Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1984, Qupperneq 10
i<r
Dv:rSÉifömÁ(mi
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Umsjón: Gunnlaugur A. Jónsson
Kínverjar drógu úr kaupum á
bandarísku korni í fyrra vegna
deilna sem spruttu upp af útflutningi
þeirra á vefnaöarvöru til Bandaríkj-
anna. Reagan forseti setti kvóta á
innflutning kínverskrar vefnaöar-
vöru eftir aö bandarískir fram-
leiðendur höföu kvartaö undan sam-
keppninni.
John Block, landbúnaöarráöherra
Bandaríkjanna, hefur spáö því að
Kinverjar muni bæta upp það sem
vantaði á aö þeir stæðu viö sam-
komulagið um kaup á bandarísku
komi. I fyrra keyptu þeir tveimur
milljónum tonna minna heldur en
samiö hafði verið um. Uppskera hef-
ur þó verið góö í Kína aö undanförnu
og ýmsir sem vel þekkja til mála í
Kína telja aö vafasamt sé aö Kin-
verjar þurfi á aö halda því magni
koms sem þeir höföu samiö um aö
kaupa frá Bandaríkjunum.
Regan fjármálaráöherra heim-
sótti einnig Tókíó þar sem hann
gagnrýndi Japani opinskátt fyrir að
þeir skyldu hafað neitaö aö opna
fjárfestingamarkaöi sína fyrir
beinum fjárfestingum erlendra
banka. Einnig heimsótti hann Suður-
Kóreu þar sem hann flutti svipaðan
boðskap.
Vömskiptahalli Bandaríkjanna
gagnvart Japan er nú 20 milljónir
dollara og sagöi Regan aö ef ekki
kæmu til aukin tækifæri Bandaríkj-
anna til að selja á japönskum mörk-
uöum myndi aukast þrýstingurinn á
þaö. Hann sagði einnig aö þar sem nú
væri kosningaár í Bandaríkjunum
væri heildarvöruskiptahalli Banda-
ríkjanna á þessu ári (spáö 100—110
milljarðar dollara) stórt póhtískt
mál.
I Suður-Kóreu hvatti Regan og til
þess aö stjóm landsins gerði ráöstaf-
anir til þess aö aðgangur aö mörkuð-
um landsins yröi auöveldari.
Bandarískir embættismenn segja
aö ráðamenn í Suður-Kóreu hafi ver-
iö mjög áhugasamir um væntanlega
ferö Reagans Bandaríkjaforseta til
Kína þar sem bætt samskipti Banda-
rikjanna og Kína kynnu að hafa áhrif
á Seoul.
I Kóreustyrjöldinni sendu Kínverj-
ar milljón manna herlið inn í Kóreu
og kommúnísku bandamennimir
tveir höfðu næstum unniö algeran
sigurístyrjöldinni.
Að svo fór ekki getur Suöur-Kórea
þakkaö öflugri framgöngu banda-
ríska lofthersins.
Allt frá þeim tíma hafa Suður-
Kóreumenn verið afskaplega tor-
tryggnir í garö Kínverja.
Desmond Tutu biskup: „Svartirmenn eru enn fangelsaðir án réttarhalda.”
80 prósent af íbúum
Suður-A fríku eru enn
án kosningaréttar
—segir Desmond Tutu, formaður Kirkjuráðs Afríku
„Eins og gyðingamir í Þýskalandi
nasismans veröa allir blökkumenn
yfir sextán ára að aldri að bera vega-
bréf sem sýnir að þeir megi vera þar
sem þeir eru,” sagði Desmond Tutu
biskup frá Suöur-Afríku er hann var í
heimsókn í Noregi fyrir nokkra.
,,Svartir menn eru áfram fangels-
aðir án réttarhalda. Þeir deyja á
dularfullan hátt í fangelsi eða þeir
eru lýstir í bann eins og Winnie
Mandela.”
Biskupinn Desmon Tutu hefur
margsinnis verið tilnefndur til
friðarverðlauna Nóbels. Hann er for-
maður Kirkjuráðs Afríku. Hann líkir
aðskilnaðarpólitík Suður-Afríku við
lausn nasista á „gyðingavandamál-
inu”. Aðeins sé um að ræða suður-
afríska útgáfu á lausn nasistanna.
Hann bendir á í því sambandi að
stjórnin í Suöur-Afríku hefur látið
flytja 3,3 milljónir blökkumanna
með valdi til nýrra heimkynna á
árunum 1960—1982.
I grein sem Tutu skrifaði samtímis
í Washington Post og norska Dag-
bladet segir hann meðal annars:
„Hefðu Bandaríkin viljað vinna með
stjóm Stalíns í innanríkismálum
hennar? Hefðu Bandaríkin viljað
vinna með Þýskalandi nasismans?
Hvemig geta Bandaríkin stutt kerfi
sem er jafnillt og ósiðrænt og komm-
únisminn og nasisminn? Þakka þér
Guð að ég skuli vera svartur. Hinir
hvítu munu verða að svara til saka
fyrir ýmislegt á dómsdegi.”
Tutu biskup gerði og að umtalsefni
hina nýju stjórnarskrá Suður-Afríku.
Hann fullyrðir að hún feli ekki í sér
neina siðbót.
„Hin hvíta Suður-Afríka er snilling-
ur í orðaleikjum, að setja viðunandi
nafn á mjög grimmilegan raunveru-
leika. Menn gætu haldið aö hin nýja
stjórnarskrá veiti öllum fullorðnum
rétt til að kjósa. En hinn grimmilegi
raunveraleiki er sá að 80 prósent af
íbúum Suður-Afríku, þ.e. hinir
svörtu, hafa ekki atkvæðisrétt.
Ég er 52 ára gamall. Eg er biskup í
„anglikönsku” kirkjunni og ein-:
hverjir myndu vafalaust segja að ég
væri tiltölulega áreiðanlegur. En í
móðurlandi mínu má ég ekki kjósa
þó aö ungt fólk megi kjósa. Hvers
vegna? Vegna þess að hún eða hann
era af hinum dásamlega líffræðilega
eiginleika aö hafa hvíta húð. ”
Reagan Bandaríkjaforseti hefur
ákveðið að efld samskipti Bandaríkj-
anna og Kína verði áfram lykilatriði
í utanríkisstefnu Bandaríkjanna til
að spoma gegn sovéskum áhrifum.
Engu breyti þó þessi stefna hafi sætt
nokkurri gagnrýni ýmissa félaga
hans úr Repúblikanaflokknum.
Þetta var sá boðskapur sem
Donald Regan fjármálaráöherra
flutti Kínverjum er hann var í heim-
sókn í Kína fyrir rúmri viku til að
undirbúa heimsókn Reagans forseta
þangað 26. aprU næstkomandi.
Reagan forseti hefur eins og
flokksbræður hans lengi lagt mikið
upp úr dyggUegum stuðningi Banda-
ríkjanna við stjórn þjóðernissinn-
anna á Formósu og hefur það valdið
erfiðleUcum nú þegar stjórn hans
leitast við að bæta samskiptin viö
stjómina í Peking.
En Regan f jármálaráðherra hefur
ekki dregið dul á það — hvorki í opin-
beram yfirlýsingum né einkaviðtöl-
um — að haldið veröi áfram á þeirri
braut sem Richard Nixon markaði
fyrir tólf árum er hann tók upp sam-
skipti við meginland Kina.
Verslun er að sjálfsögðu
mikilvægur þáttur tU að glæða sam-
skipti þjóða og það hefur Regan
fjármálaráðherra í huga er hann
beitti sér fyrir nýjum tollasamningi
við Kínverja sem mun auðvelda
bandarískum kaupsýslumönnum
viðskipti við Kínverja. Samningur
þessi verður undirritaöur í Kína-
heimsókn Reagans forseta.
Fjármálaráðherrann reyndi einn-
ig að gera fjárfestingasamning við
ráðamenn í Peking. Slíkur samning-
ur hefði veitt bandarískum bönkum
og öörum fjármálastofnunum aukið
svigrúm á kínverskum markaði en
vafasamt þykir aö takast megi að
koma slíkum samningi á fyrir heim-
sókn Bandarík jaforseta til Peking.
Regan lýsti því yfir við frétta-
menn, sem fylgdu honum eftir í
Kína, að Kínverjar væru ákveönir í
að gera heimsókn Bandaríkjaforseta
þangað mjög árangursríka og þeir
vildu auka samskiptin við Bandarík-
in.
„Þeim er mjög í mun að gera eins
marga samninga á viðskiptasviðinu
og mögulegt er,” sagði bandarískur
embættismaður sem óskaði eftir því
að vera ekki nafngreindur.
Fjögurra ára samningur um kaup
Kínverja á bandarísku komi rennur
út í desember næstkomandi. Ráöa-
menn í Washington eru óánægðir
með að Kínverjar hafa ekki keypt
sex milljón tonn á ári eins og kveðiö
hafði verið á um í samningnum.
Kínaheimsókn Reagans Bandaríkjaforseta á næsta leiti:
Bandaríkin vilja
efía sambandið
við Kínverja
Richard Nixon heilsar Maó Tse
Tung, formanni kínverska
Kommúnistaflokksins. Stjórn
Bandaríkjanna er ákveðin að halda
áfram á þeirri braut sem Nixon
markaði fyrir tólf árum.
Donald Regan, fjármálaráðherra
Bandaríkjanna.