í ÞÓRSCAFE
Fimmtudaginn 5. apríl til sunnudagsins 8. apríl
Iií
1 ? 1
Kk\
K ?i \
Franska söngkonan Yvonne
Germain skemmtir.
Tískusýning beint frá París
Leonard. Sumartískan 1984.
Söngvarinn Johnny Lobo fer á
kostum.
Dansarar frá Dansskóla Eddu
Scheving sýna.
Meistaramat-
sveinn frá
Frakklandi
Christian Thomas
Trophime kemur frá
veitingastaðnum Le
Manoir De La
Comete í Bretagne.
Tilkynnið komu
ykkar
strax!
Borðpantanir
m
I
síma
23333.
Flugfélag með ferskan blæ
ARNARFLUG
Lágmúla 7. simi 84477
Allir matargestir
fá happdrættis-
miða. Dregið
verður um tvo
glæsilega vinn-
inga á hverju
kvöldi.
PARÍSAR
FERÐ FYRIR
TVO
Síðan verður
dregið 8. apríl
um ferð fyrir
tvo til Parísar
- úr miðum
allra matar-
gesta.
FRANSKIR DAGAR í ÞÓRSCAFE • FRANSKIR DAGAR í ÞÓRSCAFE • FRANSKIR DAGAR í ÞÓRSCAFE